Velkomin á heimasíðuna mína.
Ég heiti Sigurlaug Unnur Stefánsdóttir


Um mig:
Ég er lítil snúlla sem kom í heiminn þann 10 febrúar 2008 og er ég fyrsta barn foreldra minna. Mamma mín heitir Halldóra Ósk og pabbi minn heitir Stefán Sævar og eru þau bæði 84 módel.


MAMMA ER KONAN.....

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, tildæmis að vera í hreinum fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með
útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðjast með manni þegar það er gaman að vera til.

MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!!


TIL PABBA MÍNS.

Ég elska þig svo mikið af því að þú elskar mig, mér finnst þú frábær og æðislegur og þú verður það alltaf. Ég elska þig vegna þess að þú vinnur svo mikið til að eiga mat handa okkur og þak yfir höfuðið. Ég elska þig svo mikið vegna þess að þú skammar mig aldrei og gefur mér nammi. Ég elska þig vegna þess að þú ert PABBI MINN!!!!. Faðir er sá sem veldur því að þér finnst þú ómissandi þótt engum öðrum finnist það.




Annað:
Vatnsberinn

20. Janúar - 18. Febrúar


Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem

það er í fataburði, hugsun eða hegðun.

Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir

snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna.

Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram

og er oft á tíðum mjög dramatískur.

Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða

bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt.

Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum.

Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum

fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum.

Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja

því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og

skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin

geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt.

Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög

tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.
Þú ert gestur nr. 5866