| Velkomin(n) á heimasíðuna okkar |
| -Við erum systkinin Telma, Bergsveinn Kári, Ari Kristinn og Agnes- |
|
|
Um mig:
Telma fæddist 13. mars 2002 kl 19:47 en þá vorum við búin að bíða eftir henni í 11 daga. Hún var tæpar 14 merkur eða 3485 gr og 50 cm. Bergsveinn Kári fæddist 07. desember 2006 kl 8:39 en hann fæddist daginn eftir settan dag, stundvís strákur. Hann var 17 merkur eða 4250 gr og 52 cm. Ari Kristinn fæddist 26.mars 2009 kl 4:46 en hann lét bíða eftir mér í 4 daga. Hann var rúmar 16 merkur eða 4120 gr og 52 cm. Agnes fæddist 24. september 2011 kl 18:45 en hún lét bíða eftir sér í viku. Hún var 15 merkur eða 3770 gr og 50 cm.
Allar fæðingarnar gengu rosalega vel. Foreldrar okkar heita Lea Hrund Sigurðardóttir og Jóhannes Bergsveinsson, þau eru rosalega stolt af okkur fjórum. Telma
Ég er 9. ára prinsessa, ég er í 3b í Ronnowskolan í Åhus það er eins og 4 bekkur á Íslandi. Mér gengur mjög vel að læra sænskuna og nánast orðin altalandi. Ég er mjög tilfinningarík og segi ég mömmu og pabba oft á dag hvað ég elska þau mikið. Ég er algjör félagsvera, finnst gott að hafa fullt af fólki í kringum mig. Ég syng allann daginn. Ég veit ekkert skemmtilegra en að lita, mála og föndra og er ég rosalega vandvirk og hugmyndarík. ég get verið pínu púki stundum en það hef ég frá pabba mínum eða það segir mamma allavega. Mamma og pabbi eru rosalega stolt af mér. Ég er rosalega dugleg að passa systkini mín. Svo er ég að æfa fótbolta og gengur það mjög vel. Bergsveinn Kári
Ég er bráðum 5 ára gaur, það er sko rétta orðið fyrir mig gaur, ég er algjör grallaragormur. Ég er líka rosalega hlýr, kelirófa, skemmtilegur og góður strákur. Mamma, pabbi og systa geta sko hlegið af mér allann daginn því ég er svo sniðugur strákur. Ég er rosalega duglegur að leika mér, get dundað allann daginn við að kubba lego. Ég er með flugvéla- bíla og mótorhjóladellu. Ég byrjaði í leikskóla í Svíþjóð í ágúst 2011 og gengur það vel, ég sakna samt leikskólans heima á Íslandi. Ég elska að leika mér í grímubúningum og allskonar hlutverkaleikjum. Ég elska að fá að leika með systu og Ari Kristinn bróðir er besti vinur minn. Ari Kristinn
Ég er orðin tveggja og hálfs árs gaur. Ég byrjaði í sænskum leikskóla í ágúst 2011 og gengur það mjög vel. Ég elska að vera úti að leika og vill helst ekki fara inn. Ég er algjör mömmukarl og elska að vera heima með mömmu. Bergsveinn Kári stóri bróðir er Idolið mitt. Ég er algjör grallari og mjög ákveðin ungur maður. Ég er mjög hlýr, góður og skemmtilegur strákur, og elska að knúsa og kyssa mömmu og pabba. Ég elska Íþróttaálfinn og er í íþróttaálfabúningnum mínum allann daginn. Agnes
Ég er orðin eins mánaða. Ég er rosalega vær og góð. Ég stækka og stækka enda er ég rosalega dugleg að drekka. Ég fæddist í Svíþjóð með mikilum látum, mamma náði næstum ekki á fæðingardeildina en ég vildi auðvitað að amma og afi myndi ná að sjá mig en þau fóru daginn eftir að ég fæddist heim til Íslands. Ég er með mikið dökkt hár og algjör dúlla. Mamma og Pabbi
Heimasíða Bjarkar fallegu frænku okkar
|
|
|
|
Annað:
Fiskarnir: 19. febrúar - 20. mars
Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum. Bogmaður 22. nóvember - 21. desember Barn fætt í bogmanni er trúðurinn í bekknum og er ávallt glatt og mikið fjör í kringum það. Passaðu að hafa ekki glas fullt af vökva í kringum það, því bogamaðurinn á eftir að hella því niður. Þetta barn þarf mikið pláss í kringum sig og getur ekki ímyndað sér heiminn án frelsis. Bogamaðurinn elskar frelsið og ferðalög eru í uppáhaldi. Þú mátt búast við að þetta barn sé fyrst til að skrá sig í allar ævintýraferðir og ekki reyna að svipta því frelsinu. Orkan og ákafinn gera bogamanninn að góðum íþróttamanni. Barn í bogamannsmerkinu er stórhuga og opið fyrir öllu mögulegu og ómögulegu! Bogamaðurinn á mikið af vinum og finnst það yfirleitt gera lífið áhugavert. Það lítur jákvætt á heiminn og fólk og þetta er sennilega sá einstaklingur sem berst fyrir því að allir séu jafnir. Mikilvægt er fyrir bogamanninn að finna fyrir réttlæti og þetta barn vill heyra sannleikann í öllum málum. Barn í bogamannsmerkinu kemur sér oft í klandur vegna þess að það segir eitthvað óhugsað og stundum særir bogamaðurinn þig óafvitandi. Hann meinar ekkert slæmt með þessu! Getur stundum verið erfitt að vera foreldri bogamanns, því hann getur kjaftað óvart frá öllum helstu fjölskylduleyndarmálum. Þrátt fyrir þetta fyrirgefur þú þeim auðveldlega, því bogamaðurinn er svo glaður og gaman að vera í kringum hann. Barn í bogamannsmerkinu er svo ánægt með lífið að það getur ekki beðið eftir að vakna í fyrramálið og byrja nýjan dag. Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Hrúturinn Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér – það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á. VOGIN 23. september - 22. október Árstími Vogarinnar er haustið, þegar litir eru sterkir í náttúrunni og sumarið og uppskeruvinnan er að baki. Veður eru enn ágæt og því góður tími til að sinna félagslífi. Fyrsti mánuður haustsins er því rómantískur og það fólk sem fæðist í Vogarmerkinu þykir ljúft, listrænt og félagslynt. Jafnvægi og réttlæti Til að skilja Vogina þarf að horfa á 'symból' merkisins, vogina sem vegur og metur. Ef of mikið er sett á aðra skálina þá hallar vogin og allt fer í voða. Enda er það oft svo að fólk sem fæðist í þessu merki hefur sterka réttlætiskennd. Það er alltaf að leita að jafnvægi, leita að því sem stillir vogina af. En þetta er hægara sagt en gert, og því geta Vogir sveiflast til. Erum stundum eftirgefanlegar, stundum harðar, stundum ljúfar, stundum hrjúfar. Þetta er leit að jafnvægi, að 'balance'. Sumar Vogir eru vel stilltar, aðrar sveiflast stöðugt frá einum pól til annars, eru 'brokkgengar' eins og einn ágætur maður sagði. Ljúf samvinna Það sem einkennir framkomu Vogarinnar, eða það sem hún reynir að láta birtast útávið, er ljúfleiki. Öðrum megin á skálinni er ég-ið og hinum megið er þú-ið. Þetta er spurning um jafnvægi á milli mín og þín. Jafnvægi og samvinna er það sem Vogin er að leitast eftir og því reynir hún að koma vel fram við aðra. En ef hún fær ekki sínu framgengt með ljúfleika, brosi og sannfæringarkrafti, þá á hún vissulega til að valta yfir umhverfið. Það er því oft talað um hina 'ljúfu frekju'. En vissulega vill Vogin vera fáguð, kurteis og yfirveguð. Fegurð Stjórnandi Vogarinnar er Venus og 'elementið' er loft. Venus er pláneta fegurðar og samvinnu, og loftið er táknrænt fyrir rökhugsun. Vogir eru því oft félagsmálamenn, listamenn, pælarar og pólitíkusar. Stundum sameinast þetta allt í einum og sama manninum. John Lennon var listamaður sem barðist fyrir réttlæti. Jóhanna Sigurðardóttir er pólitíkus sem berst fyrir réttlæti. Friðrik Sophusson er pólitíkus, hann virðist ekki berjast fyrir neinu sérstöku, en hann er vissulega greindur og fágaður, kurteis og hæfileikaríkur félagsmálamaður. Vog sem virðist í góðu jafnvægi. Það sem örvar Vogina Að lokum, má segja að Vogin þurfi til að endurnýja og viðhalda lífsorku, að dvelja í félagslega og hugmyndalega lifandi umhverfi. Það þýðir að Vogin þarf að hitta fólk sem örvar hugsun hennar. Hún þrífst illa í einangrun og andlegu tómarúmi. Tapar orku. Vogin þarf á fólki, félagslífi, ást og náinni samvinnu að halda. Umhverfið þarf helst að vera fagurt, listaverk, málverk, litaharmónía og fallegir tónar. Kurteis umræða og fágað orðbragð. Jafnvægi og réttlæti. Rétt stilltar skálar. Þetta eru vinir okkar og ættingjar: Oliver Nói og Lúkas Tumi | Eydís Ýr | Laufey Lind | Anna Valgerður Kolbrún Karitas | Ísar Logi | Alexander, Gunnar og Logi | Viktor Árni og Kristófer Logi Kristján og Sara | Bjarki Snær og Alexandra | Kristófer Máni og Erik Örn | Matthías Daði Viktor Andri | Sumarliði | Elí Örn og Eirný Svana | Brynjar Þór | Pottormar á Rifi Helena Rut | Björgólfur Bersi og Hergill Henning | Agla Bríet og Andri Snær Hugrún Magnea | Oddgeir | Hildur Ásta og Sigrún Heba | Ísak Grétar og Elín Kamilla Jana og Óliver Ottó | Svanfríður Dögg og Victor Rúrik | Fannar og Almar | Emilía Rán Fríða Liv, Anna Emilía og Bríet Björg | Kristján Ragnar og Herdís Arna | Elísa Björk og Ester Laufey | Jóhanna Elísabet -við viljum minna ykkur á að skrifa í Gestabókina okkar- |
| Þú ert gestur nr. 50914 |