Velkominn á heimasíðuna mína!
Ég heiti Íris Embla Andradóttir og er 2 ára prinsessa!


Um mig:
Ég fæddist sunnudaginn 18. febrúar 2007 á sjálfan konudaginn. Ég var 3080 gr (12 merkur) og 49 cm. Fæðingin gekk hratt og vel fyrir sig. Mamma mín byrjaði með verki um morguninn og var komin upp á sjúkrahús um kl: 11. Þegar ljósmóðirin skoðaði hana var hún komin með 6-7 í útvíkkun því ég var að drífa mig í heiminn. Ég kom svo í heiminn kl: 14:12 með svaka stæl þar sem ég kom út eins og súperman með aðra hendina upp í loftið og gaf frá mér þessi líka kröftuglegu hljóð. Ljósmóðirin sem tók á móti mér heitir Birna og var alveg frábær. Pabbi minn og Eygló amma mín voru viðstödd fæðinguna og voru þau alveg meiriháttar.
Mamma mín heitir Anna Þóra Þorgilsdóttir og pabbi minn heitir Andri Lindberg Karvelsson. Þau eru svakalega stolt og montin af mér.
P.s Lykilorðið í albúmið er nafnið á heimilisdýrinu.




Annað:
..Nafnið mitt..

Íris: Nafnið kemur úr grískri goðafræði er upphafleg persónugering regnbogans er varð síðar sendiboði guðanna. Nafnið merkir einnig "Gyðja".

Embla: Nafnið kemur úr norrænni goðafræði. Sagan segir að Óðinn og bræður hans hafi gefið tveimur trjám, Aski og Emblu, líf og urðu þau fyrstu manneskjurnar og frá þeim á allt mannkynið að vera komið.


...stjörnumerkið mitt...


VATNSBERINN


20. janúar - 18. febrúar

Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.


Þú ert gestur nr. 8044