| Hjartanlega velkomin á heimasíðuna mína |
| Magnús Máni Norðfjörð heiti ég og er 1 árs fallegur prins :) |
|
|
Um mig:
Ég fæddist í Hreiðrinu - LSH, 28.09.07 kl 20:42. Ég var 4235 gr og 53 cm. :) Foreldrar mínir heita Sif Magnúsdóttir (´80) og Þórður Norðfjörð (´73) Ég er rosalega ríkur því að ég á einn bróður heima hjá okkur, Sindra Snæ og svo á ég tvo bræður í Eyjum, Jóhann Inga og Sigurð Þór :)
|
|
|
|
Mamma er konan... ...sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar að maður eldist og ætti að geta hugsað meira um sig sjálf/ur, til dæmis að vera í hreinum fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. Mamma er besta kona í heimi. Pabbi er maðurinn... ... sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda að það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur og honum finnst skrítið að lítið barn geti ekki sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk, samt veit hann allt! Svo þegar að maður verður aðeins eldri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. Pabbi er besti maður í heimi. |
| Þú ert gestur nr. 9117 |