Lilypie Next Birthday Ticker

Jæja þá erum við komnar í heiminn þrjár undurfallegar og dásamlegar prinsessur sem litu dagsins ljós þann 13 mars 2007.
en áttum ekki að koma fyrr en 13 júní
svo við komum 13 vikum fyrir tíman
Það er búið að skíra okkur og fengum við þau fallegu nöfn sem eru...
a) Sandra Sól b) Sara Ósk c) María Líf
og vorum við 15 vikur og 1 dag á vöku
komum loksins heim 27 júní
þá vorum við orðnar stórar og duglegar.
Við erum fínar og flottar stelpur.


a) Sandra Sól heiti ég og var ég 912 gr og 36 cm þegar ég fæddist. Ég var 15 vikur og 1.dag á vöku en þegar ég kom heim var ég orðin 3388 gr.
Fín og flott stelpa eins og systur mínar



Sandra: Nafn þetta er ítalskt að uppruna og er stytting á nafninu "Alessandra" sem á Íslandi mundi útleggjast Alexandra.

Sól: Nafn þetta er komið af nafnorðinu "sól" sem allir þekkja


b) Sara Ósk og var ég 628 gr og 31 cm þegar ég fæddist. Ég var 15 vikur og 1.dag á vöku en þegar ég kom heim var ég orðin 2462 gr.
Fín og flott stelpa eins og systur mínar



Sara: Nafn þetta er fengið úr biblíunni og merkir hefðarkona, - prinsessa.

Ósk: Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "ósk".


c) María Líf og var ég 850 gr og 35 cm þegar ég fæddist. Ég var 15 vikur og 1.dag á vöku en þegar ég kom heim var ég orðin 3208 gr.
Fín og flott stelpa eins og systur mínar



María: Nafn þetta er komið úr biblíunni og hefur verið talið merkja hin fagra

Líf: Nafn þetta er komið hingað frá Norðurlöndum og er það þá skrifað "liv" og merkir það að lifa, - líf.



Mamma okkar heitir Aníta Björk Gunnarsdóttir og Pabbi okkar heitir Benedikt Guðfinnur Karlsson.
Við eigum heima á Akranesi. Erum við 4, 5, og 6 barn mömmu megin en við erum 1,2, og 3 börnin hans pabba.
Mömmu megin þá eigum við 2 systur og bróður. það er Fanney Unnur sem er 17 ára, Lena Kristín sem er 13 og Alexander Helgi sem er 9 ára.



Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.




Alex stóri bróðir


Mikael Logi


Tinna María


Embla Sól og Hugrún Birta


Sylvía Diljá


Vilhjálmur Huldar


Svanberg aron og Inga lilja


Birta Mjöll


Jóhanna Elín og Halldór


Þorleifur Stefán og Sigmundur Anton


Sindri Snær og Sara Ósk



Pabbi er Maðurinn

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.

Samt veit hann allt !!

Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

Pabbi er besti maður í heimi.



Mamma er Konan

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.

Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

Mamma er besta kona í heimi.







Þú ert gestur nr. 60353