"Mamma, það er SPÆJARI í garðinum okkar". Mamma kíkir út um gluggan en sér ekki neitt og spyr hvar spæjarinn sé. "Sjáðu þarna fuglinn sem goggar á fullu í tréið" Þá var hann að meina SPÆDU!
Júlian :Amma hvað er þetta í andlitinu á þér? Amma: Ha er ég með eitthvað í andlitinu? Júlían:Já svona Krumpur!!!!
Júlían er búin að spyrja allar ömmur sínar þessa spurningu. Þá er hann að meina hrukkur. voðalega skemmtilegur við ömmur sínar sem eru varla með hrukkur
Hey pabbi, þessi kall er með svona lítið typpi eins og ég!!!
pabbi og Júlían voru að klæða sig eftir sund, það var maður að klæða sig úr fötunum við hliðina á þeim. Júlían benti á typpið á manninum og sagði þessa setningu.
"Ég er með svo mikla hálsköku"
Júlían að segjast vera með HálsBólgu ágúst 2005
"ÉG BREYTIST Í SPAÐA"
Júlian spilaði olsen olsen við mömmu sína og pabba á hverju kvöldi í hringferðinni um landið sumarið 2005. Þegar hann fékk Áttu var hann snöggur að segja ÉG BREYTIST Í svo kom einhver tegund, mömmu hans og pabba fanst þetta svo fyndið að Júlían var ekkert leiðréttur. Spurning um að leiðrétta þetta áður en hann fer í skóla :)
Júlían "Mamma afhverju ertu með svona stórann malla?" Mamma: "Afþví að litli bróðir er í mallanum" Júlian: "En afhverju ertu með svona stórann rass?
Hverju er hægt að svara?? Mömmunni er farið að finnast þessi komment drengsins um rassastærð aðeins of mörg þessa dagana :)
Þú átt svo risastórann rass sjálf mamma!
Mamma var að knúsa júlían og tók um rassin á honum og spurði hvort hún mætti eiga þennan litla sæta rass. Þá svaraði Júlian " Nei mamma þú átt svo risastórann rass sjálf"
Á ég að RASSGATA þig??
Júlían afbakar orðið Rassskella í Rassgata. Sumar 2005
Ég er enginn SYKURDOLLA PABBI, það er BANNAÐ að segja svona.
Júlian var að borða candyfloss. Pabbi fékk að smakka og sagði að þetta væri meiri sykurdrullan. Júlian bæði misheyrðist og misskilid þetta og hélt að pabbi hans væri að kalla sig sykurdollu, sem honum finnst greinilega ekki fallegt. Ágúst 2005
Júlían; "Mamma og Pabbi! Vitið þið afhverju Froskar eru grænir??" M&P: "Nei afhverju eru þeir grænir?" Júlían: "Það er útaf því að þeir hoppa alltaf upp í nefið á fólki og borða allt horið, þá verða þeir grænir með stórann malla fullan af hori."
Júlían er mikill pælari og kemur með frábærar skýringar á öllu. Ágúst 2005
Ég eð næstum fjagðáða
Þegar Júlían var ca 3 1/2 árs hætti hann að segjast vera 3 ára þegar hann var spurður hvað hann er gamall, hann segist vera næstum 4 ára og stórmóðgast ef foreldrar hans voga sér að segja að hann sé 3 ára.
"þetta er bara fyrir fullorðna Klara Marín!!!!"
Júlían tæplega 4 ára var að borða nammi hjá ömmu og afa og Klara Marín 1 1/2 árs litla frænka hans bað hann um að gefa sér nammi. Honum þykir hann náttúrulega vera fullorðin miðað við hana enda "næstum 4 ára" febrúar 2005
Sólmjólk í hádeginu og séðíós á kvöldin, mér er sagt að "þenanana" á meðan fðétta tíminn er!!
janúar 2005. júlian búinn að búa í dk frá 16 mánaða aldri og hefur aldrei heyrt talað um "súrmjólk" og syngur þessvegna um "sólmjólk" Hann hefur heldur aldrei heyrt orðið "þegja" þannig að hann skáldar bara eitthvað sem honum finnst hljóma eins og sagt er í laginu.
ÉG ER EKKI LÍTILL KALL, ÉG ER BARA STÓÐ OG FEITUÐ EINS OG ÞÚ PABBI MINN"
Pabbi sagði við strákinn sinn "Jæja litli kall"
ÉG ER EKKERT LÍTILL KÚKUR
Pabbi snéri sér að litla stráknum sínum og sagði voða blíðlega "Hæ litli kútur", þá snéri Júlían sér að Pabba sínum og sagði hin fúlasti, "Ég ed ekket lítill kúkur Pabbi,þad er alveg bannað að segja sona" Nóv 2004
Maður HRISTIR HANN!!!!!!!
Júlían elti pabba sinn á klósettið og fylgdist með þegar hann var að pissa. Þegar pabbi var búin að pissa, labbaði hann fram. Þá sagði Júlían: "Hvað gerir maður svo? " Pabbi:"hvað meinaru?" Júlían "HVAÐ GERIR MAÐUR SVO" Pabbi:´"ég veit það ekki, hvað gerir maður svo?" Júlían: "Maður HRISTIR HANN" Pabbi:" ég gerði það" Júlían: "NÚÚ, HÓKEI (okei)" (bara aðeins að fylgjast með hvort það færu ekki allir eftir klósettreglunum:) nóv 2004
Er AMEN líka DAUÐUR?
Mamma og Júlian voru að fara með bænirnar eitt kvöldið. Þá spyr Júlían: "Koma englarnir og ná í þá sem eru dauðir". ( hér í dk er orðið DØ notað yfir það sem er dáið. Allt í einu fór Júlían að nota orðið Dauður í staðinn fyrir Dáinn) Mamma segir honum að það sé rétt, englarnir ná í þá sem eru Dánir. Júlían spyr þá hvort að þeir sem við vorum að byðja um að passa okkur í bæninni séu dauðir. Mamma segir Já þeir séu dánir og farnir upp til himna og séu nú að passa okkur. Svo var haldið áfram með bænirnar og svo var sagt AMEN í lokinn eins og vanalega, þá segir Júlían. "Er AMEN líka DAUÐUR" Litla krúttið hefur örugglega oft pælt í því hver þessi Amen sé sem við nefnum á hverju kvöldi eftir bænina
Júlían :Mamma þú keyptir mig í dótabúðinni. Ég var í kassa í dótabúðinni og sá Hrönn og Julla og þið keyptuð mig. Ég kostaði marga peninga. Mamma: komst þú ekki út úr mallanum á mömmu?? Júlían: Nei mamma, þú keyptir mig í dótabúðinni fyrir peningana þína, ég var í kassanum. Þú varst svo góð að kaupa mig!! (svo knúsaði Júlian Mömmu sina)
Júlían að fara að sofa og Mamma var að segja honum hvað hún væri heppinn að hafa fengið hann. Þá var hann alveg viss um að hún hafi keypt hann í dótabúðinni, og hann var semsagt í kassa í hillunni í dótabúðinni. Okt 2004
mamma, viltu borða mig og þá verð ég litið barn í mallanum á mér" Mamma spurði mig hvernig hún ætti að borða mig "Þú bítur mig bara og kyngir og setur mig þannig í mallann á mér
Júlían var mikið búinn að vera að pæla í óléttum konum og litlum börnum. Mamma hans var svo að sýna honum myndir af fóstrum í móðurkviði. Þá datt honum svona sniðugt í hug. okt 2004
ÞÚ KEYPTIR MIG Í BÚÐ Í BÆNUM !!
Mamma að sýna Júlían Keisaraskurðinn og sagði honum að læknirinn hefði skorið gat á mallann á mömmu og tekið Júlían úr mallanum. Júlían er ekki alveg að kaupa þetta. okt 2004
SJÁIÐ ÞIÐ PÁFAKÖKURNAR
Júlían í dyragarði að skoða PáfaGAUKA (ágúst 2004)
Mamma HASTEIN
Júlían: Ég heiti Júlían Hastein og pabbi heitir Júlíus Hastein. Pabbi: En hvað heitir Mamma? þá kom þetta fína svar"mamma Hastein". Eftir mikin hlátur frá foreldrum breytti hann og sagði Nei Hún heitir HRÖNN HASTEIN. Mamma reyndi að leiðrétta og sagðist heita Hrönn Óskarsdóttir. NEEEEEEEEEIIII Mamma þú heitir Hrönn Hastein! svaraði drengurinn yfir sig hneykslaður á þessari lygi í mömmu sinni
Nei pabbi þú ert ekki skrákur, þú ert KALL!!
Pabbi var að spyrja Júlían hver væri sætasti strákurinn í bænum, Júlían sagðist vera sætasti strákurinn í bænum. Þá segir pabbi " er pabbi ekki sætast strákurinn í bænum?" þá kom þessi flotta setning hjá honum
Gefðu kellinguni boltann mamma!
Fjölskyldan var úti í boltaleik og það var ein ca 12 ára stelpa að leika við hliðina á okkur. Þetta sagði hann þegar hann vildi að mamma sín gæfi stelpunni boltann. Ef 12 ára stelpa er KELLING í hans augum, hvað finnst honum þá mamma sín vera??? Spurning hvar drengurinn lærir þetta, pabbi hans liggur sterkur undir grun.
Henda Berglind (Helga Berglind) Embla Leik (Embla Eik) Helga Fíl (Helga Hlíf) Natahlía (Natalía)
Júlían að telja upp nöfnin á vinkonum sínum 2,5-3 ára
"Sjáðu mamma það er fótbolti í mallanum á mér" Hvernig komst hann þangað inn spyr mamma " ég setti hann í munninn og gerði svona "kyngdi" og þá fór hann í mallann"
Júlían greyjið er alltaf með svo útblásinn maga því hann er veikur í mallanum sínum og hann er alveg viss um að hann hafi einhvertímann borðað fótbolta þessvegna sé hann svona
Hérna er mömmu kindin og þarna er kindereggið!!
Júlían að lesa dýrabók og vill meina það að lamb heitir kinderegg því að mamman heitir Kind. Kinderegg nammi er í miklu uppáhaldið þessa dagana þannig að það gæti verið ástæðan. Maí 2004
Veiðimaður treyst á þig, jólasveinn gýtur mig (skýtur)
Júlían var að syngja Jólalag þar textin á að vera "Jólasveinn ég treysti á þig, veiðimaður skýtur mig" en sneri þessu svona skemmtileg við og gerði Jólasveininn að vona kallinum. Júlían feb 2004
"Mamma, með íslensku tali!!
Mamma og Júlian voru í leikskólanum og mamma var að spyrja Júlían á dönsku hvort hann vildi fara í útigallan sinn. Honum hefur eflaust fundist mamma sín tala frekar hallærislega dönsku og kom þá þessi snilldar setning. jan 2004
Ég heiti JúlíEn á leikskólanum en JúlíAn heima!
Júlían að uppgvöta mismuninn á tungumálunum heima og í leikskólanum. Jan 2004
Krummi KÚKAR úti, Kallar á nafna sinn.
Júlían að byrja að syngja lagið "Krummi krunkar úti" og kom það út svona skemmtilega hjá honum. jan 2004
Langar að fara og kaupa Skvísí!
Helga Hlíf (kölluð skvísí) var ný búin að vera í heimsókn og Júlían hefur alltaf verð mjög hrifin af henni. Hann heldur að það sé hægt að kaupa ALLT í búðinni, líka eitt stykki lítið barn. Feb 2004
Meija Gúggú
"Gúggú" notaði Júlían yfir allt sem var gott eða skemmtilegt, ef hann vildi fá meira nammi var það "meija gúggú" ef hann vildi láta pabba sinn hasast meira í sér var það "meija gúggú". Júlían tæplega 2 ára
MEÐ ÍSLENSKU TALI
Þetta er mjög vinsæl setning hjá mér þessa dagana. Ég hef eflaust heyrt þetta í kynningu á einhverri teiknimynd og nú er allt "með íslensku tali" hjá mér. Jól 2003
Má ég fá PABBAKÖKU!!!!!!!!
Júlían að byðja um piparköku, des 2003
NAMM KÚKALYKT !!!!!!!!!!!!!
Mamma var að baka köku og Júlían fann þessa fínu KÖKUlykt/ Haust 2003
Mamma sjáðu, Baggala í eplinu !!!!!
Júlían kom hlaupandi til mömmu sinnar, svaka ánægður, taldi sig haf fundið skjaldböku(baggala) í eplinu en í rauninn var þetta plómur sem hann var að borða og "skjaldbakan" var steininn Ágúst 2003
Lillu henda deinum í fiskibollurnar
Ágúst 2003 Júlían að henda steinum útí tjörnina sem er full af fiskum, og greinlega búinn að borða of mikið af fiskibollum dagana á undan
Lillú Hastein
loksins þegar Júlían gat sagt nafnið sitt þá kom það í þessari útgáfu, hann kallar sjálfan sig Lillú Hastein