| Velkomin á heimasíðuna mína |
| Ég heiti Eydís Arna |
|
|
Um mig:
Ég fæddist á Landspítalanum
í Reykjavík þann 16. mars, 2007, kl. 10:14. Ég var 16 merkur og 51 cm og algjört krútt. Ljósmóðirin sem tók á móti mér heitir Ágústa og með henni var líka nemi sem heitir Nína, mamma segir að þær hafi báðar verið alveg frábærar!!! Svo var líka fæðingalæknir sem heitir Ragnheiður sem skar gat á bumbuna hennar mömmu því að ég komst ekki út. Ég er sem sagt lítil keisaraynja sem lét hafa svolítið fyrir mér ;o) Foreldrar mínir eru bæði frá Selfossi og heita Helga Guðmundsdóttir og Birgir Rafn Sigurjónsson. Svo á ég alveg frábæran stóran bróður sem heitir Aron Fannar. Við búum á Selfossi og höfum það mjög gott þar. Við lágum sængurleguna á Sjúkrahúsinu á Selfossi og það var yndislegt að vera þar, allir svo góðir við okkur. |
|
|
Annað:
Ég er ofsalega vær og góð enn sem komið er. Dugleg að drekka og sofa og að sjálfsögðu pissa og kúka, eða bara gera það sem ungabörn eiga að gera :o)
Endilega kíkið á síðuna hans Arons Fannars: Aron Fannar stóri bróðir minn |
| Þú ert gestur nr. 9929 |