Jæja þá er loksins komið að því að mamma skrifi eitthvað hérna niður og leyfi fólki að fylgjast með okkur. Eins og allir vita kom ég í heiminn 31 október mamma þurfti bara að bíða eftir mér í 4 daga, þannig að ég verð 6 mánaða núna um mánaða mótin. Fæðingin gekk eins og í sögu og hefur allt gengið rosalega vel hjá okkur frá því við komum heim af spítalanum.

Ég stækka og dafna rosalega vel og mamma og pabbi gætu ekki verið ánægðari með mig!! Ég er rosalega dugleg að fara út að sofa í vagninn minn, fynnst það allveg æði.

Svo vorum við að byrja í ungbarna sundi, það fynnst mér ekkert smá gaman. Mamma heldur að ég verði algjör sund drottning þegar ég verð orðin stærri. Fynnst rosa gaman að fara í sund og hitta hina krakkana. Svo er ég líka rosa dugleg þegar ég fer í bað heima hjá mér. Þá busla ég allveg á fullu og mömmu fynnst það ótrúlega fyndið.

En í augnablikinu liggur litla snúlla með gubbupest. Greyið litla liggur eins og skata og heldur engu niðri og með hita. Þannig við erum bara tvær heima í dag. Frosti fór til Heiðu ömmu í pössun í dag en annars erum við að passa Frosta á daginn.

 Við erum rosalega góð saman frændsystkinin og eigum örugglega eftir að vera góðir vinir í framtíðinni. Þar sem að við búum líka hlið við hlið þannig það verður auðvelt að hittast og fara út að leika og svoleiðis. En þetta er nó í bili og mamma skal reyna að vera duglegri að skrifa hér héðan af sérstaklega fyrir fólkið sem býr í útlöndum og vill fylgjast með litlu sætu :o)

Bless í bili mamma og Ronja Lena

24.4.2008 | 18:29

Við viljum þakka fyrir allar kveðjurnar sem við erum búin að fá, Þetta er skrítin tilfining að sjá hve mörgum getur verið annt um svona lítið kríli sem veit ekkert hvað er í gangi... Æðisleg tilfining að vera orðið foreldri og bara takk aftur!

12.11.2007 | 00:41

Jæja þá gerist loksins eitthvað á þessari heimasíðu!!

Mamma var að finna snúruna fyrir myndavélina svo hún gæti sett inn 

nýjar bumbumyndir.

En annars er bara allt gott að frétta af okkur, allt gengur bara rosalega vel.

Mamma ennþá að vinna á fullu enda er engin ástæða fyrir öðru þar sem að hún er

svona líka dúndur hress :o)

Mér líður bara vel, ljósmóðirinn er ánægð með allt hjá okkur og ég er farin að

sparka alllveg á fullu að stundum er maginn á mömmu skoppandi í allar áttir...

En endilega verið dugleg að skrifa í gesta bókina það er svo gaman að lesa kveðjur!!

 

Mamma og skvísan. 

25.8.2007 | 11:51

Jæja þá erum við búin að fara í sónar og kom í ljós að ég er stelpu kríli

sem á að koma í heiminn 27 okt. en ekki 4 nóv eins og haldið var í fyrstuSmile

Mamma og Pabbi eru voða spent og fóru beint í kringluna og versluðu eitt bleikt dress...

En þanga til næst, heyrumst

Vilborg, Haffi og stelpuskott...

20.6.2007 | 15:07

Hæhæ ákvað að skrifa niður hérna smá og leyfa fólki að fylgjast með. Við fórum í skoðun núna á Þriðjudaginn og var rosa gaman, fengum að heyra hjartslátt og svoleiðis, en ljósmóðirinn var nú eitthvað að tala um að ég gæti jafnvel verið komin lengra því legið á mér væri komið svo hátt um miða við vikufjölda en það kemur allt saman í ljós 20. júní þegar við förum í sónar. Svo vildi hún líka meina að það gæti allveg eins verið út af hversu lár maður er í loftinu :o)

En við leyfum ykkur að fylgjast með í framtíðinni!

Vilborg, Haffi og Krílið....

31.5.2007 | 15:58



apríl '08 | nóvember '07 | ágúst '07 | júní '07 | maí '07