Við erum systurnar Hallbjörg, Kolbrún Camilla og Sóley Sif.
Sóley Sif er minnsta daman í heimilinu og er 2. ára. Hún kom í heiminn þann 26. júlí 2007. Hún fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og var 3765 g og 52 cm. Hún er mikill prakkari og er alltaf brosandi og finnst æðislegt ef Hallbjörg og Kolbrún Camilla stóru systurnar vilja leika við hana og að komast inní herbergið hennar Hallbjargar er BARA GAMAN :-D Sóleyju finnst skemmtilegast að pússla og skoða bækur og að troða sér í föt af hinum og þessum. Dúkkur eru líka alltaf að verða vinsælli og ef hún mætti ráða væri hún alltaf úti. Hún er mikil félagsvera, mjög ákveðin og mikil mömmu og pabba stelpa :) Hún er á leikskólanum Barnaból. Það tók mömmu rúmlega sólarhring að koma henni í heiminn en henni og pabba finnst verðlaunin svo yndisleg að þau eru strax búin að gleyma því.
Stóra systirin á heimilinu heitir Hallbjörg og er 8. ára. Hún fæddist þann 28. mars 2001 á Landspítalanum í Reykjavík og var 4100 g og 53,5 cm. Hallbjörg er 3. bekk í Höfðaskóla á Skagaströnd og hefur mikinn áhuga á öllu sem tengist tónlist. Hún lærir á þverflautu en þessa stundina er mamma tónlistarkennarinn hennar. Hún syngur mikið og hlustar á tónlist við öll tækifæri í herberginu sínu. Hún veit fátt eða ekkert skemmtilegra en að fara í sveitina og eru hestarnir í sérstöku uppáhaldi og vantar sko ekki kjarkinn þegar kemur að því að fara á hestbak. Hallbjörg er líka í íþróttaskólanum svo það er í nógu að snúast.
Kolbrún Camilla og fæddist 13. apríl 2004 og er því 5. ára. Hún býr í Reykjavík hjá mömmu sinni en hún kemur alltaf reglulega til okkar á Skagaströnd og ekkert smá ríkidæmi þegar allar systurnar eru saman komnar :) Kolbrún Camilla er alltaf syngjandi og finnst skemmtilegast að fá að fara til Gunnu langömmu þegar hún er hjá okkur á Skagaströnd. Henni tekst nefnilega alltaf að bræða hana til að baka eitthvað gott :) Hún er alveg einstaklega barngóð og Sóley Sif heldur einstaklega mikið uppá hana.
Draumalandið
(eftir pabba okkar)
Sofðu barn mitt vært og rótt
því nú er komin nótt.
Í draumaheimi svífur þú
á vængjum ofur hljótt.
Augun stór, svo forvitin
þú horfir allt í kring.
Í draumaheimi dýrðlegt er
að svífa stóran hring.
Í svarta myrkri ef vaknar þú
er besta ráðið þá
að lygna aftur augum tveim
og stefna draumalandið á.
Er sólin heilsar að morgni dags
þú vaknar ofurhljótt
og kveður kátan draumaheim
,,sjáumst næstu nótt“.
|