Hæ þið öll og verið hjartanlega velkomin í heimsókn :)


ÉG heiti Almar Freyr og bý í Mosfellsbæ, ég er í Varmárskóla í 2 bekk


Um mig...
Ég, Almar Freyr, á afmæli 7. desember og fæddist árið 2002. Ég á mömmu sem heitir Hafrún Ósk og pabba sem heitir Jói Palli.

Ég á þó nokkuð af systkinum, bæði stjúp og hálfsystkinum en ekkert alsystkin, þó bræður mínir séu nánast albræður mínir, því við erum að alast saman upp á sama heimili... ÞAÐ dugar alveg :)

Emil Agnar er elsti bróðir minn, hann er fæddur árið 1997 og er orðinn stór og þó nokkur töffari... Hann er orðinn stærri en mamma þó hann sé ekki fermdur enn. Hann á heimasíðu hér


Ég á lítinn glænýjan bróðir sem fæddist 28. janúar 2010. Hann er ekki kominn með nafn en við köllum hann Ísbjörn Húna - hann á heimasíðu og getið þið séð hana hér


Svo á ég eina systur sem heitir Anna Kristín, fædd 1988. Pabbi minn á hana.

Ég á 2 stjúpsystur sem heita Helga Rakel, fædd 1998 og Vigdís, fædd 2000, þær koma til okkar aðra hverja helgi. Þær má sjá hér, en þær eiga ekki heimasíðu.


Þið megið alveg skrifa í gestabókina okkar ....það er samt aðallega fyrir mömmu því hún hefur svo gaman af að lesa hverjir koma:)

Ekki gleyma að kvitta fyrir ykkur !!:)




Hér gefur að líta brot af fæðingarsögunni minni....

Ég fæddist þann 7. desember 2002 á Landspítalanum - Ég fæddist rétt eftir miðnættið, eða klukkan 01:49. Fæðingin gekk vel og gátum við þetta án læknis og var mamma rosalega ánægð með það :)

Ljósmóðirin sem tók á móti mér heitir Elínborg og hún var alveg svakalega fín og skemmtileg kona, hún sprengdi belginn klukkan hálfþrjú um daginn og fór svo heim og kom ekki aftur fyrr en hálftólf um kvöldið og þá fyrst fór eitthvað að gerast af viti, og ég kom tveim tímum seinna - Hrafnhildur systir mömmu var nú eiginlega ljósmóðirin sko - því hún var hjá mömmu ALLAN tímann - vék aldrei frá henni og hún ruggaði rúminu, nuddaði mjöðmina á mömmu þegar hríðarnar komu og svo hélt hún þvottapoka á enninu og hjálpaði henni að gubba (eða halda að hún þyrfti að gubba ;) ) pabbi og amma Adda voru líka hjá okkur og hjálpuðu til :) - en Hrafnhildur las allar hreyfingar mömmu og skildi öll táknmálin og þýddi fyrir hina ;) Mamma man líka eiginlega mest eftir henni í þessu öllu saman, en...það var svaka góð þjónusta sem hún bjó við í þessa 10 klukkutíma sem hríðarvesenið og það tók, því pabbi var að halda í hendina hennar og Adda nuddaði tásurnar á mömmu ótrúlega lengi.... Öll gerðu MIKIÐ til að hjálpa við að ég kæmist í heiminn án nokkurra hjálpartækja því mamma var svo hrædd við það...Því læknirinn sem tók á móti stóra bró.. hann Reynir T. Geirs hann sko notaði töng og höfuðkúpubraut hann í leiðinni.....Mamma vildi sko ekki fá svoleiðis upplifun takk fyrir.

Ég var 17 merkur og 54 cm við fæðingu, og bara alveg rosalega sprækur og frískur strákur.

Ég er ljóshærður og með himinblá augu, fólk segir að ég sé alveg eins og pabbi minn..... mömmu finnst nú samt ég vera likur sinni fjölskyldu - til dæmis afa Sigga og Magga bróðir mömmu. :)





Stjörnumerkið mitt

Ég er í stjörnumerkinu Bogamanninum, og þetta segja stjörnurnar um mig, það er nú ekkert ofsagt hér og á allt vel við mig enn sem komið er allavega:


"Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð."




Hérna koma nokkrir linkar inn á heimasíður af ýmsu tagi.....


Hér eru Ásta Margrét og Eydís Ósk bestu dúllur EVER

Ástrós Mirra...Mamma hennar vinnur með mömmu minni í Maritech..



MAMMA

Er konan sem kemur manni i heiminn með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og
ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað
meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum
fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma
manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel
um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með
útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda,
þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst
með manni þegar það er gaman að vera til

MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI.



Að lokum:


Vaki englar vöggu hjá,
varni skaðanum kalda.
Breiði Jesús barnið á
blessun þúsundfalda.

***

Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.

***

Nú legg ég augun aftur,
ó Guð þinn náðarkraftur,
mín veri vörn í nótt
æ virst mig að þér taka
mér yfir láttu vaka
þinn engil svo ég sofi rótt.



Þú ert gestur nr. 35480