| VELKOMIN Á HEIMASÍÐUNA OKKAR ! |
| VIÐ ERUM BRÆÐURNIR JÚLÍAN OG LÚKAS HAFSTEIN |
|
|
Um mig:
JÚLÍAN er flottur keisari sem fæddist á landspítalanum þann 23 marz 2001 kl 06:39 á afmælisdegi Arndísar langömmu okkar sem á núna heima hjá englunum. Mamma reyndi og reyndi að fæða hann en ekkert gekk. Á endanum vorum við bæði orðin svo þreytt að læknirinn kom og skar gat á mallan á mömmu og tók Júlían út. Mikið vorum við glöð þá. Pabbi var viðstaddur og stóð hann sig svaka vel. Hann horfði á þegar mamma var skorin upp og þegar Júlían var rifinn upp úr mallanum. Síðan klippti hann naflastrenginn og fór með litla prinsinn sinn fram til ömmu Sollu sem beið spennt eftir mér. Júlían þurfti að vera í hitakassa í 2 klukkutíma eftir fæðinguna, en hitakassinn var settur við hliðina á rúminu hennar mömmu, þannig að mamma og pabbi gátu bæði verið hjá litla prinsinum sínum. Júlían var 3260 gr eða 13 merkur og 50,5 cm við fæðingu Júlían fæddist með kolsvartann lubba, með sítt að aftan og dökk augu.
LÚKAS er líka flottur keisari, hann var rifinn úr mallanum á mömmu sinni 8. nóvember 2005, þar sem hann lá í makindum sínum og átti ekki von á þessum ófrið. Lúkas var planaður keisari því að mamma gat ekki fætt Júlían og þorði ekki að taka áhættuna við að prufa að fæða Lúkas. Pabbi var auðvitað viðstaddur og klippti naflastrenginn enda orðinn reynslubolti á skurðustofunni. Lúkas var ótrúlega hress þrátt fyrir soldið sjokk við að vera tekinn svona snögglega og þurfti ekki að fara í hitakassa, heldur fékk að liggja í fanginu á mömmu á vöknun. Júlían fékk svo fyrstur að koma og sjá litla bróðir sinn 2 klukkutíma gamlan. Hann fékk líka fyrstur að vita nafnið sem búið var að velja fyrir Lúkas. Júlían fékk svo að segja öllum sem komu að skoða Lúkas hvaða nafn hann fékk. Lúkas fæddist líka með svart hár með mikla barta og dökk augu eins og bróðir sinn Lúkas var 13 merkur eða 3240 gr og 51 cm við fæðingu Júlían flutti með mömmu sinni og pabba til Árósa í Danmörku þegar hann var 16 mánaða og var bæði í vöggustofu og svo í börnehave þar. Fjölskyldan flutti heim í janúar 2005, þá var Júlían tæplega 4 ára. Júlían fannst rosa gaman að flytja heim og hitta alla fjölskylduna og vini þó að hann sakni stundum vina sinna í Danmörku. Við búum í smáíbúðarhverfinu í Reykjavík. Mamma og pabbi eru komin á heimaslóðir og hérna ætlum við alltaf að eiga heima. Júlían er í 7 ára bekk í breiðagerðisskóla og Lúkas er á leikskólanum Hamraborg Þegar Júlían var 7 mánaða var hann greindur með mjólkur og eggja ofnæmi. Hann var frekar órólegt ungabarn en enginn fann út hvað var að honum. Þegar hann var 1 árs fór mjólkurofnæmið og þegar hann varð 3 ára fór eggjaofnæmið. Við erum rosa lukkuleg með að allt ofnæmið sé farið og þetta er mikill munur að meiga borða hvað sem er. Ég á aðra síðu hérna á bandalandi sem er upplýsinga síða um ofnæmi, þú kemst á hana hérna. OFNÆMISSÍÐA JÚLÍANS |
|
|
Annað:
Ímynd móður
4 ára ~ Mamma mín getur allt! 8 ára ~ Mamma mín veit mikið! Mjög mikið! 12 ára ~ Mamma veit sko ekki allt! 14 ára ~ Auðvitað veit mamma ekki þetta heldur! 16 ára ~ Mamma? Hún er nú svo gamaldags eitthvað! 18 ára ~ Sú gamla? Hún er nú hálf úrelt! 25 ára ~ Jú, hún gæti vitað eitthvað um það! 35 ára ~ Fáum álit mömmu áður en við ákveðum þetta! 45 ára ~ Hvað ætli mömmu hefði fundist um þetta? 65 ára ~ Ég vildi að ég gæti rætt þetta við hana mömmu! e-mailið okkar er julianhafstein@hotmail.com |
| Du er gæst nr. 153334 |