Velkomin á heimasíðuna okkar
Við heitum Anika Rut og Bjarki Hrafn


Anika Rut fæddist á Landspítalanum sunnudaginn 2. febrúar 2003 kl. 18:03. Hún var 15 merkur (3.790gr) og 51 cm.

Bjarki Hrafn fæddist á Hvidovre Hospital í Kaupmannahöfn miðvikudaginn 7. október 2009 kl. 15:16. Hann var 17 merkur (4.274gr.) og 55 cm.

Mamma okkar heitir Heiða Dís og pabbi Sturla Hrafn. Mamma er ljósmyndari og margmiðlunarhönnuður og pabbi er rafeindavirki og er að læra upplýsinga og tæknifræði.
Við búum í Kaupmannahöfn.




Anika
Nafn þetta er þýsk smækkunarmynd, samsett úr orðunum "Anna" og "chen" og merkir Anna litla

Rut
Nafn þetta er komið úr biblíunni en merking er ekki þekkt.




VATNSBERINN

20. janúar - 18. febrúar

Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass

Þú ert gestur nr. 16763