| Velkomin á síðuna okkar! |
| Elfa Dögg og Hlynur Yngvi |
|
Um okkur:
Elfa Dögg fæddist í Neskaupstað 26. september 2003.
Hún var 3920 gr. og 56,5 cm. Og það var varla liðinn dagur frá fæðingunni þegar hún var farin að lyfta hausnum og fylgjast með okkur og síðan hefur hún ekki stoppað - alltaf svo að flýta sér að fullorðnast. Mamma heitir Jóna Björg Guðmundsdóttir og pabbi Rúnar Reynisson. Svo er hún líka svo heppin að eiga þrjú eldri systkini til að líta upp til. Guðmundur Stefán, fæddur 1981, býr í Linköping í Svíþjóð, Linda Björk, fædd 1988, vinnur á Dvalarheimili aldraðra á Akureyri og Erna Rut er fædd 1994 og er duglega barnapían okkar. Þegar maður á svona mörg systkini þá er nú bara eðlilegt að maður venjist því að fá svolitla athygli og Elfa Dögg er svo sannarlega litla dekurprinsessan okkar. En þrátt fyrir það hefur tekist að halda henni á jörðinni og hún er ljúf og góð og hress stelpa. Hlynur Yngvi er svo ömmu- og afapjakkurinn. Hann fæddist á Landsspítalanum 15. mai 2003. Hann var 3375 gr. og 52 cm. Við fæðingu var hann með mikið fallega- rautt hár og hafa örugglega fá börn farið jafn oft í klippingu fyrstu árin. Mamma hans er Eva Björg Sigurðardóttir og býr í Grafarvoginum, en pabbi hans er Guðmundur Stefán og býr í Svíþjóð með Sabinu, kærustu sinni sem er þar í skóla. Hlynur er ótrúlega ljúfur og góður strákur en líka ótrúlega sprækur og skemmtilegur. Hann er alger tölvudellukall og var ekki orðinn gamall þegar hann var farinn að fara í tölvuleiki og tékka á tölvupóstinum hans afa síns - algerlega sjálfur og án þess að neinn vissi af! Það er alltaf fjör í kringum hann Hlyn okkar og við erum svo ánægð að fá að hafa hann hérna hjá okkur. |
|
|
|
Takk fyrir að kvitta í gestabókina okkar :) |
| Þú ert gestur nr. 12306 |