Lykilorðið er nafnið á mömmunni


Þessa heimasíðu eiga systkinin Sara Björk Logadóttir og Logi Örn Logason

Sara Björk



Sara Björk fæddist laugardaginn 8. mars 2008 klukkan 01:10 á Hospital de Cabúenes í borginni Gijon á Spáni eftir 38 vikna og 1 dags meðgöngu. Hún var 3210 gr eða 13 merkur og 51 cm. Það tók hana 13 klukkutíma og 15 mínútur að láta sjá sig. Hún var nefnd 16. mars 2008 og var svo skírð 8. júní 2008.


babies


Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars

Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.


Logi Örn




Logi Örn fæddist laugardaginn 10.október 2009 klukkan 02:54 á Landspítalanum í Reykjavík í Hreiðrinu eftir 39 vikna meðgöngu. Hann var 3790 gr eða 15 merkur og 50,5 cm. Það tók hann 9 klukkutíma að láta sjá sig. Hann var nefndur 13. október 2009.


baby growth


Vogin
23. september- 23. október

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: “Hvað finnst þér?” Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.




Þú ert gestur nr. 10340