Skírnin okkar

Júlían
var skírður heima í Bugðulæk 2 Júní 2001, Fjölskylduvinurinn Séra Vigfús Þór Árnason skírði hann. Amma Solla hélt á honum undir skírn, Amma Erna er Guðmóðir hans og Kobbi frændi er Guðfaðir hans.

Pabbi Söng lagið "Lítill drengur" eftir Vilhjálm Viljhálmsson í skírninni og Kobbi frændi spilaði undir á gítar. Það var heljarinnar skírnarveisla haldin í Bugðulæknum. Júlían sem var veikur í maganum og grét fyrstu mánuðina átti sinn besta dag á skírnardaginn, hann brosti og hjalaði allan daginn.

Amma Erna heklaði skírnakjólinn á meðan Júlían var í maganum á mömmu og Gulla frænka heitin saumaði undirkjólinn, Kjóllinn er ofsalega fallegur og var mikið dáðst að honum.

Nafnið Júlían er eiginlega bara útí loftið þó það sé soldið líkt Júlíus nafninu sem pabbi og afi heita. Mamma og pabbi voru með nokkur nöfn í huga þegar Júlían fæddist, en þegar þau sáu hann fannst þeim strax Júlíans nafnið passa best við hann. Nafnið svar leyndarmál þar til hann svar skírður rúmlega 2 mánaða gamall. 

Lúkas
var skírður í Lágafellskirkju föstudagskvöldið 30 Desember 2005. Séra Vigfús var auðvita líka fenginn til að skíra lítla kútinn. Aðeins nánustu ættingjar voru viðstaddir skírnina, síðan var matur heima í Arnartanganum eftir kirkjuna. Skírnin hans Lúkasar var mjög þægileg og kósí. Lúkas var mjög rólegur og góður í skírninni sinni eins og alla aðra daga. Afi Óskar og Afi Júlli eru guðfeður hans og mamma hélt á honum undir skírn. Bidda frænka söng lagið Ást í krikjunni og Júlían kom öllum á óvart í miðri skírn, fór upp að altari og söng Dvel ég í draumahöll fyrir litla bróðir sinn.

Lúkas var auðvitað í sama skírnarkjólnum og Júlían sem amma Erna heklaði.

Nafnið Lúkas er líka út í loftið. En Lúkas er Biblíunafn og var Lúkas einn af guðspjallarmönnunum. Mamma og pabbi ákváðu nafnið hans eftir að mamma og pabbi fengu að vita í sónar að það væri prins á leiðinni, komin 20 vikur á leið. Júlían fékk að tilkynna öllum nafnið á fæðingardeildinni, nokkrum klukkutímum eftir að Lúkas fæddist.