| Velkomin á síðuna mína! |
| Ég heiti Óliver Ísak og er flottastur! |
|
|
Um mig:
Ég fæddist 11. febrúar 2008 klukkan 18.59, keisarastrákur eftir fæðingu sem bara gekk engann veginn.
Ég var 20 merkur og 57 cm, alveg risastór, og tveim vikum fyrir tímann. Ég fæddist með svart hár og svona fallega móeygður. En þess er beðið með eftirvæntingu hvort ég verði brúneygður eins og pabbi og tvö eldri systkin mín, eða ég verði græn/blá/gráeygður eins og mamma mín. Ég er ofsalega rólegur og góður og yndislegur en verð mjög óþolinmóður þegar ég er svangur. Ég á þrjú systkini sem elska mig svo mikið og eru dugleg að tala við mig. Þau heita Björgvin Axel, 17 ára, Daníel Jóhann, 11 ára og Inga Lára, 4ra ára. Mamma er heima að passa mig og knúsa mig alveg þar til 1. febrúar 2009. Pabbi minn ætlar þá að taka við að passa og knúsa mig þegar mamma fer að vinna. Pabbi minn heitir Gunnar Rúnar og mamma mín heitir Elísabet. Þau eru bæði fædd '74.
|
|
|
Skoðið líka síður frábæru systkina minna Björgvin Axel Daníel Jóhann Inga Lára
|
| Þú ert gestur nr. 3347 |