Dásamlegustu systur veraldar - Bjarney Halla & Alma Karen -


Um mig:
Á áætluðum fæðingardegi þann 09. júlí 2008 fæddist undurfalleg lítil prinsessa. Daman kom í heiminn kl 05:06 og mældist hún 4070gr eða rétt rúmar 16 merkur og 56,5cm á lengd - algjörlega fullkomin.
Mömmunni gekk ótrúlega vel að koma prinsessunni í heiminn með góðri aðstoð pabbans og tók allt heila ferlið aðeins fjóra og hálfan tíma frá fyrsta verk - það mætti því segja að ljósið hafi verið að flýta sér í heiminn til að sjá spenntu foreldrana.

í September 2010 upplifðu foreldrarnir aftur þá ánægju sem það er að eignast barn þegar litla systir kom í heiminn. Alma Karen fæddist 4. september kl 23:57 eftir að mamman var búin að vera með smotteríis verki í um 2 klst. Hún fæddist 3475gr eða rétt tæpar 14 merkur og 52cm - alveg jafn fullkomin og stóra systir.

baby





Mamma okkar heitir Heiðdís Dögg og er hún lærður hjúkrunarfræðingur og heitir pabbi okkar Viðar, hann er bifvélavirki og starfar sem slíkur.
Foreldar okkar gætu hæglega rifnað úr stollti yfir að eiga tvær svona fullkomnar og flottar stelpur:)

Amma stelpnanna mömmu megin heitir Elísabet Lilja og afi heitir Sigurbjörn Ingi, þau búa ásamt tveim systkinum mömmu, þeim Lilju Rós og Reimari Inga í Danmörku.
Amma og afi í sveitinni heita Garðar og Inga. Pabbinn á tvær systur - þær Ebbu Karen sem er í námi í Reykjavík og Magneu sem býr á Ísafirði.
Bjarney Halla og Alma Karen eru fyrstu barnabörnin hjá báðum ömmu & afa - pörunum og eru þær því algjörar dekurrófur..
Eins eiga þær fullt af langömmum og langöfum...þannig að það er ekki hægt að segja annað en að þær séu ríkar ungar dömur.




Þú ert gestur nr. 18253