Guðjón Berg kom í heiminn 30. september 2002 kl 00:47 og var 14 merkur og 51 cm Við eigum heima í Neskaupstað það er sko gott að eiga heima. Amma Jóhanna var hjá mér þegar ég fæddist og það fannst okkur mömmu og pabba gott :O) Því þetta gekk ekkert of
vel hjá okkur.



Guðjón Berg er á leikskólanum Sólvöllum. deildinn hans heitir Saltkráka og er inn í sveit hann er rosalega ánægður þar.. Og ekki er vera að amma hans er að passa hann ;O)

Við fórum til Ljósmyndara Pétur Pétursson þegar Guðjón Berg var 6 mánaða... og hann setti myndirnar af Guðjóni Berg inn á síðuna sína www.ljosmyndastudio.is Rosa dædur :O)



Guðjón: Nafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "jón" sem merkir drottinn er náðugur.

Berg: Nafn þetta merkir hjálp, - frelsun.



Barn í voginni er fæddur málamiðlari sem elskar friðinn og vill að öllum komi vel saman. Sáttasemjari leikvallarins er mættur! Með þessum eiginleika fylgir ákveðin nákvæmni og glæsileiki sem hjálpar barni í þessu merki við að komast áfram og fá það sem það vill. Mjög erfitt er að mótmæla og rífast við vogina vegna þess hve sveigjanleg hún er. Þar sem þetta barn er samvinnufúst og í góðu jafnvægi þá á barnið mikið af vinum og allir leika sér saman í sátt og samlyndi. Vogin elskar að eyða tíma sínum með félögunum, því barn í vog er mikil félagsvera sem vill miklu frekar leika sér í hóp en að vera eitt að leika. Vogin er námsfús og fær góðar einkunnir út úr prófum. Þetta barn kemur ávallt vel fyrir og vandar sína framkomu. Vogin getur átt það til að vera hverflynd og óákveðin og þú skalt ekki hika við að taka ákvörðun fyrir barnið þegar það sýnir þessi einkenni. Það er nú bara þannig að barn í voginni hefur tilhneigingu til að setja sig í spor allra sem að málinu koma og því getur verið erfitt að taka "réttu" ákvörðunina. Svo sannarlega fæddur sáttasemjari. Að lokum, barn í voginni á það til að eiga erfitt með einbeitingu, svo hafðu auga með því til að halda því á réttri braut




Hlynur Fannar kom í heiminn 14 júlí 2006 kl 00:59 og hann var 14 merkur og 53 cm Við biðum eftir honum í 8 auka daga en þegar hann var tilbúinn að koma mætti hann bara á 3 tímum, þvílíkur töffari. Amma Jóhanna var hjá okkur líka núna það er svo gott að hafa hana:O)



Hlynur Fannar er byrjaður á leikskólanum honum finnst það æði. Hann er á deild sem heitir Sjónarhóll og er á Sólvöllum.


Hlynur: Nafn þetta er fengið af trjátegundinni hlynur

Fannar: Nafn þetta er myndað af forliðnum "Fann" sem merkir snjór og viðliðnum "ar" sem merkir hermaður.




Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.

Við eigum heima í Neskaupstað eða 740 pardís eins og mamma segir stundum...Mamma okkar heitir Sigga Magga og Pabbi okkar heitir Stebbi P svo eigum við stóra systir sem heitir Þórdís Arna og erum við alveg ótrúlega heppnir með það :O) Mamma og Pabbi eru allveg að springa úr monti af Krökkunum sínum finnst þau flottust í heimi ef ekki bara geimi.. Elskum Ykkur ;O)



Sú ákvörðun að eignast barn er einstök. Að ákveða að um alla eilífð muni hjarta þitt verða á gangi utan líkama þíns." Elizabeth Stone



Barn færir ykkur endalausar gjafir, nýja ánægju og nýtt undrunarefni á hverjum degi.



Alexandra Ýr og Embla Rós

Andri Snær og Arnar Freyr

Arndís Lilja

Aron Darri og Jónbjörn Orri

Ástrós Diljá og Halldóra Guðrún

Berglind Björk og Benedikt

Bjarni Þór

Bjartur Hólm

Bryndís Lára

Camilla Ýr og Arnar Freyr

Daníel Orri og Gabríel Dan

Hrefna Maren og Sigurjón Vikar

Helena Lind og Hanna Lára

Kristjana Vala og Viktoría Sólveig

Íris Ósk og Valþór Snær

Ísabella Danía og Haukur Eron

Jóhanna Lind og Rut

Júlía Birna

Rebekka Rán

Sólrún Anna

Stefán Ingi og Elísabet Sif

Ævar Steinn og Anna Móberg


Núna er/u...

að skoða heimasíðuna mína!

Við erum búin að læsa síðunni en sendið okkur póst ef ykkur langar að skoða

sendu mömmu póst


Heimsóknir síðan 4.október 2002

Þú ert gestur nr. 55057