Koma mín í þennan heim var áætluð 25. janúar en ég lét nú aðeins bíða eftir mér. Ég fæddist á fæðingardeild Landspítalans þann 6. febrúar kl. 18:16 og var 3800 grömm og 50 cm. Ég fæddist með rautt hár.
Foreldrar mínir heita Benedikt Líndal Jóhannsson og Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir og við búum í Mosfellsbæ. Mamma mín er fædd og uppalin á Brúarlandi í Þistilfirði en pabbi minn á Efra-Núpi í Núpsdal í Miðfirði. Hálfbróðir minn heitir Jóhann Ingvi og hann býr á Hvanneyri með mömmu sinni.
Ég var skírður á sumardaginn fyrsta þann 24. apríl 2008 hjá ömmu og afa á Brúarlandi. Mamma mín hélt á mér undir skírn.
Yndislegur og fallegur drengur sem kemur foreldrum sínum alltaf til að brosa.
Jóhannes byrjaði á leikskólanum Fossakoti 5. janúar og gengur það rosalega vel. Er reyndar búinn að vera veikur nánast síðan hann byrjaði en þá daga sem hann hefur mætt er bara stuð :)