| Velkominn á heimasíðuna okkar |
| Við heitum Elín Helena, Guðmunda Marta & Kolbrún Nanna Karlsdætur |
|
Um mig:
Elín Helena fæddist í Hreiðrinu á Landspítalanum í Reykjavík þann 6 ágúst 2002, kl. 04:39. Fæðingin gekk mjög vel fyrir sig og mamma þurfti engin verkjalyf við að koma henni í heiminn. Hún var tæpar 14 merkur, 3470 gr. og 51 cm. Hún var með dökkbrúnt hár og dökk augu, núna er hún með stór dökkbrún augu eins og mamma og þvílíkt löng augnhár. Guðmunda Marta fæddist á fæðingardeild Landsspítalans þann 29. okt. 2005, kl. 14:40. Fæðingin var frekar löng og var mamma orðin voða þreytt í lokin! Hún var 15 merkur, 3780 gr og 53 cm. Guðmunda Marta er líka með stór brún augu og dökkbrúnt hár eins og stóra systir:-) Kolbrún Nanna fæddist í Hreiðrinu 5 ágúst 2009, kl 06:22. Fæðingin gekk mjög vel fyrir sig, og tók ekki nema rúma 2 tíma frá því að við mættum í Hreiðrið. Hún var 15 merkur eins og Guðmunda Marta, 3780 gr & 52 cm. Hún er með stór dökk augu eins og eldri systurnar og dökkt hár! Mamma okkar og pabbi koma bæði frá Borgarnesi, mamma heitir Sólveig Ásta Guðmundsdóttir og er leikskólakennari og pabbi heitir Karl Guðjón Karlsson og er hann vélvirki. Við búum í Kópavogi, pabbi er að vinna í Marel en mamma er að vinna á leikskólanum Núpi. Elín Helena er í 4 bekk í Lindaskóla og líkar rosalega vel. Hún er í fimleikum hjá Gerplu 3x í viku og finnst það svaka gaman og svo er hún í fótbolta hjá Breiðabliki 3x í viku. Guðmunda Marta er í 1 bekk í Lindaskóla og líkar mjög vel, búin að kynnast fullt af skemmtilegum krökkum, hún er í handbolta hjá HK 1x í viku og í fótbolta hjá Breiðabliki 2x í viku. Kolbrún Nanna er byrjuð á leikskólanum Núpi og er á deild sem heitir Hvammur, henni finnst voða skemmtilegt þar og búin að kynnast fullt af skemmtilegum krökkum. Mamma og pabbi eru alveg svakalega stolt af okkur og hika ekki við að segja að við séum bestu og fallegustu stelpurnar í heiminum:-)
|
|
|
Annað:
Við eigum eitt sett af afa og ömmu í Borgarnesi og eitt sett í Kópavogi, svo eigum við eina langömmu og fullt fullt af frænkum og frændum svo þið sjáið að við erum svakalega ríkar:-) Afi og amma í Borgarnesi heita Guðmundur Jónsson og Elín Helga Þórisdóttir, Davíð Örn bróðir mömmu á heima í Reykjavík, 27 ára töffari hann á kærustu sem heitir Thelma Rut, Jón Þórir bróðir mömmu á heima á Akranesi, konan hans heitir Katrín Edda og þau eiga 3 börn Ívar Hrafn töffara sem er 14 ára, Ástu Sóley pæju 10 ára og Írisi Petru 5 ára. Jón á líka eina stóra stelpu sem heitir Linda Rut og hún er 27 ára og á heima í Svíþjóð, maðurinn hennar heitir Villi og þau eiga lítinn prins hann Jóhann Elí sem er 5 ára. Helena Björk systir mömmu á heima í Borgarnesi og hún er algjör skvísa, maðurinn hennar heitir Pálmi og þau eiga tvo stráka Elvar Daða algjöran gægja sem er 10 ára & Guðmund Elís sem er bráðum 3 ára. Afi og amma í Kópó heita Karl Ómar Karlsson og Fríða Guðjónsdóttir, Guðmunda frænka systir pabba á líka heima hjá þeim, hún er 28 ára og ótrúleg gella, hún er kennari í Lágafellsskóla. Kolbrún stóra systir hans pabba á líka heima í Kópavogi og hún er líka ótrúleg pæja, maðurinn hennar heitir Einar Kári og þau eiga 2 börn, Fríðu Rún fimleikastjörnu sem er 19 ára og Viktor Karl fótboltakappa sem er 15 ára. Júlíana langamma (mamma Ellu ömmu) á heima í Borarnesi. Svo þið sjáið að við mamma og pabbi eigum mjög góða að:-)
|
| Þú ert gestur nr. 53833 |