Stjörnumerkin okkar

Júlían

HRÚTURINN
21.mars - 19.apríl

Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið.
Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn.
Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu.
Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni.

Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljót og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum.
Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki að sjálfu sér - það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir.
Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum.

Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvöllinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum.
Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur, nema þegar honum hentar.

Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsinlegtað hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.


Lúkas

Sporðdrekinn
24. október - 21. nóvember

Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar).
Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn.
Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.