Velkomin á heimasíðuna okkar!!
Við heitum Viktoría og Bjarki Vignir


Um mig:
Bjarki Vignir:
Ég fæddist þann 6. mars 2006 og var 4605gr og 55 cm. Það gekk nú hálf brösuglega að koma mér í heiminn, líkt og Viktoríu en ég kom þó "rétta leið" á endanum en var þá orðinn ansi þreyttur og þurfti því að fara á vökudeild í nokkra klukkutíma til að jafna mig. Ég var með svart hár og dökk grá augu og svo varð ég smám saman fallega gulur á lit, af því ég fékk guluna! Við mamma vorum á spítalanum að jafna okkur í 4 daga og fórum svo heim til pabba og Viktoríu.
Viktoría:
Ég kom í heiminn þann 4.júní 2002 og var þá 15 og hálf mörk og 54 cm. Ég var með mikið svart hár og stór blá/grá augu. Fæðingin gekk nú frekar hægt, þar sem ég var ekkert að flýta mér og eftir töluverða baráttu var ég loks tekin með keisaraskurði. Það gekk allt saman vel og fékk pabbi að vera viðstaddur. Við mamma vorum fljótar að jafna okkur og fórum heim eftir nokkra daga á spítalanum.
Mamma okkar heitir Sif Bragadóttir og er leikskólakennari og pabbi okkar heitir Viðar Kristjánsson, hárgreiðslumaður. Við fluttum til Danmörku sumarid 07 í lítið hverfi rétt fyrir utan Árhus, sem heitir Beder. Þar er mamma að bæta við sig námi og pabbi að vinna :)




Annað:
Þið getið fengið fréttir af okkur á blogginu okkar á www.blog.central.is/vvsb
Þú ert gestur nr. 26161