| Við erum sætu systkinin Daníel Dagur, Svanhvít Eva og Vaka Líf, sjarmatröll með meiru |
|
|
Um okkur:
Ég, Daníel Dagur fæddist á Landspítalanum í Reykjavík sunnudaginn 17. september 2000 kl: 04:16 á afmælisdaginn hans pabba míns, ég átti að fæðast 15.sept en ákvað bara sjálfur að koma á rétta deginum. Ég var 3890 gr. eða 15,1/2 merkur og 53 cm, ljósmóðirin mældi mig tvisvar því hún trúði því ekki að ég væri svona stór og ætti svona litla mömmu híhíhí. Ég fæddist með svart hár og eiginlega svört augu en nú er ég skolhærður og er með brún augu. Fæðingin gekk eins og í sögu og tók allur pakkinn ekki nema 8 tíma. Amma Ásthildur var viðstödd og fannst mömmu rosalega gott að hafa hana líka með pabba.
Ég, Svanhvít Eva fæddist sunnudaginn 27. nóvember 2005 kl. 10:27 á Landspítalanum í Reykjavík. Ég átti að fæðast 25. nóv en mamma var búin að segja allann tímann að ég kæmi 27. og það stóðst enda viljum við öll hafa 7 í afmælisdeginum okkar. Svo áttu líka amma Svanhvít og afi Kolli 20 ára brúðkaupsafmæli þennan dag og langafi Óli hefði orðið 71 árs líka. Ég var 52cm og 3855 gr. með brún-rauð-gyllt hár og blá augu en núna er ég rauðhærð með móuð augu. Mamma var með hríðar í sólarhring en svo loksins þegar ljósan gerði gat á belginn þá var hægt að snúa mér þar sem ég var með andlitið niður (að horfa til himins) og þá fæddist ég 4 tímum seinna og gekk það vel. Þegar ég var komin í heiminn og í fangið á mömmu hljómaði lagið Hún (tendraði ljósið, þegar dimmast var) með Skítamóral og átti það nú vel við í öllu erfiðinu híhí. Amma Svanhvít var viðstödd og var það rosa gott að hafa hana. Ég Vaka Líf fæddist á Landspítalanum 14. júní 2011 kl. 22:48 með mikið dökkt hár og blá augu. Ég var 52 cm og 3595 gr. Ég fæddist í baði og gekk það mjög vel. Ég átti að fæðast 6. júní en lét bíða eftir mér í 8 daga og kom þá líka með stæl. Mamma okkar heitir Kiddý og pabbi okkar heitir Óli. |
|
|
Annað:
Mamma mín segir að ég (Daníel Dagur) sé algjör gullkornakóngur því það veltur upp úr mér hvert gullkornið á eftir öðru. Gullkornin eru líka farin að koma frá Svanhvíti Evu svo endilega kíkið á þau líka.
Myndaalbúmið okkar er læst en ef þið viljið kíkja á myndirnar þá sendið þið mömmu bara póst og hún veitir ykkur örugglega aðgang.
Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.
Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.
Ef þú vilt senda okkur póst þá er mömmu netfang kiddy_75@hotmail.com og pabba netfang er stix@internet.is. Endilega ekki gleyma að skrifa í gestabókina okkar, það er jú svo gaman að fá kveðjur.
Alexandra Sól Antonía Mist og Björgvin Steinar Arnsteinn Kári, Camilla Dögg og Brynjar Hrafn Gulli stuðbolti Gunnar Flosi, Birgitta Fanný og Jakob Franz Indiana Elísabet og Bryndís Björk Ísak Andri sæti frændi Hafþór Pálmi Ingvar Andri, Elín Rósa og Matthías Ingi Ívan Atli frændi okkar Kristbjörg Ásta frænka okkar Kristófer Kári Lilja Björk og systkini Magnea Dís Sunna Þuríður og Bjarki Freyr Tómas Nökkvi, Kristján Fannar og Erik Þór Viktoría Dís og Alexandra Ósk Viktor Carl
Svona margir gestir hafa kíkt til okkar frá 29/7 '02 |
| Þú ert gestur nr. 68669 |