Linkur á nýju síðuna okkar.Skarðshlíðarfjölskyldan >
Ég heiti Einar Geir Ingólfsson


Um mig:
Ég heiti Einar Geir og bý á Akureyri,með mömmu minni,Andrési manni mömmu og litla bróður sem er fæddur 24 okt´06,ég fæddist 16 október 2002,ég átti nú samt ekki að fæðast fyrr enn sex vikum seinna eða 28 nóv,enn mér lá svo á að komast í heiminn,ég var 9 merkur og 45 cm þegar ég fæddist,með alveg dökkblá augu og alveg dökkhærður með mikið hár;)ég er fyrsta barn foreldra minna saman,enn ég á hálfbróðir sem heitir Ívar Örn,enn hann er sonur pabba,ég fæddist á Landspítalanum og voru pabbi og amma viðstödd fæðinguna,hún gekk mjög fljótt og vel fyrir sig,tók aðeins 3 tíma frá því mamma missti legvatnið.mamma mín heitir Hafdís og pabbi minn Ingólfur Valur,svo á ég 2 ömmur,amma María í RVK og amma Ragna á Þórshöfn,ég á líka 3 afa,afi Geiri í RVK,afi Sæmi á Þórshöfn og svo Ívar afi sem er pabbi pabba.Ég á líka 2 langömmur,ömmu Rúnu og ömmu Lilju,svo á ég 1 langafa, hann heitir Gunnar.Ekki má nú svo gleyma nafna mínum og Guðföður honum Einari Halli frænda,enn hann er bróðir mömmu.Svo á ég líka tvær frænkur sem ég er rosalega hrifinn af en það eru Ólöf frænka og Valgerður frænka,enn þær eru báðar hálfsystur mömmu;).













HEIMASÍÐA litla bróðurs,KLIKKIÐ Á MIG






Kærleikur er, hvert góðverk sem þú vinnur.
Kærleikur, er hvert bros sem þú gefur.
Kærleikur, er að gefa þeim sem þarfnast.
Kærleikur, er umhyggja fyrir öllu sem lifir.
Kærleikur, er að biðja fyrir öllum, góðum sem slæmum
Kærleikur, er að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra.
Kærleikur, er að dæma ekki.
Kærleikur, er ljósið sem býr í hjarta þínu.
Kærleikur, er hvert bros sem þú gefur.
Kærleikur, er að faðma þann sem grætur.
Kærleikur, er að hugga þann sem syrgir.



















ÉG er sko ALGJÖRT



























































Hann ljómar
.....Yndislegi sonur okkar.
Hann sefur,brosir og hlær,
Andlitið svo fullt af forvitni
og töfrum að okkur finnst
heimurinn hafa verið skapaður
honum til heiðurs ;)
Elsku Einar Geir okkar,
Kveðja mamma og pabbi









Ég er alger álfur, Meira segja er ég jafnstríðin og hrekkjóttur og þeir;) Enn samt svo SAKLAUS















Einar

Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ein" sem merkir einn, - mjög, - afar og viðliðnum "ar" sem merkir hermaður.

Einar er því sá sem berst einn, - einherji.


Geir

Nafn þetta merkir spjót.



















SÓLSKINSBARN


Hann er ljóshærður og laglegur

hann er ljúfur eins og vor

stráir ástríku yndi

við hvert einasta spor.

Hann er elskaður af öllum,

og í athöfnum dyggur.

Hann er sólskinsbarn síglatt,

hann er saklaus og tryggur.





Annað:












Ég elska þig svo mikið
og mig langar svo til að segja þér af hverju

Það eru margar ástæður fyrir því að ég elska þig
Þú ert besta mamman í öllum heiminum
Ég á þér svo margt að þakka
Ég er svo stolt yfir því að vera sonur þinn

Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig þegar ég hef þurft á þér að halda
Þú lýsir upp líf mitt
Frá þér streymir kærleikur og hlýja
Þú ert skilningsrík
og viskubrunnur þinn er óþrjótandi

Það er svo margt sem þú hefur kennt mér um lífið og tilveruna
Ég veit að ég væri ekki sú manneskja sem ég er í dag
ef ég hefði ekki átt þig að
Þú veist alltaf á hverju ég þarf að halda
og hvenær ég þarf uppörvun
Þú þekkir mig svo vel
Ég veit að til þín get ég alltaf leitað

Mig langaði bara svo mikið til að segja þér hve mikils ég met þig
Ég hef allt of oft tekið þig sem sjálfsögðum hlut

En það sem máli skiptir er að þú vitir að ég elska þig

ÞÚ ERT BEST MAMMA MÍN













Mig langar svo til að segja þér hve kær þú ert mér
og hve mikils virði þú ert í mínum augum
Ég tel mig lánsama/-nn að hafa fengið að kynnast þér
Ég væri ekki sú/sá sem ég er í dag nema vegna þín

Þú hefur leitt mig í gegnum lífið
þurrkað tár mín og huggað mig á slæmum tímum
Þú hefur stórt hjarta, fullt af viskuÞú hefur hjálpað mér að ná draumum mínum

Ég vildi að ég gæti gefið þér þann hæfileika að geta
séð sjálfan þig með augum annarra
Þá myndir þú sjá hve sérstakur þú í rauninni ert

Takk fyrir að vera til
Takk fyrir að vera til staðar
Takk fyrir að vera þú

Ég elska þig pabbi minn

ÞÚ ERT BESTUR
















AFA OG ÖMMU BOÐORÐIN TÍU.

1. Þú skalt alltaf vera að knúsa og kyssa barnabarnið þitt.

2. Þú skalt gefa því ótakmarkað af kökum.

3. Þú mátt ekki gleyma að kyssa á öll báttin.

4. Þú skalt alltaf vera í sambandi -- í eigin persónu, símleiðis eða með pósti.

5. Þú skalt deila góðum minningum og sögum.

6. Þú skalt alltaf vera tilbúin með nammiskálina.

7. Þú skalt verðlauna góðar einkunnir og íþróttasigra.

8. Þú skalt leyfa því að vaka lengur en háttatíminn segir.

9. Þú skalt vera örlát/ur á lof og hrós.

10. Þú skalt segja því -- við hvert tækifæri sem gefst-- að þú elskir það.



















Bænin mín

Vertu Guð faðir,faðir minn
Í frelsarans Jesús nafni
Hönd þín leiði mig út og inn
Svo allri synd ég hafni.

Amen










ÖMMUR MÍNAR ERU ENGLAR


Þær fljúga um eldhúsið, að búa til allskonar góðgæti
einsog

Súkkulaði afmælisköku
(mmm..)

Þær lesa sögur fyrir mig

Gefa mér gjafir.....

.....Fara með mér í búðir

Laga föt,leikföng og brostin hjörtu

Best af öllu

Þeim finnst ég vera engill líka..


















Þakka þér fyrir ömmur mínar og afa mína,
sem eru svo góð við mig;)
Þakka þér fyrir alla vini mína,
sem ég leik mér við.
Þakka þér fyrir frænda minn
Og bróður sem ég dýrka og dái;)
Láttu ekki öfund eða deilur
spilla lífi okkar
og leikjum.

Amen










ENDILEGA MUNIÐ EFTIR GESTABÓKINNI MINNI, Klikkið hér fyrir neðan og þið komist beint inn á hana;)
Gestabókin mín












Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: ?Hvað finnst þér?? Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína




















Bless bless,og munið nú eftir að kvitta í gestabókina mína ;)




Þú ert gestur nr. 35958