Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Disastro
Disastro

Satúrnus í Fiskum -  

Satúrnus í fiskum er frekar erfið staða að því leytinu að þetta er ólík orka sem kemur saman.   Satúrnus er formföst og jarðtengd en fiskarnir tilfinningaríkir og landamæralausir og trúa á að heimurinn og mennirnir séu eitt. Þetta getur því virkað niðurdrepandi því barnið gerir ekki greinarmun á hvort vandamál séu þess eða hins. Barn með þessa stöðu þarf að takast á við þessar ólíku andstæður í sálu sinni og hættir til að soga neikvæðni úr umhverfinu þangað til það lærir að nota landmæri Satúrnusar til þess að vernda sig gegn óheppilegum áhrifum umhverfisins. Barnið býr yfir ríkri samúðartilfinningu gagnvart þeim sem minna mega sín og getur auðveldlega gengið yfir strikið í þeim efnum og látið vinda úr sér alla orku og jafnvel lífsgleði.   Þá dregur það sig í hlé frá hinum harðneskjulega heimi, eins og það upplifir heiminn oft á tíðum, til þess að hlaða batteríin.   Miklu máli skiptir hvernig fyrstu ár barnsins eru því oft á tíðum situr fortíðin í því og það þjáist af ótta og hræðslu sem erfitt er að negla niður....  

0 | 19.9.2011 13:33:00 #

 

Satúrnus í Vatnsbera - Get ég orðið hluti af hópnum?

Satúrnus í Vatnsbera er nokkuð góð staða þar sem Vatnsberinn og Satúrnus tengjast tiltölulega nánum böndum.   Satúrnus er ein af stjórnendum Vatnsberans.   Barnið býr yfir skynsemi og stundum vísindalegri hugsun.   Það hefur möguleika á að þroska með sér góða yfirsýn ásamt réttsýni enda á það eftir að mæta aðstæðum sem krefst að barnið setji sjálft sig til hliðar til þess að sinna öðrum. Barnið gæti snemma þurft að taka ábyrgð á vinahópnum en þar gæti mesti lærdómur og þar með þroski átt sér stað.   Það hefur kannski ekki sjálfstraustið til þess að takast á við ábyrgð þegar kemur að vinum og hópum, en gæti samt sem áður lent í þeirri aðstöðu oftar en einu sinni. Stundum virkar barnið fráhrindandi á vini sína, vegna þess að þessi staða ýtir undir hlutleysi og gæti byggt upp vegg í kringum sig svo aðrir ættu erfitt með að nálgast það.   Innst inni þráir barnið að verða hluti af hópnum, en þarf að læra að opna sig fyrir hópnum og deila með honum sínum frumlegu hugsunum og hugmyndum sem það býr óneitanlega yfir.....  

 

0 | 16.9.2011 14:51:36 #

Satúrnus í Steingeit - Ég er að sligast? 

Satúrnus í Steingeit er góð staða fyrir barnið og gæti verið fín   á jarðneskum sviðum, sérstaklega ef barnið hefur ekki mikla jörð í kortinu sínu. Þetta er mjög jarðbundin staða. Satúrnus stjórnar Steingeitinni svo það ríkir samræmi í þessari stöðu, en hún gengur út að ná tökum á efnisheiminum.   En eins og alltaf er lærdómur innifalin í Satúrnusi svo barnið gæti þurft að taka á á þeim sviðum sem hún stendur fyrir eins og vinnu og ábyrgð. Barninu getur þótt lífið erfitt á köflum því oft eru krefjandi verkefni lögð snemma á herðar þess.   Þar sem það býr yfir sterkri ábyrgða tilfinningu neitar það sjaldan þeim verkefnum sem því er falið heldur leggur sig allt fram um að leysa þau, jafnvel þótt það sé því um megn.   Þetta er því barnið sem gæti fæðst inn í aðstæður sem hreint og beint krefjast þess að það taki þátt eða leggi sig fram.   Stundum verður það reitt yfir þessari byrgði sem lögð er á það, en býr yfir ótrúlegri seiglu og metnaði til þess að standa sína pligt....

0 | 15.9.2011 11:44:40 #

Satúrnus í Bogmanni - Á ég þessa gleði skilið?

Satúrnus í Bogmanni hefur tilhneygingu til þess að hemja lífsgleði og ævintýraþrána.   Satúrnus táknar samdrátt, höft, raunsæi og allt sem gerir okkur ábyrg og jarðbundin.   Bogmaðurinn er frelsi, hreyfing, bjartsýni og ævintýri.   Barn með þessa stöðu getur verið heft á þessum sviðum.   Stundun er það haldið flughræðslu eða jafnvel ótta við að flytja á nýjan stað.   Hræðsla við nýja reynslu er áberandi og vöxtur og þroski út fyrir þægindasviðið er oftast áhyggjuefni.   Barnið er haldið þeirri tilfinningu að því finnist það ekki eiga gleði skilið a.m.k ekki ókeypis. Því hættir við kvíða yfir framtíðinni vegna þess að það veit ekki hvað hún ber í skauti sér.   Þetta er ekki endilega áberandi í fari barnsins enda reyna börn oftast að þóknast foreldrum og umhverfi sínu svo það gæti einfaldlega komið út á hinn veginn. En næmt foreldri sér í gegnum varnir barnsins síns. Hins vegar getur þetta allt orðið hinn mesti styrkur ef unnið er með þessa þætti frá upphafi.   Barnið þarf að læra að hafa trú og traust á lífinu almennt. Því öll hræðsla sem við leggjum á okkur að yfirvinna í tengslum við Satúrnus verður hinn mesti styrkur.   Ekki alltaf þó.   Stundum næst ekki að leysa hnútinn eða vinda ofan af honum. Þess vegna Því fyrr sem meðvitund foreldra kviknar því betra.....

0 | 14.9.2011 11:22:10 #

Satúrnus í Sporðdreka - á ég að þora að upplifa tilfinningar?

Satúrnus í Sporðdreka er frekar erfið staða fyrir þessa jarðnesku plánetu að vera í þótt alvarleiki og einbeiting sé þeim sameiginleg.   Sporðdrekamerkið er kafari og kafar djúpt undir yfirborðið í leitinni að tilfinningalegum sannleika.   Hins vegar hefur Satúrnus sterkar rætur í efninu en lítinn áhuga á að henda sér út í djúpu laugina í heim sem erfitt er að vega og mæla.   Útkoman getur orðið hræðsla við tilfinningar.   Barn með þessa stöðu er þvi vart um sig tilfinningalega.   Það þráir djúp og innihaldsrík sambönd en stendur á bremsunni af ótta við að tengjast öðru fólki á djúpan og innilegan hátt og þar með opinbera heim sem það ræður ílla við a.m.k. í æsku.   Þess vegna verður það að vana að bæla allar óþægilegar tilfinningar niður.   Og það sem er bælt niður mætir okkur í umhverfinu.   Þetta barn getur því virkað hrætt við allt mögulegt sem það upplifir sem ógn.   Hins vegar ef það nær að vinna með tilfinningarnar og opnar sig gagnvart sjálfu sér sem og öðrum er mikið unnið því þetta barn býr yfir ótrúlegri seiglu og innri styrk þegar hann á annað borð hefur verið leystur úr læðingi....

0 | 13.9.2011 10:24:43 #

Satúrnus í Vog - Er ég þess virði að vera elskað?

Saturnus í vog snýst um ábyrgð í samskiptum og samböndum yfirleitt, sérstalega „one to one“.   Barnið er alvarlegt á sviði samskipta og tekur sér tíma til þess að kynnast öðrum.   Stundum flýr barnið á brott í miðjum klíðum vegna þess að því finnst það ekki vera þess virði að vera elskað.   Það hræðist höfnun meira en allt annað.   Barnið kemur til með að hafa háar hugmyndir um hvernig á að haga sér í samböndum svo stundum er ekki raunhæfur möguleiki á að uppfylla þær kröfur og fyrir það dæmir barnið sig hart.   Afleiðingin verður vanmáttarkennd sem getur grafið um sig og valdið sálarkvöl síðar meir, sérstaklega ef stuðningur og skilningur er ekki fyrir hendi þegar félagsþroskinn hefur sitt skeið fyrir alvöru í lífi barnsins.   Stundum reynir Barnið að breiða yfir vanmáttinn og virkar opnara og liðlegra á félagssviðinu en það raunverulega er.   En Þar sem Satúrnus er,   erum við oftast stíf og stirð og þurfum að ganga í gegnum lífsins lærdóm þar á bæ.   Barnið þráir traust sambönd en er oftast sjálft sem yfirgefur þau af ótta við að ófullkomnleikinn komi í ljós.  Þrátt fyrir allt á þetta barn möguleika á að vera traust og trygglynt í öllum sínum samböndum sem það á eftir að taka alvarlega stuðningur foreldra og þess nánustu skiptir miklu máli hvernig barnið nær að vinna úr þessu.....

0 | 3.9.2011 10:07:18 #

Satúrnus í Meyju - þarf ég virkilega að læra öll þessi smáatriði?

Satúrnus í Meyju er nokkuð samlynd staða þar sem bæði satúrnus og Meyjan eru með báðar „fæturnar“ á jörðinni.   Barnið kemur til með að njóta góðs af því en jafnframt þurfa að takast á við og slípa þá þætti sem Meyjan stendur fyrir eins og að funkera í daglegu lífi, hugsa um heilsuna og vinnutengda þætti svona þegar fram í sækir.   Stundum getur þetta birst í erfiðleikum með að takast á við hversdagslega hluti eins og að klæða sig fæða eða höndla smáatriði.   Heilsan getur verið að angra það og fæðuofnæmi verið til staðar svo gott er fyrir foreldra að vera meðvituð um fæðuval barnsins. Meltingarkerfið getur líka verið viðkvæmt svo allur þungur matur eins og kjöt og bras á ekki heima í maga þessa lítla krílis...áherslan hérna er sérstaklega á líkamann þótt taugakerfið geti líka verið spennt svo gott er að kenna barninu að slaka á frá fyrstu tíð...

0 | 2.9.2011 11:07:02 #

Hi thu matt endilega senda mer email um hvad thetta kostar hja ther. Takk fyrir
Berglind | 0 | 2.9.2011 02:52:54 #

Satúrnus í Ljóni - er ég nógu flott?

Satúrnus í Ljóni er ekki uppáhaldsmerki Satúrnusar þar sem saman koma samdráttur og alvara á móti opinni og einlægri sjálfstjáningu Ljónsins.   Barnið þráir ekkert meira en sviðsljósið og allt glysið sem fylgir en er heft.   Þetta barn verður að læra að trúa á sjálft sig til þess að lifa drauminn um skapandi og skemmtilegt líf.   Fram að þeim tíma mun það efast um sjálft sig, að það sé nógu gott, nógu flott og glitrandi.   Barnið þarf að læra að elska sjálft sig inn að beini til þess að verða ánægður einstaklingur í framtíðinni.  Engin ást mun fullnægja þessu barni nema ást þess á sjálfu sér.  Þó er  m ikilvægt að faðir barnsins styðji það og veiti því næga athygli til þess að byggja ást barnsins á.   Hins vegar er mjög áriðandi að barnið byggi upp sinn eigin kjarna sem styður það sjálft en verði ekki háð athygli og ást föður síns hvað sem það kostar.   Það getur gerst að ef barnið fær ekki næga athygli frá honum verði það að þráhyggju að öðlast hana, ekki bara hjá föður sínum heldur öllum karlmönnun sem hafa völd og áhrif...    

0 | 1.9.2011 10:45:26 #

Satúrnus í Krabba -  

Krabbinn er merki móðurinnar og heimilisins svo prófraun barnsins tengsist þessum undirstöðu þáttum lífsins þegar Satúrnus er í þessu tilfinningaríka stjörnumerki.   Barn með þessa stöðu er vart um sig tilfinningalega og á erfitt með að tengjast tilfinningaböndum.   Hræðsla við að verða of berskjaldað og þar með sært er oftast orsökin fyrir tregðu þess að opna sig. Hins vegar tekur það sambönd sín mjög alvarlega þegar það hefur á annað borð náð að tengjast annarri manneskju og getur þá haldið of fast.   Móðir barnsins skiptir mjög miklu máli í lífi þess, þótt það sýni það ekki alltaf opinskátt.   Barnið getur því auðveldlega vilt á sér heimildir og virst vera miklu kaldara og tilfinningalausara en það í rauninni er.   Þetta leiðir oft til þess að það fær ekki alltaf þá ást og hlýju sem það raunverulegra þarfnast vegna þess að það bítur aðra frá sér þar á meðal móður sína.   Þess vegna skiptir samband barnsins við móðurina miklu máli á fyrstu árum þess, að hún sjái í gegnum varnir barnsins tilfinningalega, sem geta verið æði sterkar, og næri það inn að rótum.   Þannig getur barnið sloppið við mestu þrautir fullorðinsáranna sem tengjast tilfinningum og heimili...  

0 | 31.8.2011 11:23:32 #

Satúrnus í Tvíbura – Get ég lært þetta?

Þegar Satúrnus er í Tvíbura hefur það áhrif á hugsun og hæfileika barnsins til þess að læra.   Tvíburinn er stjörnumerki þekkingar og upplýsingamiðlunar.   Ef barn fæðist með Tvíburann í plánetu samdráttar hægir á öllu hugsanaferli barnsins því að þessi orka krefst þess að það sem barnið lærir, læri það vel og vandlega.   Þetta getur haft áhrif á máltöku og málþroskann þ.e.a.s barnið getur tekið sér góðan tíma í að læra að tala eða jafnvel verið barnið sem segir ekki mikið en kemur svo öllum á óvart þegar það loksins byrjar með mjög skýrum orðum.   Hins vegar má aldrei túlka varfærni barnsins sem skort á gáfum heldur þarf barnið sinn takt í lærdómi.   Ef Satúrnus myndar erfiðar afstöður persónulegar plánetur geta hlutirnir farið í hnút og barnið verið mjög óöruggt og kvíðið þegar kemur að því að læra nýja hluti.   Hérna geta foreldrar gripið inn í ef þeir þekkja orsökina og stutt barnið annars geta skóla- og lærdómsmálin farið í hnút og vafið upp á sig inn í framtíðina....    

0 | 30.8.2011 14:59:34 #

Satúrnus í Nauti – Er ég þess virði?

Satúrnusi líður nokkuð vel í Nautinu því þetta er jarðbundin pláneta í jarðbundnasta stjörnumerkinu.   En Satúrnus er pláneta sem leggur fyrir okkur próf um leið og við fæðumst inn í þennan heim.   Barn með þessa stöðu hefur tilhneygingu til þess að óttast skort eða fá ekki nóg að borða því Nautið tengist peningum og eignum og þegar pláneta skorts fyllir þetta merki verður útkoman sú að barninu finnst það aldrei eiga eða fá nóg af efnislegum gæðum.   Þess vegna hefur það tilhneigingu til þess að safna hlutum og halda í svo jaðrar við þráhyggju.   Óttinn við að lána dótið sitt og týna því getur verið yfirþyrmandi svo barnið bregst við með ýktri eigingirni sem getur fylgt því út lífið. Hins vegar hefur það hæfileika til þess að fara vel með eigur sínar og verða nokkuð séð í peningamálum þegar fram í sækir, þótt hættan sé alltaf sú að sitja á sínu þangað til orkan blokkerast og staðnar uns það raunverulega upplifir sem það óttast mest, SKORT.   Þetta á ekki aðeins við á peningasviðinu heldur getur barnið þurft að glíma við lágt sjálfsmat.    Satúrnus í Nauti er mjög föst staða og getur verið erfitt að breyta þeim áhrifum sem barnið verður fyrir í æsku.   Því fyrr sem foreldrar skilja hvað liggur að baki hegðun barnsins og veitir því stuðning í að byggja upp heilbrigða og sterka sjálfsmynd því auðveldara verður þessi prófraun satúrnusar....        

 

0 | 29.8.2011 10:58:55 #

Satúrnus í Hrút - Á ég að þora að byrja..?

Þegar Satúrnus er í Hrút þarf barnið að glíma við töluverðar hindranir snemma á lífsleiðinni sem getur leitt til óöryggis og hræðslu við að taka frumkvæði og byrja á nýjum hlutum.   Barnið getur átt í erfiðleikum með sjálfsmyndina og gert of miklar kröfur til sjálfs sín um góða hegðun vegna þess að þannig upplifir barnið kröfur nánasta umhverfis sem venjulega kemur frá öðru hverju foreldrinu, oftast föðurnum.   Mjög mikilvægt er að barnið fá stuðning frá því foreldri sem það upplifir gagnrýnina frá, en ekki endalausar kröfur um fullkomna hegðun.    Þar sem Satúrnus er í stjörnukortinu erum við bundin í hnút og gerum oft óraunhæfar kröfur um fullkomnun.   Barnið finnur sig vanmáttugt á því sviði sem Satúrnus tengist og bregst oftar en ekki við með því að belgja sig út þegar í raun besta ráðið er að viðurkenna vanmátt sinn og vinna í málinu frá grunni.   Oftar en ekki er þetta ástæðan fyrir þjáningunni sem þessi pláneta skapar.   Þetta barn gæti tekið forystuna snemma og orðið stífur og ósveigjanlegur leiðtogi í þeim hópi sem það tilheyrir þangað til að stífnin og reynsluleysið kemur því í vanda.   Við foreldranir erum einmitt þeir sem geta leiðbeint barninu og komið í veg fyrir það versta og hjálpa því að byrja á byrjuninni....

0 | 26.8.2011 11:38:47 #

Engin fyrirsögn

0 | 0 | 24.8.2011 16:06:10 #

Satúrnus

Satúrnus er sjötta plánetan frá Sólu og er stundum kölluð pláneta karma en hún setur mörk og hamlar eins og útlit og lögun plánetunnar endurspeglar svo fallega (sjá myndaalbúm). Til þess að skilja orku Satúrnusar er gott að vísa í þann líkamshluta sem hún stýrir, en hver pláneta stjórnar tilteknum líkamshluta.   Beinagrindin eða stoðkerfi líkamans fellur undir Satúrnus.  

  Þar sem Satúrnus er í stjörnukortinu er ávalt mikið lærdóms- og þroskasvæði þ.e lífið kemur alltaf til með að taka á og jafnvel valda vonbrigðum og sársauka.   Ef við byrjum ekki á réttum enda, getur lífið valdið okkur vonbrigðum.   Þess vegna er svo mikilvægt að þekkja til hennar snemma á lífsleið barnanna okkar og styðja barnið á því sviði annars getur þessi orka ofið upp á sig og orðið erfiður og íllleysanlegur hnútur í lífi barnsins, sérstaklega ef hún er tengd við persónulegar plánetur.   Satúrnus getur auðveldlega plantað ótta við höfnun, hræðslu við nýja hluti og reynslu og lamandi vanmáttakennd allt eftir staðsetningu hennar í stjörnukortinu.   Þegar Satúrnus er áberandi sterk lærir barnið í gegnum mistök og reynslu, en með stuðningi foreldrana sérsaklega þess sem er áhrifameira í uppeldinu er hægt að milda þá reynslu sem barnið þarf að ganga í gegnum.   Þannig byggir það upp „sálrænt“ stoðkerfi sem endist. Satúrnus er í eðli sínu ósveigjanleg pláneta, líkt og beinin í líkamanum.

0 | 24.8.2011 11:12:15 #

Velsæld og heppni í Fiskamerkinu

Júpiter í Fiskamerkinu (trú á lífið,hluttekning,samúð)

Júpiter og Fiskamerkið eiga ýmislegt sameiginleg eins og að vera opið fyrir lífinu og möguleikum þess.   Barn með þessa stöðu er yfirleitt umburðalynt og hefur samúð með þeim sem minna mega sín.   Það býr yfir bestu eiginleikum Fiskamerkisins en hæfileikinn til þess að setja sig í spor annarra og sýna hluttekningu í sigrum og sorgum þess er ríkt í fari þess.   Það hefur meðfædda trú á æðri mætti sem leiðir til þess að það er verndað.   Einhvernveginn sleppur það fyrir horn í erfiðum aðstæðum lífsins.   Barnið kemur til með að sjá fegurðina í lífinu, jafnvel í ljótleikanum sjálfum, sem foreldrar eru kannski ekki eins hrifnir af.   Þeir ættu hins vegar að reyna að hlúa að þessum hæfileika barnsins til þess að trúa og treysta, því það kemur til með að opna fyrir gæfuna í lífi þess.....        

0 | 19.8.2011 11:49:10 #

Velsæld og heppni í Vatnsbera

Júpiter í Vatnsbera (mannúð, umburðalyndi,samvinna)

Júpiter í Vatnsbera er ávísun á mannúð og umburðalyndi gagnvart mönnum og málefnum.   Allir eiga rétt á að vera eins og þeir eru.   Barn með þessa stöðu býr yfir óvenju góðum hæfileika til þess að umbera ólíkustu manneskjur og jafnfram vinna með fólki sem það á lítið sameiginlegt með.   Þetta ættu foreldrar að nostra við fremur en að hefta því þessir eiginleikar eiga eftir að skapa barninu velvild síðar á lífsleiðinni.   Fólk og aftur fólk í allri sinni dýrð er barninu að skapi og vinna í þágu mannúðar og betri heimi er eitthvað sem barninu er í blóð borið.   Þetta er eins og fræ sem ber möguleika á því besta ef bestu skilyrði eru fyrir hendi.   Barnið kemur til með að hafa óvenjulegar og frumlegar skoðanir á lífinu og tilverunni sem munu fleyta því langt að þeim persónulegum markmiðum sem það setur sér í lífinu.....það þarf ekki að vera peningar....         

0 | 16.8.2011 13:01:59 #

Velsæld og heppni í Steingeitinni

Júpiter í Steingeit (agi,ábyrgð,dugnaður)

Júpiter í Steingeit er frekar heftur í þessu agaða stjörnumerki enda líka agaleysi aðalsmerki Júpiters og því kannski ekki upp á sitt besta í svona formföstu stjörnumerki. Hins vegar nýtist orkan óvenju vel og getur einnig skapað árangur á auðveldan hátt á sviði framkvæmda og stjórnunar.   Barn með þessa stöðu býr yfir frekar jarðbundinni sýn á lífið og tilveruna og því jarðtengdari sem barnið er í athöfnum því betur á því eftir að ganga í lífinu.   Uppskeran mun ekki láta á sér standa ef agi og ábyrgð eru innrætt snemma í uppeldinu.   Barnið er í eðli sínu íhaldssamt og trúir því að vinnusemi, ábyrgð og metnaður séu farsælastu gildin til þess að ná árangri í lífinu.   Það býr yfir meðfæddri vitneskju um hvað gengur og gengur ekki í okkar efnislega heimi og er því fljótt að láta af óraunsæum markmiðum og væntingum, enda mun skilvirkni alltaf skipta miklu máli í lífi barnsins. Það mætti halda að hér sé verið að fjalla um gamla manneskju en ekki barn, en málið er, þegar Steingeitin er annars vegar leynist alltaf óvenju þroskuð sál í ungum líkama...a.m.k. hvað varðar....      

0 | 15.8.2011 13:00:01 #

Velsæld og heppni í Bogmanni

Júpiter í Bogmanni (jákvæðni,ferðaþrá,heimspeki)

Júpiter í Bogmanni er heima í þessu opna og bjartsýna stjörnumerki.   Barnið hefur óendanlega löngun til þess að skoða heiminn og ferðast snemma um hverfið sitt í leit að fjársjóði.   Þetta er nefnilega barnið sem er líklegt til þess að finna peninga hér og þar á ferð sinni um nágrennið því það trúir að það eigi aðeins besta skilið sérstaklega þegar kemur að ferðalögum.   Trú og heimspeki á sér djúpar rætur í huga barnsins og kemur það til með að þroska með sér sterka siðferðiskennd.   Hins vegar er alltaf hætta á, þegar Bogmaðurinn er annarsvegar, að ekki sé farið eftir því sem predikað er, því barnið hefur unun af því að viðra lífstrúna sína þótt ekki hafi það vaxið fyllilega í hana.   Svo gott er að foreldrar hjálpi barninu að temja sér fylgni við jákvæðar lífsskoðanir sínar því þetta barn mun alltaf hafa sterkar skoðanir á lífinu og tilverunni sem bera í sér móralskan tón.   Þegar fram í sækir á barnið eftir að finna hamingju og velsæld í öllu því sem snýr að ferðalögum, sérstaklega ferðum til fjarlægari landa. Barnið kann virkilega að meta frelsi til orðs og æðis og um að gera að fóstra slíkt snemma enda opnar það fyrir lukkuna...........

0 | 4.8.2011 12:01:46 #

 

Velsæld og heppni í Sporðdreka

Júpiter í Sporðdreka (forvitni,sálfræði,heilun)

Júpiter í Sporðdreka er barnið er sannfært um að dauðinn sé inngangur að stóru ævintýri.   Ekki það að barnið sé haldið löngun til þess að deyja heldur er það jákvætt gagnvart þessum leyndardómi lífsins sem þýðir einungis langlífi eða að dauðastundin verði einstaklega ljúf.    Sporðdrekinn er stjörnumerki lífs og dauða og kemst oft nálægt því að leysa ráðgátu þessa mesta umbreytinga ferils lífsins.   Þegar Júpiter vermir þetta djúpa og tilfinningaríka merki verður lausn lífsgátunnar ofarlega í huga barnsins. Forvitni er barninu í blóð borið sérstaklega um hinn sálræna heim.   Gott er að fá barninu verkefni sem snýr að rannsóknum því hæfileiki á því sviði er þróaður og gæti opnað fyrir hamingju og velsæld.   Barnið býr einnig yfir óvenju sterkum heilunarhæfileikum og gæti jafnvel verið skyggnt eða næmt fyrir verum handan þessa heims.   Gæti jafnvel verið barnið sem leikur sér við ósýnilega veru sem veitir því mikla gleði og innblástur.   Alltaf þegar Júpiter er í vatnsmerki eru tilfinningar samúðar og innsæis sérstaklega sterkar og þróaðar og því nauðsynlegt að leyfa þeim að njóta sín því þar liggur gluggi gæfu og gjörvuleika í heimi barnsins.....  

0 | 2.8.2011 14:20:00 #