Hér er ég
Snorri Hrafn


Welcome to this Website / Herzlich willkommen in diese Website
My name is Snorri Hrafn / Mein name ist Snorri Hrafn


Um mig:



Foreldrar mínir eru Anna María og Elvar og ég á tvær eldri systur, Alexandra er á 15 ári og Rúna Maren á 9 ári.

Ég fæddist 26. ágúst 2007 kl. 19.22. Ég var 4130gr (tæpl. 17 merkur) og 53 cm.
Ég var skírður heima hjá mér af séra Einari Eyjólfssyni þann 8. september 2007. Það var á 6 ára afmælisdegi Rúnu Marenar systur minnar.

















Meyjan
23. Ágúst - 22. September
Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í
röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að
öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin
en oft á tíðum alvörugefin.
Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og
ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki
ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum
sig og hafa vit fyrir því.
Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er
oft mjög handlagin.
Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina
að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í
langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða
því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir
séu ekki nægilega vel gerðir.
Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar
tilverunnar og læra að trúa á eigin getu.
Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.


Þú ert gestur nr. 6154