Velkomin á heimasíðuna okkar!!!!!!
Við erum systkinin Heiða Máney og Ægir!!!


NÝTT - NÝTT - NÝTT
2. nóvember er loksins búið að fylla albúmið "Júní 2011"
25. október runnu myndir inn á síðuna, þá varð meðal annars til albúmið"Meira af maí 2011"
25. október var myndum skellt inn í albúmið "Maí 2011"
25. október voru settar myndir í albúmið"Restin af apríl 2011"
28. apríl voru settar nokkrar myndir í albúmið "Fjölskylduferð til Flórída"






Heiða Máney
Lilypie Third Birthday tickers

Ég heiti Heiða Máney Einarsdóttir Hafberg og er fædd 20. febrúar árið 2008 kl. 22:30. Ég var 3.730 grömm eða 15 merkur og 52 cm. Ég er fædd á fæðingardeild LSH við Hringbraut í Reykjavík. Ég fæddist með ofsa mikið ljóst hár og stór blá augu. Ég lét aðeins bíða eftir mér, eða rétt rúma viku. Mamma var sett af stað akkúrat viku eftir að ég átti að fæðast og ég kom svo daginn eftir. Fæðingin gekk mjög vel, en í lokin þurfti samt aðeins að hjálpa mér með sogklukku því ég snéri með andlitið upp og hendurnar krosslagðar yfir andlitið. Við mamma vorum báðar voða fegnar þegar ég var loksins komin. Pabbi var viðstaddur fæðinguna og fékk að sjálfsögðu að klippa á naflastrenginn. Pabbi minn heitir Einar Ægisson Hafberg og er frá Flateyri og mamma mín heitir Sigríður Rósa Kristinsdóttir og er frá Eskifirði. Við eigum heima í Grafarvoginum í Reykjavík og okkur líður voða vel þar.



Ægir
Lilypie First Birthday tickers

Ég heiti Ægir Einarsson Hafberg og er fæddur 27. október 2009 kl. 22:37. Ég var 4.465 gr. eða 18 merkur og 53,5 cm. Ég er fæddur á Hreiðrinu á LSH við Hringbraut í Reykjavík. Ég fæddist með mikið dökkt hár og stór dökkblá augu. Ég lét bíða aðeins eftir mér eins og systir mín, eða rétt rúma viku. Mamma fór af stað um leið og pabbi kom heim úr vinnunni, daginn sem ég fæddist. Fæðingin gekk mjög vel og mamma fékk engin deyfilyf. Hún fór bara í bað og var þar í dálitla stund og svo lagðist hún upp í fína rúmið með pabba og hann hjálpaði henni að koma mér í heiminn. Pabbi fékk að sjálfsögðu að klippa á naflastrenginn. Ég á sömu foreldra og systir mín, hún Heiða Máney.






Svona margir hafa heimsótt síðuna síðan ég fæddist
Þú ert gestur nr. 18964