Tristan Orri 9 ára


Ég og Þórður bróðir.


Ég er ljón, fæddur þann 23 ágúst 2002 í Sønderborg í Danmörk, ég var 4 kg. og 50 gr. og 54 sm. Pabbi heitir Guðmundur Ragnar Ólafsson og mamma Lára María Sigfriðsdóttir. Ég á einn stóran bróðir hann heitir Þórður Eyþórsson og hann er 32 ára.

Ég bý með pabba og mömmu í Sønderborg og er í Sønderskovskolen og junior klub. Í dag er ég 9ára,og mamma segir að ég sé sætastur og pabbi segir það líka c",)


Hér er vísa sem Óli afi samdi um mig,

Tveggja ára orðinn er,
orku hlaðinn gutti.
það er alveg sem að fer,
hann verður enginn putti.






LJÓNIÐ

24 júlí- 23 ágúst 2002.


Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.
















Fjöldskyldan mín
Jæja núna ætla ég að segja ykkur frá fjöldskyldunni minni .

Mamma er fædd 1959 og er sjúkraliði. Pabbi er fæddur 1961 og er rafeindavirki. Þórður bróðir minn er á Íslandi :-( hann er 32 ára. þá er það mömmu ætt, afi, Sigfrið Ólafsson og amma, Erla Þórðardóttir búa í Reykjavík. Þar býr líka systir hennar mömmu Beta, hún á tvo stráka, Smára 24 ára og Hrannar Örn 20 ára, Smári býr í Dk. Tóti bróðir hennar mömmu býr í Noregi, hann á 4 börn, Petra Dögg 27 ára býr á Íslandi og Ýmir Gnýr 15 ára býr í Sönderborg og Melissa Erla, 6 ára og Daniel Thor 5 ára. Svo kíkjum við á pabba ætt, afi Ólafur Ingvarsson og stjúpamma Artha Eymundsdóttir búa í Reykjavík. Rakel systir hans pabba býr í Reykjavík. Maðurinn hennar heitir Karl og þau eiga 5 börn, Örn , Thelmu , Elsu,
Matthildi og Karólínu

Björg, önnur systir hans pabba, býr í Köben, hún á 2 stelpur, Sif og Monu . Óli bróðir hans pabba býr í Reykjavík .






Þú ert gestur nr. 129449