Velkomin/n í heimsókn.
Ég heiti Íris Alma og er orðin 3ja ára krúttbomba!!!


Um mig:

Ég fæddist föstudagsmorguninn 15.febrúar 2008 á FSA. Systkini mín voru alveg harðákveðin í því að ég væri strákur og líka að ég myndi koma í heiminn 5.febrúar, þar sem Agnar Daði er fæddur 5.júlí og Hafdís Inga 5.mars og þau sögðu að það kæmi ALLTAF strákur, stelpa, strákur, stelpa. En ég ákvað nú bara að eiga minn eigin dag og í þokkabót að vera bara lítil falleg stelpa.
Ég var með mikinn dökkan lubba og dökk augu, bara alveg eins og fallegu systkini mín voru þegar þau fæddust. Mamma var nú spurð að því á spítalanum hvort það væri bara ein stelling í boði á heimilinu!!! No comment!

Ég á æðisleg systkin sem passa þvílíkt vel upp á mig og vilja sko allt fyrir mig gera, ekkert smá heppin ég.

Leikskólinn minn heitir Grænuvellir og deildin mín Bali.

Lykilorðið er það sama og hjá systkinum mínum. Þið sem vitið ekki lykilorðið hikið ekki við að senda múttu póst á joasig@internet.is




Annað:

Afi og amma í sveitinni gáfu mér vísu/bæn með nafninu mínu og það er svona:

Ljós í hjarta lífið skreytir,
ljúf þín spor og gæfan vís.
Unaðsstundir alltaf veitir
Íris Alma, heilladís.
Þú ert gestur nr. 5303