Jæja kannski kominn tími á fréttir...
Erum búin að vera í smá svona "ekkihugsaumþetta" pakka undanfarið svo ég hef lítið bloggað. Við fengum ekki samþykkið frá sýslumanni. Er að reyna að semja mótmælabréf til að senda til baka og svo sjáum við til hvað gerist.
Hún heldur áfram að nota þessi sömu rök að við séum ekki nógu vel launuð.
Mér finnst samt magnað að við teljumst ekki eiga nóg þegar ég þekki fólk sem á 3 börn og er á lægri launum en við. Samt hafa þau það bara fínt...
Auk þess miðar hún alltaf við stöðu okkar um áramót sem var samt mun betri þegar við sendum henni ný gögn en hún minnist ekki á það í bréfi sínu til nefndarinnar... Erum líka mjög ósátt við að nefndin hafi ekki samband við umsækjendur.
En ég skrifa frekari fréttir fljótlega...
Knús á línuna og takk fyrir stuðninginn
Margrét
Það eru engar fréttir ennþá, við búumst ekki við að heyra neitt fyrr en á síðustu stundu bara. Ætli það séu ekki allir í sumarfríi...
Við erum búin að hafa það gott í fríinu okkar samt. Búin að njóta lífsins uppi í bústað og kíktum líka aðeins í bústað með systur minni og familí.
Svo fórum við norður síðustu helgi, gistum í Hömrum, heimsóttum Elísu vinkonu en náðum því miður ekki að heimsækja fleiri. Planið var að kíkja á Húsavík á hina Elísu en það verður bara næst. Ég var að greiða brúðargreiðslu á Akureyri á laugardeginum og það gekk bara vel. Svo pössuðum við krkkana á meðan Fribb og Gúst fóru í brúðkaupið.
Við fórum svo í Ásbyrgi í 30 stiga hita og sól...bara næs. Kíktum svo á Dettifoss og Dimmuborgir. Keyrðum s.s. frekar mikið sem er kannski ekki sniðugt þegar maður er ekki með loftkælingu í bílnum...hehe
En svo er bara vinnan í næstu viku...sælan að verða búin í bili. Erum samt búin að gera margt skemmtilegt og laga þvottahúsið svolítið og svona. Hlakka nú alveg pínu til að fara í vinnuna og knúsa krílin mín ;)
Meira seinna
Margrét "ferðamaður"
Ég gleymdi alveg að skrifa hér nýjustu fréttir...
Bréfið er s.s. loksins komið til okkar og nefndarinnar væntanlega. Við höfum að vísu ekkert heyrt frá nefndinni ennþá. Við erum bara svona að undirbúa okkur fyrir það að hitta þessa nefnd, (sem við höldum að við eigum rétt á) og útskýra okkar mál og segja okkar hlið á málinu. En nefndin hefur frest til 20. ágúst til að skila svari til sýslumanns og við vitum svo ekki hvað sýslumaður hefur þá langan tíma til að ákveða sig...
En við vonum bara að þetta fari að taka enda og að við förum að fá einhver svör. Þetta er orðin alveg óþolandi löng bið og hún tekur á.
En ég á víst að vera að læra fyrir próf (er að taka líffæra- og lífeðlisfræði áfanga) svo ég skrifa meira seinna.
Takk fyrir allar fallegu kveðjurnar, peppin, knúsin og allt. Þið eruð yndisleg ;*
KV Margrét skólastelpa
Kannski kominn tími á fréttir...
Ég hef ekki verið í miklu stuði til að ræða þessi mál undanfarið svo ég hef ekki verið dugleg að skrifa neitt hér eða annarsstaðar. En staðan er þannig að við vitum ekki neitt. Sýslumaður sagðist ætla að senda málið áfram 4. maí en bréfið virðist ekki enn vera farið af stað. Svo við erum bara enn í lausu lofti og enn að bíða... En við gefumst ekkert upp, verðum bara að taka þessu, það hlýtur bara að vera að þetta eigi að vera svona svo við fáum rétta barnið eða eitthvað.
Kristinn í ÍÆ var að koma frá Kólumbíu og var með mikið af spennandi og góðum fréttum svo við erum mjög bjartsýn á framhaldið eftir að við komumst yfir þennan hjall en þangað til verðum við bara að bíða.
Veit ekki hvað ég get sagt meira án þess að vera pirruð eða leiðinleg... örugglega allir löngu búnir að gefast upp á að lesa þessa síðu :P
En ég skrifa samt meira seinna
Kv Margrét "heimsmeistari í bið 2010"
Meiri bið....
Fengum loksins svar frá sýslumanni í gær. Hún er búin að senda okkar mál til umsagnar ættleiðingarnefndar...
Þetta ætlar að verða mjög erfið fæðing hjá okkur greinilega... ég veit svosem ekki hvað ég á að segja meira, er ekki í neinu skrifstuði þessa dagana.
Læt vita þegar ég heyri e-ð meira
Kv. Margrét "þreytta"
Takk fyrir allar kveðjurnar og knúsin, þið eruð yndisleg.
Í dag sendum við sýslumanni fleiri gögn og vonum að þau nægi til að fá samþykki. Útlitið er ekki bjart miðað við samtal okkar við hana en við vonum bara það besta. Annars verður bara að berjast. Þetta er ofsalega erfitt og tekur ansi mikið á andlega að lifa í þessari óvissu um framtíðina. Okkur finnst við alveg búin að ganga í gegnum nóg og finnst að þetta mætti fara að ganga svolítið hraðar og betur fyrir sig en þetta hefur víst allt sinn gang.
Ég læt allavega vita um leið og við fréttum eitthvað.
KV
Margrét
Það eru engar nýjar fréttir, sýslumaðurinn er enn með stæla og við þurfum að reyna að sanna fyrir henni að við höfum efni á að eiga barn... Við þurfum s.s. að skila inn nýrri skattaskýrslu, launaseðlum, bankayfirlitum og leigusamningi svo hún geti ákveðið sig. Við teljum það besta í stöðunni núna að gera eins og hún segir og við verðum þá bara að kæra úrskurðinn ef henni finnst við ekki eiga nógu mikla peninga. En hljómurinn í henni var þannig að okkur finnst hún vera búin að ákveða sinn úrskurð og hann er okkur ekki í hag
Ég er bara ógeðslega reið og pirruð yfir þessu og veit ekki hvernig ég á að haga mér. Mér finnst einhvernveginn eins og þetta sé bara ekki meant to be. Kannski bara eigum við ekkert að eignast barn...
Kv
Margrét
Og fyrir hvert litla skref sem við tökum áfram rennum við 2 afturábak!!!
Við gáfumst upp á að bíða eftir svörum í dag og hringdum í sýslumanninn. Og fengum þau svör að hún ætlaði ekki að gefa út forsamþykki fyrr en eftir að skattaskýrslan 2010 væri komin!!! Það gæti þýtt að við fáum ekki samþykki fyrr en í águst, tæpu ári eftir að við byrjuðum að vinna í umsókninni af alvöru. Þetta á að taka 3-6 mánuði...
Hún fór að röfla um það að það gætu nú allir misst vinnuna og að við værum nú bara nýkomin úr námi og að þetta kostaði svo mikið af við hefðum örugglega ekkert efni á þessu. Ferðin út er jú svo dýr!!! Hélt konan í alvöru að við gerðum okkur ekki grein fyrir þessu? Við gætum líka alveg verið dauð á morgun en það bara kemur henni ekki rass við því hún á að veita samþykkið á þeim forsendum sem gilda í dag...ekki á morgun.
Hún virðist heldur ekki gera sér grein fyrir því að biðtíminn er langur og er því miður að lengjast eins og staðan er í dag. Biðtíminn er víst kominn í 4 ár skv útreikningum af slúðurlistunum (sem eru svosem ekki 100% en samt gefa ágætis mynd) Við höfum nú alveg smá tíma til að koma okkur upp sjóði til að borga þetta. Hún setti líka út á það að við séum í leiguhúsnæði en við erum ekkert þau fyrstu. Auk þess er það bara ekkert verra í dag. Við erum allavega skuldlaus svona fyrir utan námslán og smá yfirdrátt. Við verðum bara að vinna lottóið til að kerlan verði ánægð held ég svei mér þá. Þetta sem er í gangi núna hljómar eins og að ættleiðingar séu á leiðinni að verða lúxus fyrir efnað fólk á Íslandi, því miður.
Hún spurði allskonar fáránlegra spurninga og kom með allskonar rök, t.d. að í Kína þurfi maður að eiga svo og svo miklr eignir....??? Hvað kemur það okkur við sem erum að sækja um í Kólumbíu? Þar eru ekki þessar kröfur. En þetta er allt í vinnslu og við erum búin að tala við lögfræðing sem segir þetta ekki löglegt og að hún hafi engin völd til að ákveða þetta og krefja okkur um gögn sem eru ekki til.
En þetta setur stórt strik í reikninginn og tefur okkur enn meira í þessu öllu saman og akkúrat í augnablikinu líður mér eins og að þetta sé bara fjarlægur draumur sem eigi ekkert eftir að rætast. Nú er bara að biðja um kraftaverk í Kólumbíu og vonandi reddast málin okkar hérna heima. Við verðum bara að berjast...
KV Margrét "vonlitla og reiða"
Einu skrefi nær....
Barnavernd er loksins búin að samþykkja okkur og búin að senda þetta aftur til frú sýslu svo núna er bara að bíða og vona að hún sé í spariskapinu þessa dagana
Það er ótrúlegt hvað þessi litlu skref eru mikill léttir en þetta er víst ekki búið ennþá og það er að sjálfsögðu ekkert öruggt að þetta gangi allt smurt í gegn þó við vonum auðvitað það besta.
Annars er bara fínt að frétta. Það er brjáluð danshelgi hjá okkur núna. Erum með gestakennara frá Svíþjóð núna sem urðu í 2. sæti á heimsmeistaramótinu. Marina er hér bara um helgina að kenna okkur stelpunum lady styling og Ibi er að kenna okkur á 3. stigs námskeiðinu og núna um helgina er hann að kenna strákunum að hreyfa sig. Annars er ég ekki í góðu standi því ég datt í gærkvöldi....eða öllu heldur var ég felld af ástkærum eiginmanni mínum í rómantískum snjóslagsmálum ;P Ég lenti á bakinu og skall með hnakkann í götuna og fékk frekar mikinn slink (hmmm hvernig er þetta eiginlega skrifað?) á hálsinn og er frekar aum í hálsinum svo það er ekki svo gott að dansa. En ég dansaði í 2 tíma áðan, dansa svo í 3 tíma á morgun og svo er salsaball um kvöldið. Á sunnudag er svo aftur 2 tíma törn. Svo það er nóg að gera hjá okkur í dansinum eins og vanalega.
Og já ef ykkur langar að kíkja á salsaball þá er það á morgun (laugardag) á Thorvaldsen. Endilega kíkið og prófið eða bara komið og horfið á ;)
Knús á línuna
Margrét "salsabrjálæðingur"
Jæja ég er aðeins orðin rólegri, pirringurinn eitthvað að minnka en óþolinmæðin ekki...
Við erum búin að hitta Kólumbíuhópinn tvisvar núna á nokkrum dögum og það er rosalega gott að spjalla við fólk sem er í svipuðum sporum og veit aðeins meira en við. Við fórum á fund hjá ÍÆ um daginn og því miður þá skildi gamli starfsmaðurinn allt eftir í rugli, það eru engar vinnureglur til skráðar um Kólumbíu umsóknirnar svo þetta er allt svolítið maus. Við erum öll að hjálpast að við að koma upp ferlalýsingu og svona til að auðvelda þetta.
Við komumst svo að því um helgina að Guðrún hafði klikkað á því að láta okkur vita að það þyrftu að vera meðmælendur í umsögninni frá félagsráðgjafanum svo það var eiginlega lán í óláni að þau frestuðu málinu okkar því við náðum að bæta þessu inn í umsögnina áður en þau taka málið okkar aftur fyrir. Það verður því miður ekki fyrr en á þriðjudaginn. En maður þarf víst að halda áfram að vera þolinmóður, eða allavega reyna. Vonandi gengur þetta bara upp í þetta skiptið og við vonum að það verði ekki meiri tafir á þessu þó við eigum alveg eins von á því útaf þessu rugli á skrifstofunni. En þetta hlýtur að takast á endanum.
Ég bara get ekki beðið eftir að koma þessari blessuðu umsókn út og fá vonandi samþykki þar, það verður góð tilfinning.
Elsku frænka mín hún Sveina, lést í vikunni og við erum ofsalega sorgmædd yfir því en samt þakklát fyrir að hún fái hvíldina góðu hjá besta vini sínum. Hún var ömmusystir mín en var eiginlega líka hálfgerð amma okkar allra, yndisleg kona og hennar verður sko sárt saknað.
En jæja, ég læt þetta duga í bili og læt vita hvernig þetta fer allt saman. Vonandi verða næstu fréttir góðar fréttir.
Knús á línuna
Margrét
Ansi ætlar þetta eitthvað að ganga hægt hjá okkur. Ég er fröken pirruð í dag. Málið okkar átti að fara fyrir nefnd síðasta þriðjudag og ráðgjafinn okkar mjög bjartsýnn á að það væri allt samþykkt. Svo leið dagurinn og annar og annar og við heyrum ekkert frá þeim svo við ákváðum að hringja í dag og kanna hvernig þetta hefði nú farið. Heyrðu, þá var málinu okkar frestað og við ekkert látin vita. Ráðgjafinn okkar ekki heldur, hún frétti þetta bara á ganginum. Og ástæða.... "þið voruð ekki með nægar tekjur 2008" Ráðgjafinn segir að það sé augljóst að þeu hafi ekki nennt að lesa skýrsluna því það kemur fram í henni að við vorum í námi og þ.a.l. eiginlega ekki með neinar tekjur. Við tókum þetta meira að segja sérstaklega fram í athugasemdum. Svo nú þurfum við að skila inn launaseðlum fyrir nóv og des 2009 og málið verður þá líklega ekki tekið fyrir fyrr en 23. feb. Samt sem áður hefur barnavernd bara frest til 19. til að skila þessu af sér til sýslumanns! Ég er alveg ógeðslega reið og pirruð yfir þessum vinnubrögðum og líður bara ferlega illa í hjartanu eitthvað. Ég veit að flestum finnst 2 vikur ekkert mjög langur tími en hver einasti dagur skiptir okkur máli. Fólk skilur það líklega ekki nema ganga í gegnum þetta sjálft.
En jæja, nenni ekki að skrifa meira, er of pirruð til þess og er hrædd um að láta e-ð út úr mér sem ég á eftir að sjá eftir.
Margrét "bálreiða"
Tíminn líður hægt og hratt til skiptis...mér finnst hann líða hægt en svo þegar ég kíki hingað og sé hvað er langt síðan ég skrifaði þá sé ég að hann líður hraðar en ég hélt...
Af okkur er ekki mikið að frétta, tölvan mín er dáin svo það er ástæðan fyrir því hvað ég er lítið að skrifa og svona en vonandi getiði fyrirgefið það. Skýrslan okkar hjá félagsþjónustunni er tilbúin og hún fer fyrir nefndina núna 9. febrúar og skv. ráðgjafanum okkar eru nú allar líkur á að hún verði samþykkt. Svo á hún eftir að fara til sýslumanns sem ákveður hvort að við fáum samþykki eða ekki. Við vonum bara það besta... Svo hefst vinnan við umsóknina sjálfa og það gæti nú tekið einhvern tíma. Það þarf að senda allt í þýðingu yfir á ensku og svo verður þetta þýtt yfir á spænsku úti. Sem betur fer þarf ekki lengur að senda þetta í stimplun til Svíþjóðar núna eins og þurfti einu sinni... Sparar manni bæði tíma og peninga. Ótrúlegt hvað er hægt að plokka af manni krónurnar með allskonar smáatriðum, hvert einasta skjal kostar eitthvað og stimplanir og þess háttar. Svo bætist við tvöfaldur þýðingarkostnaður, lögfræðikostnaður úti (o.fl. sem er í dollurum svo gengið má alveg fara að skána eitthvað takk fyrir pent...), biðlistagjöldin heima o.s.frv. En þetta verður allt þess virði á endanum, það er það sem heldur manni við efnið. En þetta er ansi blóðugt. Sem betur fer er ennþá hægt að fá lánað í bankanum ;P
Ég sá á síðu hjá einni sem á stelpu frá Kólumbíu að þeir eru núna að afgreiða umsóknir síðan í maí 2006 svo það er nú alveg hellingur að gerast þar og við erum að vona að það haldi áfram að ganga vel hjá þeim svo biðin okkar verði ekki mjög löng. Við vonum það besta en erum undirbúin fyrir það versta, held að það sé best þannig, þá verða vonbrigðin allavega ekki eins mikil ef það hægist á.
En já íbúðin sem við fáum er í Bryggjuhverfinu, alveg við sjóinn með rosa fínu útsýni og svona. Hún er á 2 hæðum og neðri hæðin er geymsla og svo um 35 fm rými sem við erum búin að eyrnamerkja sem danssal ;P Ekki slæmt það...Efri hæðin er svo stór stofa og eldhús, þvottahús/búr, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Það eru tvennar svalir líka, held að þetta verði yndislegt í sumar. Það verða pottþétt grillveislur hjá okkur ;P Við erum bara orðin rosa spennt að flytja þangað.
Er að hugsa um að fara að gera eitthvað af viti, prjóna kannski, ég fékk fullt af létt lopa á tilboði í dag og karlinn var með og skipaði mér að kaupa fullt (vá hvað ég er heppin með mann ;P) svo ég get prjónað eins og vindurinn núna. Er búin að gera eina hjálmhúfu sem endaði reyndar alltof stór svo hún passar á mig ;P Svo gerði ég álfahúfu handa Þorra Stefáni og er núna að gera eyrnaskjól á sjálfa mig, smá tilraunaverkefni svona uppúr mér bara. Ætla að skella myndum af handavinnunni í eitt albúm hérna til að monta mig ;P
Knús á línuna
Margrét "prjónamaskína"
Ansi langt síðan síðast.
En það er voðalega lítið að frétta svosem. Erum að bíða eftir að heyra aftur frá félagsráðgjafanum til að klára það dæmi. Erum búin með öll próf hjá sálfræðingnum svo þetta er bara vonandi allt að smella og svo er bara að vona að sýsli verði í góðu skapi og segi "go ahead" ;)
Það eru jú reyndar smá fréttir. Frændi hans Heiðars er búinn að bjóða okkur að leigja íbúðina sína sem hann er að fara að kaupa á góðu verði og við erum að hugsa um að taka því bara. Hún er stærri en sú sem við erum í og á betra verði svo við erum mjög sátt við það. Ekki það að það væsir nú alls ekkert um okkur hér ;P
Annars erum við bara alltaf á fullu að dansa, við erum á framhaldsnámskeiði 2x í viku, svo erum við að dansa sem aðstoðarmenn á byrjendanámskeiði 1x í viku og svo fer ég bráðum að byrja á lady styling námskeiði sem er líka 1x í viku. ;) Svo það er slatta líkamsrækt í því og þetta er hrikalega gaman. Svo er auðvitað líka alltaf salsakvöld 1x í viku svo það er hægt að dansa fyrir allan peninginn ;)
En jæja vildi bara aðeins láta heyra í mér hérna.
Knús á línuna
Margrét
Gleðilegt ár kæru vinir og takk fyrir það gamla sem er loksins búið. Þetta er ekki búið að vera auðveldasta árið til þessa en þó gerðist nú ýmislegt skemmtilegt og jákvætt líka sem bjargar þessu fyrir horn. Ég vona samt að 2010 verði ennþá betra.
Takk allir fyrir kveðjur og kort sem við fengum frá ykkur um jólin og afsakið kortaleysið frá okkur, við förum nú vonandi að verða duglegri við kortaskrif á komandi árum. Ég hlakka bara mest til að senda fyrstu kortin með myndum af krílinu þegar þar að kemur 
Við Heiðar erum búin að skella okkur í sálfræðimat. Skemmtilegt gáfnapróf og svona og erum núna að vinna í persónuleikaprófi sem er liður í sálfræðimatinu og svo líka að klára skýrslu fyrir félagsráðgjafann. Nóg að gera á þessum bæ. Við féllum bæði á gáfnaprófinu eins og flestir voru búnir að spá....nei nei ég hugsa nú að þetta hafi bara gengið ágætlega. Mér tókst nú reyndar að klúðra ótrúlegustu hlutum en ég á t.d. ofboðslega erfitt með hugarreikning undir pressu. Get sko alveg lært og reiknað flókin stærðfræðidæmi í skóla og fæ 9 og 10 á prófum en um leið og ég er spurð og þarf að reikna í huganum þá bara lokast allt... svo já sá partur kom held ég ekki svo vel út. En ég var voða dugleg að púsla og svona skemmtilegt ;) Sálfræðingurinn sagði allavega að við þyrftum ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu svo þetta hefur nú örugglega bara gengið ágætlega hjá okkur. Allavega sagði hann að ég gæti mun meira en menntunin mín segði til um svo ég ætti nú endilega að skella mér í skóla og læra meira.
Annars er bara búið að vera brjálað að gera í jólafríinu. Við vorum í matarboðum alla daga nema 1 í fríinu svo það liggur við að maður þurfi að fá frí efir fríið. Svo er enn ein veislan í kvöld svo það er ekkert lát á átinu... en það er nú aðeins búið að skila sér á ýmsa óæskilega staði. Allavega er skærabeltið mitt e-ð aðeins þrengra en vanalega...hmmmm
Maður verður nú fljótur að hrista það af sér þegar við förum að hrista bossana aftur í salsanu. Ég vona það allavega
En það er sumsé bara allt á fullu í pappírsvinnu sem fer vonandi að ljúka sem fyrst svo við getum farið að klára þetta dæmi og koma umsókninni út.
Meira seinna
Knús á línuna
Margrét "gáfnaljós"
Þá er fyrsta viðtalið búið og þetta gekk bara ljómandi vel. Okkur líst mjög vel á stelpuna sem sér um okkar mál. Hún var hjá okkur í tæpa tvo tíma og við spjölluðum um heima og geima (en aðallega okkur samt) 
Við þurfum svo að skrifa smá pistil um okkur, okkar samband, lýsa hvort öðru og svona og senda henni og svo hittum við hana aftur í byrjun janúar. Við erum líka komin með tíma í sálfræðimat 4. janúar svo þetta er allt komið á smá skrið hjá okkur. Við erum að láta okkur dreyma um að vera kannski að senda umsóknina út í byrjun febrúar en það er kannski heldur mikil bjartsýni. En maður má alltaf láta sig dreyma allavega. Þegar þetta er búið þá fer þetta s.s. aftur til sýslumanns sem vonandi gefur okkur samþykki og svo þurfum við að senda alla pappíra í þýðingu sem gæti nefnilega tekið smá tíma. Svo þarf að þýða þá aftur úti...vesen á þessu liði að samþykkja enga spænskuþýðendur hérna heima. En svona er þetta bara.
Annars erum við bara búin að vera á milljón í jólaundirbúningi. Ég er búin að vera svo ferlega róleg og kærulaus e-ð í desember, fannst alltaf svo agalega langt í jólin að ég var ekkert að stressa mig neitt en svo voru allt í einu bara jól eftir korter og ég eftir að klára helling. Var s.s. að klára að búa til síðustu gjafirnar áðan og var svo að enda við að pakka síðustu gjöfunum inn. Reyndar smá eftir sem ég þarf að gera á morgun. Svo er bara að koma þessu út, fara í bað og gera sig fína og þá mega jólin koma með öllu sínu veldi.
Annars er ég samt e-ð voðalega róleg yfir þessu öllu saman, nenni ekki að stressa mig of mikið á þessu.
En mig langaði til að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og þakka ykkur kærlega fyrir allan stuðninginn í gegnum tíðina. Mér finnst alveg ómetanlegt að fá smá pepp og stuðning hér inni, alltaf gott að fá komment til að hvetja mann áfram. Takk þúsund sinnum.
Vonandi hafiði það gott yfir hátíðirnar og munið að jólin snúast ekki um gjafir, peninga eða veraldleg gæði heldur bara að eiga góðar stundir með þeim sem manni þykir vænt um. Verið góð hvert við annað og knúsið börnin ykkar og gefið þeim góðan tíma, þau eiga það svo skilið eftir erfiðar vikur í jólastressinu. :)
Jólaknúsukveðja
Margrét "jólabarn"