Ég heiti Dagný Guðmunda Sigurðardóttir og er 2 ára skvísa



Ég fæddist þann 17. september 2007 og var 17 merkur og 53 sentimetrar.
Foreldrar mínir heita Guðbjörg Guðjónsdóttir og Sigurður Gunnarsson.
Við búum á Selfossi.



Ég er alveg yndislegt barn. Stækka og stækka og er algjör bjútíbolla, hress og skemmtileg. Mamma fann tvær tennur þegar ég var rétt að verða fjögurra mánaða og í kjölfarið fór ég að fá graut tvisvar á dag enda algjört matargat. Ég er farin að segja nokkur orð. Fyrst orðið mitt var ,,datt" og það næsta ,,týnd". Ég geri líka alls konar kúnstir og uppáhalds dótið mitt er skyrtuvasinn hjá afa Gauja og afa Gunnari.
Við fjölskyldan erum flutt í húsið okkar og nú hef ég alveg rosalegt pláss til að bruna um á hjólagrindinni minni. Mamma er byrjuð að vinna og ég eyði dögunum að leika við ömmu mína á meðan.

Ég byrjaði í leikskóla í ágúst 2009. Mér finnst það æðislega gaman, ég er búin að læra fullt af nýjum lögum og er sí syngjandi og raulandi. Það er orðið þónokkuð síðan ég varð altalandi og er byrjuð að pæla í öllum sköpuðum hlutum.

Annars er það helst að frétta af mér að ég verð stóra systir í mars 2010.



Myndaalbúmið er læst. Lykilorðið: Hvað er amma á Selfossi kölluð?











Þú ert gestur nr. 6053