Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Heiðrún Lóa
Heiðrún Lóa
Viktoría saknaði svo Lóu sinnar svo hún var að skoða þessar fínu myndir af henni!
Silvia og Viktoría Katrín | 0 | 17.2.2012 13:40:29 #

Jól 2011

0 | 0 | 28.11.2011 00:12:31 #

Haust 2011

0 | 0 | 28.11.2011 00:12:21 #

Sumar 2011

0 | 0 | 9.8.2011 00:23:02 #

Vor 2011

0 | 0 | 24.4.2011 19:55:54 #
Til hamingju með afmælið elsku fallega stelpan mín :)
Steinunn | 0 | 23.4.2011 10:07:52 #

Frá áramótum 2011

0 | 0 | 6.2.2011 16:22:21 #

Jól 2010

0 | 0 | 19.12.2010 21:06:39 #

Pabbi og mamma fóru í foreldraviðtal í leikskólanum og það var mjög forvitnilegt.  Ég er voða dugleg, sérstaklega að syngja.  Það eru allir í leikskólanum gáttaðir yfir því hvað ég er dugleg að syngja og kann marga söngtexta.  Ég get setið tímunum saman og sungið hvert lagið á fætur öðru.  Það er líka gaman að klappa og dansa með.  Litla söngmúsin:)

Fyrir nokrum vikum kom eitthvert tímabil sem einhver púki hljóp í mig úti á lóð.  Þá hrekkti ég alla krakkana, tók af einhverjum húfuna, ýtti einhverjum og lamdi þann næsta svo ég skildi eftir mig slóð af grenjandi krökkum.  Allt í einu hætti ég þessu þó en núna bera sko allir krakkarnir virðingu fyrir mér og enginn stríðir mér.  Núna er ég byrjuð í smá hlutverkaleikum með jafnöldrunum svo allt gengur vel.

Ég er líka mjög dugleg að borða sjálf og það má ekkert hjálpa til (ekkert sem pabbi og mamma vissu ekki fyrir) en ég er líka mjög dugleg að siða hina krakkana með setningum á við þessa:  Sittu á stólnum eða Ekki leika með matinn, bara borða hann.  Þegar litla daman er hins vegar spurð hvort hún ætli ekki að borða sinn mat er svarið bara "Nei."

Það eru bara allir voða ánægðir með mig:)

0 | 19.10.2010 00:13:23 #

Haust 2010

0 | 0 | 18.10.2010 18:47:36 #
07.09.2010
Árni Jökull og Heiðrún Lóa voru í einhverjum eltingaleik eins og venjulega á kvöldin. Árni Jökull rak upp öskur "Það er skrímsli að ráðast á mig." Þá heyrist í Heiðrúnu Lóu "Nei, þetta er Lóa."
0 | 7.9.2010 21:02:48 #
Je minn eini dúllan litla! Og þau bæði yndisleg. Gaman að sjá þau, ótrúlegt hvað Árni Jökull er orðinn stór! Kær kveðja, Gunnþóra
Gunnþóra | 0 | 18.8.2010 21:08:31 #

Sumar 2010

0 | 0 | 27.6.2010 21:09:00 #

Þá er maður bara orðinn 2 ára og býsna stór.  Heiðrún Lóa er farin að tala á fullu þó stundum skilji pabbi og mamma ekki orð en það er auka atriði.  Annars er litla daman býsna skýr í kollinum.  Hún er farin að missa eitthvað sniðugt og skemmtilegt útúr sér.  Um daginn sagði hún við bróður sinn (á meðan hún skoðaði andlitið á honum) "Þetta er nú skrýtinn nebbi." 

það gengur ágætlega með gleraugun.  Að vísu voru glerin orðin aðeins rispuð eftir mánuð og gúmmiið dottið af spöngunum og þau voru orðin rammskökk en núna er búið að setja gúmmi sem nær vel aftur fyrir eyrun svo gleraugun sitja kyrr á nefinu.  Við þurfum bara að fara oft og láta stilla þau.  Skottan vill vera með þau því hún sér auðvitað mun betur með þeim. 

Hún er enn sísyngjandi og dansandi.  Hún er alltaf að syngja ný og ný lög og læra fleiri og fleiri orð í textunum.  Dugleg stelpa.

0 | 31.5.2010 14:00:14 #

Apríl-maí 2010

0 | 0 | 30.5.2010 12:51:57 #

Febrúar-mars 2010

0 | 0 | 15.3.2010 12:02:03 #

Nýjasta nýtt er að litla daman þarf gleraugu.  Við og leikskólinn vorum farin að taka eftir því undanfarnar vikur að hún var stundum svolítið tileygð og gjörn á að loka öðru auganu.  Við hringdum í Elínborgu augnlækni og fengum tíma samdægurs.  Vanalega er 3-4  mánaða bið hjá henni en það losnaði akkúrat tími þennan sama dag.  Heppin vorum við:)  Það kemur allavega í ljós að músin er þónokkuð fjarsýn með +3 og 3,5. Þarsem hún sér svona illa en betur með öðru auganu var hún farin að beita því betra meira og hvíla hitt.  Hún var því að byrja að þróa með sér latt auga sem með tímanum myndi leiða til þess að verra augað yrði ónothæft.  Þetta lagast þó vonandi með gleraugunum... ef hún fæst til að ganga með þau.  Maður er nefnilega býsna ákveðinn á þessum aldri. það verður voða krúttlegt að sjá hana með gleraugu en það er allt í vinnslu að verða okkur úti um slíkan grip.  Við munum væntanlega setja inn myndir þegar þar að kemur.

0 | 9.3.2010 18:01:33 #

Janúar 2010

0 | 0 | 29.1.2010 18:45:25 #
Flottar myndir af flottum systkinum :) Kveðja Sigga
Sigríður Björk | 0 | 13.1.2010 21:11:33 #

Það gengur allt vel hjá Heiðrúnu Lóu.  Aðlögun í leikskólanum gekk vel í október og henni finnst  gaman að dansa, syngja og bralla eitthvað með krökkunum.  Það er líka toppurinn á tilverunni að fá að vera úti á leiksvæðinu að róla eða moka.  Maður er svoddan útipúki:)  Hún stækkar og stækkar og farin að tala heilmikið.  Annað hvert orð undanfarnar vikur hefur auðvitað verli "lóla, lóla..."  Það er eitthvað jóla út um allt.  Hún hefur semsagt haft það mjög gott um jólin.

0 | 13.1.2010 15:36:43 #