| Velkominn á heimasíðuna okkar |
| Við erum systkinin Patrekur Breiðfjörð og Guðrún Lilja |
|
|
Um mig:
Patrekur Breiðfjörð kom í heimin 27/9/07 kl 17:36 og var 15 merkur og 52 cm.Patrekur er með svaka lubba á höfðinu og það er frekar skolhært, en eins og margt þá getur liturinn breyst. Patrekur er svakalega rólegur drengur en ég get alveg látið heyra í mér ef ég þarf á því að halda. Svo er það Guðrún Lilja sem kom í heiminn 21. maí 2010 kl 01:26. Hún fæddist líka með svaka lubba nema sá lubbi var svartur. Henni finnst voða gott að láta halda á sér og kúra hún lætur líka alveg heyra í sér ef henni vantar eitthvað.
Mamma okkar heitir Bjarney Högnadóttir og er fædd 1983 og vinnur sem snyrtifræðingur. Pabbi okkar heitir Eyþór Reynisson og er fæddur 1982 og vinnur sem rafyrki. Amma og afi í mömmu minnar ætt heita Högni Guðnson og Kristín Bjarnadóttir og þau eiga heima úti í sveit og bærinn heitir Laxárdalur og er í Gnúpverjahreppi, okkur finnst mjög gaman þegar ég fer þangað í heimsókn. En amma okkar og afi í pabba ætt heita Elín María Vilbergsdóttir og Reynir Sigurðsson og svo eigum við annan afa sem er eiginlega hálf afi okkar og hann heitir Sæmundur Halldórsson en hann er maður ömmu. Þau eiga öll heima í Grindavík þannig að við fáum að hitta þau mikið, sem er mjög gaman. |
|
|
|
Gullkorn * Ömmur eru englar í dulargervi. * Ást er gjöf sem þú getur alltaf gefið. * Að eignast vin tekur andatak en að vera vinur tekur alla ævi. * Verið góð við börnin ykkar- því þau koma til mað að velja handa ykkur elliheimili! * Fjölskylda og vinir gera hús að heimili. * Húsreglur: 1 mamma ræður 2 sjá reglu nr.1 * Segðu sannleikan þá er minna að muna. * Guð getur ekki varið allstaðar- þess vegna skapaði hann ömmu og afa. * Ég föndra- ég er skapandi.... ætlastu til að ég sé snyrtilegur líka. * Heimils aðstoð óskast..... allir á heimilinu geta sótt um. * Mamma er þreytt... faðmlag myndi hjálpa. * Það besta sem þú gefur börnum þínum er tími. * Að kenna er að læra tvisvar. VOGIN 23. september - 23. október Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: ?Hvað finnst þér?? Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína. |
| Þú ert gestur nr. 21821 |