Ég kom í þennan heim þann 21. júlí 1998. Ég var sko ekkert að flýta mér, kom heilum 10 dögum of seint. Ég var alveg heilbrigð. Ég var með mikið hár og dökk blá augu sem eru orðin hálf blá grá í dag. Adda amma og Hrönn frænka mín voru viðstaddar, Hrönn átti einmitt afmæli þennan dag svo að hún fékk mig í afmælisgjöf. Ég var algjört draumabarn, fór að sofa um tíu á kvöldin og vaknaði sjö á morgnana, vaknaði ekkert á milli en ég var mjög fjörug þegar ég var vakandi.

Mamma mín heitir K.Svava. Mamma mömmu minnar er hún Adda amma og pabbi mömmu minnar er Einar afi, ég elska þau mjög mikið. Mamma mín á eina systur en það er hún Anna Sigga og hún á hann Guðmund Einar sem er guðsonur mömmu og litli kúturinn minn. :)

Pabbi minn heitir Ottó og konan hans heitir Rannveig og þau eiga litla (stóra) bróður minn, hann Arngrím og litlu systur mína, hana Arnhildi. Mamma pabba er hún Hanna amma og pabbi pabba er hann Rúnar afi og ég elska þau líka mjög mikið. Pabbi minn á svo tvo bræður, þá Hjört og Arnór :)

Ekki má ég gleyma hundinum mínum honum Nóa sem ég elska útaf lífinu og svo á ég tvær kisur heima hjá mömmu, Rómeó og Ísold!


















Í dag er ég næstum 11 ára gömul, stunda fimleika og fótbolta, er að læra á fiðlu, hef rosalega gaman af tónlist, ferðalögum og elska að eyða tíma með vinum og ættingjum :) Svo veit ég allt um hákarla ;)





Nafnið mitt Talía Fönn

Thalía
Thalia var grísk leiklistargyðja, dóttir Seifs og Mnemosyne,
gríska þýðingin af nafninu er að blómstra.

Fönn
Nafn þetta merkir snjór.
Nafn þetta kemur fyrir í Fornaldarsögum Norðurlanda
en dætur Snæs konungs hétu Mjöll, Drífa og Fönn.






Arngrímur bróðir & Arnhildur systir



Litli Einar Knúsímús



Hrannar Marel frændi



Gabríela Birta frænka



Elva vinkona



Jóna Vigdís vinkona



Dagbjört Heiða vinkona



Borgar Ben vinur



Telma Lovísa vinkona



Karítas Bláey



systkinin í Valsheiði






Þú getur líka
sent mér póst

Kveðja

Talía Fönn






Þú ert gestur nr. 57731