Um mig:
Ég fæddist föstudaginn 7. september 2007 kl 15:00 á Hreiðrinu á Landspítalanum, eftir 39 vikna og 4 daga meðgöngu. Ég var 17 merkur (4240 gr) og 53 cm, með dökkan lubba og blá augu.
Í dag er ég orðin töluvert stærri, hárið er orðið ljóst en augun eru ennþá blá.
Mamma mín heitir Þórey og pabbi minn Eysteinn. Þau eru bæði lyfjafræðingar. Ég er fyrsta barnið þeirra og þau eru rosalega ánægð með mig. Ég er líka allgjört draumabarn, ljúf, kát, brosmild og dugleg stelpa sem veit fátt betra en að sofa og borða.
Foreldrum mínum finnst ég fallegasta og skemmtilegasta barn sem þau hafa nokkurn tímann séð. Við vitum að allir foreldrar segja þetta, en í okkar tilfelli er það bara satt :o)
Við litla fjölskyldan búum í sveitasælunni á Álftanesi. Þar er gott að búa.
Síðan mín er læst en alls ekki vera feimin við að sækja um lykilorðið ef þið þekkið okkur. Sendið bara póst á thoreyt@hotmail.com og ykkur verður svarað um hæl.
|