Bríet Huld
~Hin háa - leynd/dula~
Laugardagurinn 8. júní 2002 var færður á spjöld sögunnar þegar dökkhærð lítil stelpuskjáta kom í heiminn, þessi nýfædda snót átti eftir að setja mark sitt á líf allra sem í kringum hana voru...
Hún var 50,5 cm. og 3.380 gr. og gerði Addý og Helga að stoltustu foreldrum sem fyrirfundust. Þar sem litla daman sýndi það strax á fyrstu dögunum að hún hafði bein í nefinu var nafnið Bríet Huld valið á hana, eftir nöfnunni Bjarnhéðinsdóttur.
Í dag býr hennar hátign Bríet Huld ásamt fjölskyldunni í Óðinsvéum í Danmörku. Hún er í 0A í Hjalleseskolen, sem er við hliðina á gamla leikskólanum hennar. Þar hefur hún eignast fullt af góðum vinkonum. Hún elskar prinsessuleiki, bækur og vídeóspólur, en henni finnst fátt leiðinlegra en að borða!
Elí Berg
~Hinn æðsti - klettur~
Penninn fór aftur á loft þegar miðvikudagurinn 22. september 2004 var færður í sögubækurnar. Þann haustdag kom í heiminn ljóshærður, grannur og langur prins. Heimurinn átti aldrei eftir að verða samur eftir komu hans. Foreldrarnir urðu hamingjusamari enn nokkru sinni fyrr, með tvö heilbrigð börn. Drengurinn var 3.275 gr. og 53 cm.
Nafnið sem prinsinn hlaut var reyndar löngu ákveðið en það á betur en nokkuð annað nafn við ljóshærðan, hnellinn grallarahnokka eins og drengurinn er. Því nafnið kemur frá langömmu drengsins í móðurætt, Ellý Björgu, þeirri kjarnakonu.
Í dag býr Elí Berg, eins og systir hans, í Óðinsvéum í Danmörku með fjölskyldunni. Hann er á leikskólanum Børnecentret Bolden, þar sem hann er á deild með dönskum og íslenskum börnum. Hann er mikill gaur, sem elskar hundinn Helga, bíla og bolta og allt sem hefur með ærslagang að gera! Besti vinur hans heitir Hákon Ingi og býr í sömu raðhúsalengju og Elí Berg.
Tóbías Mar
~Guð er góður - haf~
Tæplega fjögurra ára pásu ritaranna lauk föstudaginn 16. maí 2008 þegar prinsinn Tóbías Mar fæddist Bláberjahjónunum á Odense Universitethospital, með aðstoð íslenskrar ljósmóður, hennar Solveigar. Hann vó 3860 gr. og var 53 cm. að lengd með skollitað hár og dökk augu. Eins og sannri stjörnu sæmir lét ungi pilturinn bíða eftir sér og eftir 42 vikur í bumbunni hjá múttunni var ákveðið að ýta við kauða. Belgurinn var sprengdur klukkan 12:30 þann 16. maí og klukkan 15:16 sama dag var drengurinn fæddur. Það tók hann því ekki langan tíma að komast í heiminn, þegar það loksins hentaði! Fjórum tímum eftir fæðinguna lögðu foreldrarnir svo af stað heim af fæðingardeildinni með nýja soninn. Eldri börnin skoppuðu svo inn tæpum klukkutíma eftir heimkomuna, spennt að sjá litla bróður. Í dag ferðast Tóbías Mar um á maganum, og er farinn að skoða heiminn. Honum þykja allar snúrur rosalega spennandi. Systkinin eru hans stóru átrúnaðargoð og það er fátt skemmtilegra en að horfa á þau dansa og syngja.