| Velkomin :) | ||
| Gísli Wium Snorrason heiti ég og er nýorðinn 2 ára. Endilega kíkið neðar á forsíðuna og sjáið mig dansa í leikskólanum. Munið að kvitta í Gestabókina :) | ||
|
||
|
Um mig:
Hæhæ ég heiti Gísli Wium Snorrason. Foreldrar mínir heita Nanna Gísladóttir Wium (´78) og Snorri Þorbergsson(´73). Ég á sko 2 hálfsystkini sem heita Elísa Sif (´98) og Birgir Alexander(´92). Ég á líka 2 kisur sem heita Erró og Goði.
Ég fæddist á Landspítalanum í Reykjavík þann 26.janúar 2006 kl 13.09. Ég fæddist 3080 gr, rétt um 13 merkur og 49,5 cm langur. Mamma hafði frekar mikið fyrir að koma mér í heiminn en hún segir að það hafi alveg verið þess virði :) Ég er í Leikskólanum Furugrund og deildin mín heitir Dvergasteinn og þykir mér alveg afskaplega gaman þar. Hér er ég í danstíma í leikskólanum, ég sést mest þegar 1 mínúta og 45 sec eru búnar.. Hér er ég að læra að labba hjá pabba og mömmu. Svona æfði ég mig daglega. :)
|
||
|
|
||
|
Langar bara aðeins að sýna hvað það eru flottir dansarar í fjölskyldunni.. :) Mamma mín.. Elsku besta mamma mín mjúk og hlý er höndin þín tár mín þorna í sérhvert sinn er þú stríkur vanga minn. þegar stór ég orðinn er allt það skal ég launa þér. Til Pabba míns .. Ég elska þig af því að þú elskar mig. Mér finnst þú frábær og æðislegur og þú verður það alltaf. Ég elska þig vegna þess að þú vinnur svo mikið til að eiga mat handa okkur og þak yfir höfuðið okkar Ég elska þig svo mikið vegna þess að þú skammar mig aldrei og gefur mér nammi. Ég elska þig vegna þess að þú er PABBI MINN !!! VATNSBERINN 20. janúar - 18. febrúar Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass. Barn í vatnsbera Þú getur búist við að barn fætt í vatnsbera sé ávallt svolítið úr takt við lífið og tilveruna, en það er stór hluti af sjarma þess. Þú getur reiknað með að þessi einstaklingur taki upp á öllu og komi oft á óvart. Vatnsberinn er frjáls í hugsun og mjög sjálftæður. Að fljúga flugdreka um hávetur er eitthvað sem vatnsberanum gæti dottið í hug og fundist það fullkomlega eðlilegt. Barn fætt í vatnsbera er mjög hugmyndaríkt og skapandi og er sífellt að vinna með tæki og tól og mun sennilega vera nettengt frá unga aldri. Tækninýjungar heilla barn í vatnsbera og þú getur bókað að það getur tengt fyrir þig nýja myndbandstækið. Þessi litli vísindamaður gæti sennilega meira að segja búið til eigið myndbandstæki. Vegna þess hve fróðleiksfús vatnsberinn er ættir þú að ávallt að hafa nægar bækur í kringum hann. Vatnsberanum gengur vel í skóla þó svo námsaðferðir virðist stundum vera óvenjulegar. Ritgerðir skrifaðar í hálfleik í handboltanum er eitthvað sem ekki er óvanalegt að sjá. Sumum finnst barn í vatnsbera vera fáskiptið og utan við sig en það er vegna þess að það hefur sinn háttinn á að gera hlutina. Sannleikurinn er sá að vatnsberanum finnst gaman að vera í kringum önnur börn. Sólrún Brynja
Þórunn María og Matthildur Emma Kristófer Mikael Ragnar Ingi Björnsson Halldóra Margrét Birgitta Rún Björnsdóttir Júlíus Sveinn Birgitta Hrönn(minning) Gabríel Anthony Una Dís Guðmundur Hrafn Breiðfjörð
online |
||
| Þú ert gestur nr. 9881 |