Um mig:
Magnús Ernir fæddist á Skejby sjúkrahúsinu í Árósum, þann 20. september 2002, kl. 18:59. Hann var 16 merkur (3950g) og 56 cm.

12. júní 2006 kom Ari Már í heiminn á Hreiðrinu í Reykjavík. Fæðingin gekk rosalega vel, mamma átti hann standandi. Ari Már var með kolsvartan koll og 3330 g og 52 cm.

Valdís Inga fæddist tveimur mínútum fyrir miðnætti þann 25. febrúar 2009 og fæddist í baðinu í Hreiðrinu, synti í heiminn og í fangið á mömmu sinni :-) Hún var 3590 g.



Magnús Ernir er meyja og hér kemur lýsing á henni:
23. ágúst - 22. september

Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.


Mikið geta ljós heimsins fæðst lítil en verið þó ljós heimsins um leið" (Nína Björk Árnadóttir)









Annað:

ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ



Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.

Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.

Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðaleysi.

Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.

Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.

Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.

Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.

Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.

Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.

Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.

Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.













Þú ert gestur nr. 147335