Ég heiti Lúkas Blær og ég er 2 ára, og í endan mars verð ég stóri bróðir


Mamma og pabbi hafa ákveðið að loka hluta heimasíðunnar. Lykilorðið er nafnið hennar ömmu (mamma hans pabba). Svo geti þið líka sent mér mail á lukasblaer@internet.is


Ég kom í heiminn 29.6.2007 á afmælisdegi ömmu minnar og var hún svaka ánægð. Ég fæddist klukkan 12:33 og var 14 og 1/2 mörk eða 3.655 gr. og 53 cm. Mamma stóð sig eins og hetja. Við unnum þetta vel saman ég og mamma, og pabbi tók fullan þátt í að taka á móti mér og að hjálpa mömmu að koma mér í heiminn.


Mamma mín heitir Halla og pabbi minn Sævar. Þau eru rosalega stolt af mér og elska mig meira en allt. Þau eru alltaf af hvetja mig áfram til að reyna eitthvað nýtt og ég er alltaf að því. Enda taka þau örugglega milljón myndir af mér um leið og ég geri eitthvað nýtt og spennandi.

Ég er að fara að byrja á leikskóla og get ekki beðið. Ég get talað út í það óendanlega, eins og mamma, og er alltaf að verða betri og betri í því. Ég elska að vera úti að leika og hef einstaklega gaman að öllum bílum og sérstaklega trukkum og gröfum.

Ég er alltaf kátur en samt ákveðinn ungur drengur enda á þeim aldri :)

Lilypie - Personal pictureLilypie



Elsku Lúkas Blær

Áður en þú varst til þráðum við þig
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig
Áður en þú hafðir lifað eina stund
hefðum við fúslega dáið fyrir þig
þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til

Mamma og Pabbi




ELSKU BARN.

Ást mín verður með þér

hvenær sem þú þarfnast hennar.

Ást mín verður með þér

þegar gleðin ber þig ofurliði.

Ást mín verður með þér

þegar erfileikarnir eru að buga þig .

Ást mín verður með þér

þegar þú óttast lífið .

Ást mín verður með þér

í dag og alla daga.






Ég er lítill krabbi

22. Júní - 22 Júlí

Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar meiga búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli.

Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar.

Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er.

Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt
nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma
gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu.
Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar.

Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.




Hvað er kærleikur?

kærleikur er, hvert góðverk sem þú vinnur
kærleikur, er hvert bros sem þú gefur
kærleikur, er að faðma þann sem grætur
Kærleikur, er að hugga þann sem syrgir
kærleikur, er að gefa þeim sem þarfnast
kærleikur, er að bera umhyggju fyrir öllu sem lifir
kærleikur er að biðja fyrir öllum, góðum og slæmum
kærleikur, er að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra
kærleikur er að dæma ekki
kærleikur er ljósið sem býr í hjarta þínu..















/

Þú ert gestur nr. 8317