Ég fæddist þann 17 ágúst 2007 kl. 07:25 á sjúkrahúsinu á Akranesi. Ég var búin að láta bíða eftir mér í 9 daga áður en ég dreif mig af stað. Ég var stór og fín 4075gr og 52 cm. Hárið mitt er mjög dökkt, næstum svart og augun mín eru steingrá. Ég á stóra systir sem heitir Emma Karen og hún er 5 ára. Ég á líka stóran bróðir sem er 2 ára og heitir Ísak Ernir. Þeim finnst ég flottasta litla systir í heiminum :O)
Við búum öll saman á Hvammstanga!
Ég er svo dugleg og falleg stelpa sem að systkini mín og mamma og pabbi elska út af lífinu. Ég er svo stillt og góð stúlka með mikið jafnaðargeð:) En verð mikið reið þegar ég reiðist! Alltaf glöð, kát og brosmild og get aldrei verið kyrr... Ég ætla að drífa mig að stækka svo að ég geti hlaupið út um um allt og hamast með systkinum mínum :O)
Sendið póst til að fá lykilorðið á síðuna mína!
emmakaren.barnaland.is
isakernir.barnaland.is
Til þín Katla Ísold
frá mömmu og pabba
Áður en þú varðst til þráðum við þig
Áður en þú komst í heiminn elskaðum við þig
Áður en þú hafðir lifað eina stund
hefðum við fúslega dáið fyrir þig
þú ert kraftaverk lífsins
takk fyrir að vera til!
Til þín frá mömmu og pabba
Undir þínum áhrifum
ég er ofurseldur þér og uni vel
það er annað finnst mér allt mitt hugarþel
sem ég horfi á þig sofa finnst mér að
það brotið nú í lífi mínu blað
ég beðið nokkuð lengi eftir þér
svo ég segi það hreint alveg eins og er
og ég hugsa alla daga til þín heitt
alveg ótrúlegt hvað allt er orðið breytt
það er varla nokkur heppnari en ég
þessi tilfinning er ævintýraleg
ég er undir þínum áhrifum í dag
og verð áfram enginn vafi er um það
þú ert nátturunnar undurfagra smíð
verður hörpu minnar strengur alla tíð
það er ekki nokkur sem að brosir eins og þú
og ég lofa gjafir lífsins fyrr og nú
þú hefur löngu sigrað mig
takmarkalaust ég trúi á þig
mitt allt er þitt og verður
um ókominn ár
ég mun elska þig allt fram að hinstu stund
uns ég held um síð á feðra minna fund
en að líkum hef ég tímann fyrir mér
og ég hlakka til að eyða honum með þér