Ég vil óska ykkur báðum til hamingju með brúðkaupið, á myndunum að dæma hefur þetta verið yndislegur dagur í faðmi fjölskyldna og vina. Megi framtíðin verða ykkur björt og vegni ykkur vel.
Með kveðju
Eva Rós
Eva Rós
|
24.7.2007 04:22:20
Til hamingju en og aftur með brúðkaupið. Vá flottar myndir þetta hefur verið mjög gaman. Unnur þú varst rosalega flott og ekki slæmt að eiga nokkra stráka til að vera jafn flottir og Finnur. Vona að Danmerku ferðinn heppnist vel.
kveðja frá London
Þórunn Guðrún Einarsdóttir
|
23.7.2007 17:04:01
Elsku Unnur Ása og Sigurfinnur.
Innilega til hamingju með brúðkaupið, megi allar góðar vættir fylgja ykkur og ykkar um ókomna tíð.
Hjartans kveðja
Salóme og Keli.
Salóme Gunnarsdóttir
|
14.7.2007 15:38:44
Hæ elskurnar.
Finnur það er skritið þetta lif, Það er stutt siðan að okkur fannst lifið hafa engan tilgang og við vera skilin eftir i skugga og myrkri.
Svo allt i einu kom ljós og við fengum sitthvorn engilinn. Æj já ég tárast nu þegar ég er að skrifa þetta.
Ég vildi lika minna þig á það sem að bróðir þinn Gústi sagði einu sinni við mig þegar við vorum að tala um þig þá sagði hann að hann elskaði þig jafn mikið og dóttir sína hana Nadíu Líf.
Hann hefur verið með þér á þessum degi og sem alltaf. Elsku Finnur það er yndislegt að sjá hvað þú ert buinn eignast fallega og yndislega konu, og 3 æðislega stráka :) what more can you ask fore :)
Tilhamingu með daginn, leiðinlegt að við komumst ekki.
Love
Mariam,Ófeigur, NADÍA LÍF ÁGÚSTDÓTTIR Og Ísak Eldur (litli feiti frændi)
Mariam
|
11.7.2007 00:32:23
Til hamingju með daginn.
Rosalega gaman að skoða myndirnar, lítur út fyrir að hafa heppnast rosalega vel.
Kv. Gréta.
Margrét Matthíasdóttir
| 0
|
10.7.2007 11:29:29
Til hamingju með daginn ykkar. Flottar myndir og greinilega frábær dagur. Þið eruð virkilega flott fjölskylda.
Steinunn Rósa
|
9.7.2007 23:31:55
Innilega til hamingju, rosalega fallegar myndir og þið flott, vonandi sjáumst við sem fyrst svo mann geti knúsað ykkur.
kveðja Sirrý og co
Sigríður Stefánsdóttir
|
9.7.2007 13:42:16
Hæ hæ elskurnar,
Eftir að hafa skoðað myndirnar þarf ég ekkert að taka fram að ég skemmti mér æðislega vel með ykkur, takk kærlega fyrir mig þetta var yndisleg helgi. Hafið það gott í fríinu - kossar og knús Herdís
Herdís Stefánsdóttir
|
9.7.2007 12:58:34