Hjartanlega velkomin/n á heimasíðuna mína
Ég heiti Sigurjón Nói og er Ríkharðsson


Um mig:
Síðan er læst. Minnsta málið er að fá lykilorðið með því að senda múttunni bara póst á kisumjasa(hja)hotmail.com en ég bið ykkur um að halda lykilorðinu fyrir ykkur sjálf, ég vil bara aðeins fá að fylgjast með hverjir eru að skoða ;)

Ég fæddist á Landspítalanum þann 22.nóvember 2006 kl.09:46 og mældist 3535 gr (14 merkur) og 51 cm.

Ég var með mikið dökkt hár (en er orðinn ljóshærður núna) og blá augu og flestir segja að ég sé alveg eins og pabbi minn.

Mamma mín er Iðunn Dögg Gylfadóttir (80) og pabbi minn er Ríkharður Örn Steingrímsson (76).

Lilypie 3rd Birthday Ticker

Cool Slideshows






Annað:
Ég var nefndur Sigurjón Nói strax við fæðingu. Bróðir pabba hét Sigurjón og Nói er "út í loftið".

Sigurjón = Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sigur" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "jón" sem merkir drottinn er náðugur.

Nói = Nafn þetta er komið úr biblíunni, af hebreska orðinu "nwh" sem ýmist er talið merkja hvíld eða langlífi.


Bogmaðurinn 22.nóvember - 21.desember:

Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.


Munið eftir gestabókinni!! ;)
Þú ert gestur nr. 16883