Ég heiti Henný Lind og er lítil og gullfalleg prinsessa. Ég kom í heiminn þann 20 Nóvember 2006. Ég var 52cm og og vó 3876g, rúmir 15 merkur.
Ég fæddist með dökkt hár og reikna með að halda í það:) Fæðingin gekk ekki alveg eins vel og allir vildu en ég komst heil á húfi í heiminn og var ekki lengi að galopna augun og skoða í kringum mig...

Mamma mín heitir Ragnheiður Hilmarsdóttir og er frá Laugarvatni og pabbi minn heitir Brynjar Þór Bjarkason og hann er frá Akureyri.

Mamma mömmu minnar heitir Gróa Berglind Pálmadóttir (Linda) og pabbi mömmu heitir Hilmar Einarsson, þau búa bæði á Laugarvatni. Amma Linda fékk að vera viðstödd fæðingu mína ásamt pabba.....sem var frábært því ekki veitti okkur öllum af miklum og góðum stuðning....

Mamma hans pabba heitir Henríetta Kristinsdóttir (Henný) og maðurinn hennar heitir Þorvaldur, þau búa á Akureyri. Pabbi pabba míns heitir Bjarki Þór Skjaldarson og hann býr líka á Akureyri með konu sinni henni Rannveigu.




Elsku mamma og pabbi
Ég er með svo litlar hendur,
ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.

Fæturnir á mér eru svo stuttir,
farðu hægar,svo að ég geti fylgt þér eftir.

Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt,
ég skil það ekki.

Horfu á mig þegar ég tala við þig,
þá veit ég að þú ert að hlusta.

Ég hef viðkvæmar tilfinningar.
Ekki vera alltaf að skamma mig,leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég vera vitlaus.

Ekki búast við því að myndin sem ég er að teikna eða
rúmið sem að ég bý um verði fullkomið.
Elskaðu mig bara fyrir að reyna.

Munda að ég er bara barn,en ekki fullorðin vera.
Stundum skil ég ekki það sem þú segir.

Ég elska þig svo mikið.
Elskaðu mig bara fyrir að vera ég,
ekki fyrir það sem ég geri.






Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því.

Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli.

Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann

því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin

og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar).

Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau

eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum

sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð.

Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur,

skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur.

Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann.

Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar

orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut.

Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn

í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn.

Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu

itla drekans til að byrgja inni reiði.

Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði.

Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt

að umgangast þá með varúð og hreinskilni.

Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku

og fals og missir auðveldlega álit

á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.

Þú ert gestur nr. 15745