Verið öll hjartanlega velkomin
Eins og flest ykkar vita heiti ég Gabríel Douane Boama.


Um okkur
Gabríel Douane:Ég fæddist mánudaginn 7 janúar 2002 kl 10:50 á Landspítalanum í Fossvogi.Mér lá svo rosa mikið á að koma í heiminn að ég kom 3 vikum fyrr.Fæðingin gekk mjög vel hjá henni mömmu minni sem betur fer,hún stóð aðeins yfir í tæpar 3 klukkustundir.Ég var með smá gulu útaf því ég kom of snemma og þurfti að fara í hitakassa.það var allt í lagi því pabbi sat hjá mér á meðan. nú ég var 3830 grömm og 52 cm.Ég er með svart hár og dökkbrún augu,svakalegur sjarmör.Það finnst ömmu allavega.
Anton Mario:Ég fæddist laugardaginn 31.mars 2007 kl:05:27 á landspítalanum í Fossvogi.Lét bíða eftir mér í 5 daga.Fæðingin gekk vel,var aðeins lengur að koma enn stóri bróðir,allt í allt var þetta um 5 tímar.Eins og Gabríel þá er ég með svart hár og dökkbrún augu og ömmu finnst ég líka ofsa sætur,Ég var 4310 grömm og 51 cm.
Mamma mín heitir Unnur Anna og pabbi heitir Edwin




Þú ert gestur nr. 4881