Velkomin á heimasíðuna mína
Ég heiti Salný Kaja


Um mig:
Hæ hæ ég fæddist á Landsspítalanum 11.júní 2002 klukkan 18:33. Ég var svaka stór þegar ég fæddist eða 54 cm og 18 merkur og var ferð mín í heiminn frekar erfið fyrir mömmu mína en hún stóð sig alveg eins og hetja, en af því að ég var svo stór þurfti að lokum að taka mig úr hlýjunni í mallanum hennar mömmu með bráðakeisaraskurði. Ég lét að sjálfsögðu strax heyra í mér og voru mamma og pabbi svakalega stolt af mér. Þegar pabbi fékk mig í fangið sáu mamma og pabbi að ég var alveg svakalega dökkhærð með mikið og fallegt hár, en pabbi þurfti að kíkja undir handklæðið mitt til að sjá hvort ég væri stelpa eða strákur. Þegar pabbi sagði við mömmu að ég væri stelpa þá sagði mamma að hann fengi strák næst (það klikkaði reyndar smá, sjá neðar!). Og pabbi bara missti andlitið!



En þau gætu ekki verið hamingjusamari með mig af því að ég er svo mikið æði!!!



Sko sjáið mig bara, ég er líka algjört súpermódel;);););)




Annað:
Ég vildi bara segja ykkur aðeins frá mömmu og pabba, þau heita Signý Björg Sigurjónsdóttir og Sigurgeir Sigurpálsson. Þau eru búin að vera saman í milljón ár en gerðu loksins sambandið löglegt með því að ganga í hjónaband þann 10. apríl 2004. Ég fékk að koma með hringana til þeirra og stóð mig alveg eins og hetja, var ekki með neitt vesen en rændi svoldið athyglinni frá mömmu og pabba þar sem ég var svo frábær;)

Mamma er Viðskiptafræðingur af Vörustjórnunarsviði frá Tækniháskóla Íslands og stundar nú meistaranám í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands. Pabbi er með B.A. gráðu í heimspeki, vinnur sem forritari og svoleiðis hjá KB banka og er að útskrifast með B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá HR núna 11. júní 2005 á 3ja ára afmælisdaginn minn. Hér eftir mun hann vera kallaður BaBs heimspekilegur tölvunarfræðingur.

Svo eignaðist ég líka litla æðislega skemmtilega og sæta systur 5 dögum eftir 2ja ára afmælið mitt í fyrra. Hún var skírð Sólný Inga og á að sjálfsögðu líka heimasíðu hér á barnalandi þið getið endilega kíkt líka á hana á linknum:
http://www.barnaland.is/barn/21042



Ef þið þekkið foreldra mína þá skylda ég ykkur hér með til að kvitta fyrir heimsóknina í gestabókina mína og ef ekki þá er alltaf gaman að kynnast nýju fólki og því bið ég ykkur hin að kvitta líka;)

Þú ert gestur nr. 20725