'Uha vá ég er 9 ára í dag
3 Nóvember 2009
Halló....................
Jæja það er svo sem ekki mikið að frétta hér bara svona þetta sama og venjulega. Skrapp til íslands í sumar og það var voða gaman, hitti fullt af fólki og var mikið með frænkum mínum þeim Sif og Matthildi.
Svo byrjaði skólinn og ég varð 7 ára. Mamma skrapp svo aðeins aftur til Íslands og við pabbi nutum okkar bara hér heima.
Á kulturnat fékk ég að kafa í sjónum með snorkelklúbbnum og fanst það nú ekki slæmt, reyndar voru ansi margir brandmand i sjónum og ég var ekki hrifinn af því.
Ég fór í kviðslitsaðgerð í síðustu viku og gekk það allt vel.
Er voða mikið að þroskast og er eiginlega bara orðinn unglingur, missi tennur og fæ tennur og stækka og stækka.
Fór um daginn og keypti mer PSP fyrir mína peninga er búinn að vera að safna fyrir því
Það gengur bara vel í skólanum að vísu er þetta svolítið ruglingslegt að vera að læra að lesa bæði á íslensku og dönsku en þetta kemur allt með kalda vatninu.
Er farin að fá að labba sjálfur heim úr skólanum öðru hvoru og labba líka oft í vinnuna til mömmu, það passar svo vel, þarf bara að labba yfir skólalóðina þá er ég kominn í vinnuna hennar.
Það eru miklar framkvæmdir hér í hverfinu og nú er búið að einangra blokkina okkar og hlaða múrsteinum á hana, næst verður skipt um glugga og hef ég nú smá áhyggur af því að kallarnir sem koma hingað skemmi dótið mitt. Sagði við mömmu og pabba í morgun að ef þeir rústa herberginu mínu og skemma dótið mitt það verði þeir sko að borga fyrir það eins marga peninga og dótið kostar, annars lemji ég þá bara
Við pabbi verðum einir heima á laugardaginn mamma er að fara til Slagelse á fund hjá hernum, einhvern midtvejs oplysninger fund, Smári er nefnilega í Afganistan og það er víst aðeins of langt fyrir Betu að mæta á fundinn ;)
Meira er eiginlega ekki að frétta og við biðjum bara alla góða vætti um að passa vel upp á hann Smára okkar
Mojn mojn
Tristan Orri unglingur

