| VALDIMAR, TÓMAS OG ÁGÚST |
|
|
Um okkur:
Ég, Valdimar, fæddist miðvikudaginn 17.mars 1999 kl: 22:33. Við fæðingu var ég 16 merkur (4.190 gr) og 53 cm. Ég var skírður á afmælisdaginn hennar mömmu þann 10.apríl í Dómkirkjunni af sr. Pálma Mattíassyni.
Ég varð stóri bróðir aðfaranótt mánudagsins 12.maí 2003 kl: 02:17, því þá eignaðist ég litla bróður minn hann Tómas. Hann fæddist 17 og 1/2 mörk (4.345 gr) og 54 cm. Hann var skírður þann 14.júní líka í Dómkirkjunni af sr. Pálma. Ég varð svo STÓRI, stóri bróðir og Tómas stóri bróðir mánudaginn 28.júlí 2008 en þá fæddist litli yndislegi bróðir okkar hann Ágúst sem við vorum MJÖG spenntir að eignast. Hann fæddist kl: 21:32 og var 16.merkur (4.050 gr) og 52,5 cm. Ágúst var skírður þann 31.ágúst í Dómkirkjunni af sr. Pálma. Okkur finnst hann algjört æði og viljum helst fá að halda á honum alltaf ! |
|
|
Annað:
Mömmu og pabba finnst þau heppnust og ríkust í heimi að eiga þrjá yndislega, heilbrigða og fallega gullmola sem þau dýrka og dá meira en allt í heiminum !
|