|
|
|
|
| Við erum systkinin Aðalsteinn og Sólveig Birna | |
|
Um mig:
Búið er að læsa myndaalbúminu og er lykilorðið fjöldi systkina mömmu í bókstöfum.
Aðalsteinn fæddist á fæðingardeild landspítalans þann 10 október 2001 klukkan 23:58 hann var 3545gr og 52cm. Aðalsteinn er með dökkt hár og blá augu.
Sólveig Birna fæddist á fæðingardeild landspítalans þann 6. mars 2005 klukkan 01:55 hún var 4415gr og 53cm að lengd. Sólveig Birna er með ljóst hár og blá augu.
Við búum í Bolungarvík með mömmu og pabba. Mamma heitir Sigrún og pabbi heitir Stefán Örn þau eru bestu foreldrar í heimi. Svo eigum við fullt af ömmum og öfum út um allt land. Aðalsteinn er vog
Barn í voginni er fæddur málamiðlari sem elskar friðinn og vill að öllum komi vel saman. Sáttasemjari leikvallarins er mættur! Með þessum eiginleika fylgir ákveðin nákvæmni og glæsileiki sem hjálpar barni í þessu merki við að komast áfram og fá það sem það vill. Mjög erfitt er að mótmæla og rífast við vogina vegna þess hve sveigjanleg hún er. Þar sem þetta barn er samvinnufúst og í góðu jafnvægi þá á barnið mikið af vinum og allir leika sér saman í sátt og samlyndi. Vogin elskar að eyða tíma sínum með félögunum, því barn í vog er mikil félagsvera sem vill miklu frekar leika sér í hóp en að vera eitt að leika. Vogin er námsfús og fær góðar einkunnir út úr prófum. Þetta barn kemur ávallt vel fyrir og vandar sína framkomu. Vogin getur átt það til að vera hverflynd og óákveðin og þú skalt ekki hika við að taka ákvörðun fyrir barnið þegar það sýnir þessi einkenni. Það er nú bara þannig að barn í voginni hefur tilhneigingu til að setja sig í spor allra sem að málinu koma og því getur verið erfitt að taka réttu ákvörðunina. Svo sannarlega fæddur sáttasemjari. Að lokum, barn í voginni á það til að eiga erfitt með einbeitingu, svo hafðu auga með því til að halda því á réttri braut, sérstaklega þegar það er að lesa. Sólveig Birna er í fiskamerkinu!
Barn í fiskamerkinu er oft í eigin heimi, draumaheimi þar sem ævintýri og ímyndaðir vinir búa. Vildum við ekki öll vilja búa í slíkum heimi? Þetta er barn sem oft er misskilið og því finnst það útundan og skilur ekki af hverju öllum líður ekki eins og því sjálfu. Af þessari ástæða krefst barnið meiri athygli en börn fædd í öðrum merkjum. Barn í fiskamerkinu er listrænt og tónelskt að eðlisfari og elskar að búa til hluti sem gleðja aðra. Tvöföld ánægja ef það hefur foreldri með sér að búa til og skapa. Barn í fiskamerkinu er samúðarfullt og það er gott að gráta á öxlina á því. Þetta er tilfinningaríkt barn og það grætur einnig við öxl þína þegar það þarf að fá útrás. Þetta er barn sem lendir oft í því að vera strítt af bekkjarfélögum, því það er inn í sig og frekar feimið. Þú skalt því fylgjast vel með hvernig það fellur í hópinn og hvernig því gengur að eignast vini. Vegna þess að fiskurinn er í draumaheimi á hann til að slóra, svo ekki senda hann út í búð að kaupa mjólk ef þig vantar mjólkina á næstunni. Betra verkefni fyrir barn í fiskamerki er að leyfa honum að fegra heiminn. |
|
|
|
|
Annað:
Lilja Kristín Brynjar Ingi Guðmundur Jóhannes Gunnar Pálmi Arndís Ólafía Guðbjartur Þór ,Unnur Erna og Þorsteinn Óli Linda María og Daníel Ágúst Agnar Ingi og Björn Atli Gabríel Ingi Viktor Árniog Kristófer Logi Jóhann Gunnar Gunnar Ingi Kristín Natalia og Jóhanna Wiktoria Natan Breki Kíktu endilega á myndirnar mínar líka er alltaf að bæta við...
|
|
| Þú ert gestur nr. 28747 |