Lífid er yndislegt... 

Hér er komid vor! Jiii hvad thad er ólysanlega ljúft ad vera meira úti vid, ganga meira og hjóla, fylgjast med blómum og trjám fylla loftid angan og litafegurd :0) Krakkarnir eru líka ad njóta thess ó botn, eru úti meira og minna allan daginn í skólunum sínum og yngstu farin ad drekka eftirmiddagskaffi úti á leiksvædinu. Thegar heim er komid førum vid sídan út á róló eda í gardinn (adallega gardinn okkar thó). Strákarnir fara líka mikid út á fótboltavøll med krøkkum í hverfinu. Líka svo mikil snilld ad núna geta strákarnir farid tveir saman, Ari er allt í einu ordinn svo stór, alveg ad verda 5 ára!! 

 

Magnús er mjøg gladur alltaf í skólanum, fellur mjøg vel inn í bekkinn, algjør snilld. Kennararnir eru líka ædislegir. Vid førum á foreldrafund í byrjun maí og hløkkum til ad heyra meira. 

 

Thad er nóg ad gera hjá okkur foreldrunum í skólanum. Tjørvi er kenna og sjálfur í kúrsum og svo skrifa. Hann fer í próf í maí og er búinn í theim lok maí. Ég er byrjud á tveimur prófritgerdum, thær eiga ad vera 15-20 sídur, skil 24.maí. Sídan eru munnleg próf úr theim bádum lok júní. Thannig thetta verdur alveg slatti... En elsku amma Hanna ætlar ad koma og vera allan maí og létta undir med okkur og adstoda med kids. Ég vidurkenni ad thad verdur algjørt ædi, thó svo ad allt gangi vel og allir eru ánægdir í sínu thá er ekki laust vid pínu threytu og stress svona inn á milli, huhumm. En thad kannast líklega fleiri fjølskyldur vid thetta ;0) 

En sídan eru fleiri gódir gestir á leidinni!! Karen, Grétar og Rakel Sif koma núna á fimmtudaginn, thad verdur svo frábært ad sjá thau. Verdur líka spennandi ad sjá pæjurnar leika sér saman, Rakel Sif verdur jú 2 ára í júlí thannig thetta verdur ædislegt.

En segi nú bara gledilega páska til ykkar allra nær og fjær!

 

 

16.4.2011 | 09:03
 |  Athugasemd / Besked

Hæ hæ og hó hó!

Árid 2011 byrjadi af krafti hér hjá okkur. Ég var í prófum thangad til 24. jan. En thetta gekk einhvern veginn upp, Tjørvi tók vid børnum og búi thegar hann var búinn í sínum prófum 11.jan. og sá um smákøkubakstur og fleira stúss. Tengdamamma kom í heimsókn og hjálpadi líka heilmikid til eins og henni einni er lagid :0) Vid fengum margar gódar fréttir í byrjun ársins. Ég fékk skólastyrk sem létti heilmikid á okkur og thýdir ad dæmid gengur upp... Magnús Ernir fékk ad vita ad er ad fara í hverfisskólann og fékk meira ad segja bekkinn sem hann vildi allra mest og heitir 2.F. (hér er 3.bekkur 2.bekkur thví 6 ára bekkur heitir 0.klasse). Í thessum bekk eru strákarnir sem hann er æfa med fótbolta og hann er líka búinn ad kynnast theim í skóladagvistinni. Hann er ekkert smá ánægdur og stoltur yfir thví ad vera  búinn ad læra svona mikid í dønskunni og geta núna farid í skólann hér. Thad verdur svakalega mikill munur og vid vonum ad hann adlagist vel thar.

Ari Már er svakalega gladur núna á leikskólanum. Honum lídur greinilega mjøg vel thar. Ef ad thad dregst eitthvad á langinn á morgnana ad fara af stad thá rekur hann á eftir okkur, vill bara komast af stad ad hitta vini sína. Thau eru líka svakalega dugleg ad gera allskonar med theim, ótrulegt hvad theim dettur í hug. 20. janúar var "Skør dag" hjá theim eda "Klikkadur / fáranlegur dagur" Thá áttu allir ad mæta ekstra snemma, medan thad væri myrkur. Ari var mættur um kl.7 , hehe. Thá var búid ad kveikja bál úti á leiksvædinu og engin ljós kveikt á øllum leikskólanum, bara luktir út um allt. Úti fengum thau braud og pylsur, hitad á eldinum. Sídan áttu allir ad vera í náttføtum undir kuldagøllunum. Thegar Tjørvi sótti Ara sídan thá voru thau ad borda nestid sitt. En thad var ekki gert á venjulegan hátt, heldur var búid ad snúa øllum bordum og stólum á hvolf og thannig bordudu thau. Mjólkin var sídan raud og thau fengu sér popphálsmen í eftirrétt sem thau bjuggu til sjálf. Ótrúlega snidugt og skemmtilegt.

Valdís Inga er líka svakalega ánægd á vøggustofunni. Vid fórum á 1.foreldrafundinn um daginn og thar kom í ljós ad thad gengur mjøg vel med allt saman. Hún er mjøg ákvedinn fannst henni, en thad voru nú engar fréttir fyrir okkur, hahaha. En hún er líka ljuf vid hina krakkana, thó svo ad hún láti sko ekki vada yfir sig. Hreyfthroskinn er mjøg gódur , hún ætlar sér ad geta allt. Leikskolakennarinn hennar sagdi ad hún væri "en sej en" eda hvernig thýdir madur thad: lítill nagli :0) Leikskolakennarinn var samt í pínu baráttu vid hana fyrst thví Valdís var eitthvad ad mótmæla rúgbraudinu hjá theim, hún getur alveg thrjósk, en thad tók bara smá tíma og núna gúffar hún thessu øllu í sig og vel af thví. Thau fá rúgbraud og allskonar álegg, fiski- og kjotbollur o.s.frv. í hádeginu, thad er ekki heitur matur.

En Valdís er búinn ad vera frekar óheppinn med flensur og grípur allt núna sídastlidna mánudi. Hún fékk eyrnabólgu í des. Sídan kvefpest, magapest í byrjun jan. og núna er hun buin ad vera lasin í 8 daga, med smá í eyrunum og eitthvad í lungunum líka. Hitinn var 40 á fimmtudaginn sídasta og fór upp í 40,7 á laugardaginn. En hún er á pensilini og er øll ad koma til. Hún er farinn ad líkjast sjálfri sér á ný med góda skapid og grallarataktana.

Thad er annars líka búid ad vera mikid fjør á heimilinu. Sonja, Teddy, Chaz, Katla og hundurinn theirra Tackó komu á laugardaginn og Gísli kom á thridjudaginn. Algjørt ædi ad sjá thau aftur!!! Bara pínu svekkjandi hvad Valdís er búinn ad vera lasin en vid erum samt búin ad hafa thad mjøg notalegt. Annadkvøld fer gamla fólkid sídan á Thorrablót hjá Íslendingafélaginu hér í Aarhus. Pétur Jóhann er veislustjóri og Páll Óskar med ballid! Thad verdur bara fjør ad dusta rykid af dansskónum :0)

segjum thad í bili - vona ad ég fari ad dusta líka rykid meira af thessari vefdagbók...

tjaó

4.2.2011 | 13:47
 |  Einn hefur sett athugasemd

Ari Már í 4 ára skoðun

Hér í DK er 4 ára skoðun þannig við pöntuðum í hana og ég fór með Ara áðan. Ég vissi reyndar ekki alveg hvað átti að gera, en það var hlustað, hoppað á einum fæti, vigtað og hæðin mæld. Læknirinn spjallaði við Ara á dönsku og spurði m.a. hvað besti vinur hans á leikskólanum heitir. Hann skildi það vel og svaraði "Asbjörn". Hún spurði hvort hann ætti fleiri góða vini og þá sagði hann "Björn". Þessar samræður átti hann á dönsku við hana án þess að ég þurfti að skipta mér af eða þýða, svakalega duglegur. Hann vildi nú samt ekki segja henni hvað leikskólinn heitir enda er það ekkert skrýtið því hann heitir bara "Hjallinn minn". Mér finnst það svo sætt, hann setur = merki á milli leikskóli og Hjalli , hvað annað Cool Ari Már Tjörvason er orðinn 18,4 kg og 111 cm. á hæð. Hann er 4 ára og 4 mánaða þegar hann fer í þessa skoðun. Þegar hún skoðaði kúrvuna þá kom í ljós að hann er vel yfir meðallagi í hæð og þyngd og læknirinn spurði því hvort að pabbinn væri hávaxinn Laughing ég sagði svo ekki vera og var hún frekar hissa á því. Ég var einmitt spurð að þessu líka þegar ég var einu sinni með Magnús Erni í skoðun þegar hann var nokkra mánaða því hann var svo langur þá. Er þetta eitthvað grunsamlegt eða... En í skoðuninni kom í ljós að það þurfti að sprauta. Ari er svo mikið hörkutól að hann rúllaði því upp, komu bara nokkur tár og kúrði hann bara í mig og jafnaði sig. Síðan fékk hann nammi í verðlaun hjá lækninum, frekar ánægður með það náttúrulega. Eftir læknisheimsóknina fórum við mæðgin á bókasafnið í hverfinu okkar og leigðum tvær DVDmyndir: Einar Áskel og LukkuLáka. Snilld að geta leigt myndir ókeypis og haft þær í 7 daga.

Við erum í haustfríi núna og erum að njóta þess í botn. Byrjuðum nú samt haustfríið á stússi hér heima, þvotti og þrifum. Það er víst eitthvað minni tími í svoleiðis þegar báðir foreldrar eru á milljón í skólanum... Síðan erum við að klára að hengja upp á veggina og klára að koma okkur alveg fyrir. Þetta tekur allt sinn tíma en yndislegt að vera búin að hreiðra vel um sig!! Haustfríið er alla þessa viku þannig það gefst líka tími til að hitta góða vini. Á morgun erum við boðin í mat hjá íslenskum vinum okkar hér í Århus. Á föstudaginn koma síðan Agnes og Bergur frá Íslandi, vá hvað það verður frábært, getum varla beðið!!!!! Í lok næstu viku kemur amma Hanna síðan til okkar Smile Við Tjörvi ætlum að skreppa til Köben í 2 nætur á meðan amma Hanna er hér og tvö yngstu verða í ömmudekri á meðan...

Það er ljúft að vera saman í fríi þessa vikuna, slaka aðeins á í að smyrja og drífa alla af stað á morgnana. Það er búið að ganga mjög vel að læra hjá okkur foreldrunum síðustu vikurnar og eins hjá krökkunum. Þarna síðustu vikurnar fyrir frí þá small þetta, núna eru þau öll ánægð í sínum skólum... Danskan er líka alltaf að koma meira hjá þeim öllum. Magnús og Ari slá um sig á dönsku hérna heima líka, mjög gaman að því. Valdís segir á dönsku: hej hej, sove, se, öjne, mund, mig... Þetta er það sem ég man núna. Hún er líka farin að tala meira á íslensku og sagði í Dýragarðinum í fyrradag: "Sjáðu ljón", hún segir "mmm" þegar hún meinar já, er miklu meira fyrir að segja "nei" og byrjaði fyrir löngu að segja það hátt og skýrt, hahaha.

Það eru þvílíkt mikið að gerast hjá krökkunum núna. Við Ari vorum að taka til hjá honum í gær og fundum bók sem heitir " Ari og Óri" . Ari las um leið nafnið sitt og ég spurði hann hvað stóð meira, hann átti erfitt með að lesa "og" en gerði sér lítið fyrir og las "óri" , hann hefur áður stafað sig í gegnum orð...

Er búin að vera frekar dugleg að setja inn myndir og er loksins búin með sumarmyndirnar held ég!

Verið endilega dugleg að kvitta, það er svoooo gaman að fá kveðjur svona þegar maður er í útlandinu...

mange knus

A

18.10.2010 | 13:46
 |  Einn hefur sett athugasemd

Var að setja inn tvö ný albúm í kvöld... tvö efstu eru ný :-)

8.10.2010 | 21:44
 |  Einn hefur sett athugasemd

Hej alle!!

Setti inn fullt af nýjum myndum í gær. Ég er enn að vinna upp myndirnar síðan í sumar, arg. En við fengum ekki netið fyrr en um miðjan ágúst og á meðan voru engar myndir settar inn. En þetta er allt að koma og ég er komin að byrjun ágúst núna... huhumm klára vonandi sumarmyndir í næstu syrpu og þá er hægt að fara setja inn nýjar myndir. Af gefinni reynslu ætla ég ekki að geyma milli-myndir og setja inn nýjar, þá fara hinar aldrei inn ... ég þekki alveg mína.

Annars er fjölskylduvænni helgi lokið og mánudagur tekinn við í ró og spekt með skólabókunum. Við erum komin í fína rútínu og erum öll sæl með það. Við foreldrarnir förum á fætur rétt rúmlega 6, sturta og kaffi! Síðan tek ég nestisboxin fram og byrja að smyrja með kaffibollann minn nálægt. Tjörvi gerir hafragraut og gefur krökkunum að borða. Magnús þarf að fara fyrstur af þeim á fætur, um 6.30. Hann er morgunhress svona langoftast (hefur það frá pabba sínum). Ari er oftast alveg til í að kúra. En hann lætur sig nú hafa það að fara á fætur kl.7 í síðasta lagi. Valdís vaknar oftast um 6.30 líka. Það þarf að smyrja 5 nestispakka fyrir krakkana! MET og Ari þurfa tvo með sér og Valdís einn, hún fær rúgbrauð og álegg í hádegi á vöggustofunni. Síðan smyrjum við okkur líka þannig þetta fer upp í 7 - 9 nestisbox, geri aðrir betur Smile En ég læri líka stundum hérna heima þannig það er ekki alltaf sem ég þarf að taka með mér... Magnús þarf að vera kominn út kl.7.15 til að bíða eftir leigubílnum/skólabílnum sem keyrir hann í skólann. Hann þarf að bíða úti eftir honum því við sjáum hann ekki út um gluggann koma. Bíllinn getur verið að koma á bilinu 7.15 - 7.35. Við fylgjumst með bílnum með honum oftast og spjöllum um daginn og veginn meðan beðið er. Þetta er í góðu lagi núna í góða veðrinu en verður kannski aðeins strembnara í vetur þegar verður kaldara í veðri. En við skulum sjá, kannski fer hann í hverfisskólann hérna um miðjan vetur. Síðan er farið með tvö yngstu af stað um kl. 8 og hjólað með þau og síðan hjólum við áfram í háskólann. Yndislegt að geta hjólað og Ari er ekki sáttur í þau fáu skipti sem bíllinn hefur verið notaður til að fara á leikskólann. Það er líka snilld að hjóla og sækja þau, sérstaklega þegar maður er þreyttur í höfðinu eftir að lesa mikið eða vera í löngum fyrirlestri þá hreinsast hugurinn við að hjóla heim og maður verður ferskur á ný. Það gerist einhern veginn ekki á sama hátt við að keyra heim í umferðarteppu! Já ég er frelsuð með að hjóla, halelúja!

4.10.2010 | 07:23
 |  Alls eru 2 athugasemdir

Hejsa kære venner!!

Stór dagur hjá Valdísi Ingu í dag, hún kvaddi á vöggustofunni án þess að gráta! Hún byrjaði 2.ágúst og fyrstu dagana grét hún og ÖSKRAÐI þegar við kvöddum. Á tímabili var ég fullviss um að ef hún héldi svona áfram að öskra þá yrði hún næsta Diddú Íslands. En hún verður það kannski, þrátt fyrir að hún sé farin að beita röddinni á annan hátt núna. Hún er farin að tala meira og gera sig skiljanlegri á annan hátt en að öskra. En yfir í vöggustofuna. Það hefur verið þannig síðustu daga og vikur að hún hefur kvartað pínu pons í hvert skipti sem við förum. Tjörvi fer oftast með hana, ég var ekki alveg að meika þennan grátur. Þetta var samt alltaf mjög stutt sem hún kvartaði, ég veit það. Hún er mjög glöð yfir daginn hjá þeim og þegar við sækjum hana er hún alltaf svakalega glöð. Í morgun sá hún líka vinkonu sína í bol með mynd af Dóru. Það leist henni vel á og hljóp til hennar og faðmaði hana, hahaha, bara sætar.

Afmælisdagurinn í gær var frábær og það sem yljaði mest var hversu ánægður og þakklátur Magnús var með allt. Við vöktum hann og sungum og gáfum honum pakka. Síðan fór hann í skólann og var spenntur því hann vissi að við myndum koma með skinkuhorn og afmælisköku. Það er líka þema-vika með Indiána og kúrekaþema þannig það er fullt skemmtilegt í gangi í skólanum. Við höfðum gaman að því að labba um skólann með góðgætið, það voru mörg börn sem vildu fá þetta í bekkinn sinn ;-) Þegar hann kom heim hjálpaði hann pabba sínum að baka meira. Við vorum búin að setja danska og íslenska fánann fyrir utan og blöðrur. Danir nota mikið fánann sinn á afmælinu og hann er aðalskrautið. Við borðuðum köku, opnaðar gjafir og Magnús talaði við ömmurnar sínar á Skype. Hann las líka kveðjurnar á heimasíðunni hér og á Facebook sem voru skrifaðar hjá mér. Hann hafði mjög gaman að því að lesa "til hamingju með stóra strákinn". Í kvöldmat var smá jólajóla: tartalettur. Þetta er uppskrift sem tengdamamma kenndi mér en hún kemur frá tengdamömmu hennar. Magnús missti nefnilega af tartalettunum í jólaboðinu í ár vegna þess að hann var á fljótandi fæði vegna tannaðgerðarinnar. Jóhanna gerir alltaf þessar góðu tartalettur í jólaboðinu. Eftir matinn var fjölskyldubíó með Harry Potter.

Takk kærlega fyrir gjafirnar og fallegu kveðjurnar!!!!

21.9.2010 | 19:35
 |  Athugasemd / Besked

Til hamingju með afmælið elsku besti Magnús okkar!!

Var að skrifa kveðju í gestabókina því danski tíminn er kominn fram yfir miðnætti en klukkan á barnalandinu auðvitað á íslensku tíma. En allavega sjáumst í fyrramálið minn kæri og góða skemmtun á afmælisdaginn!!

19.9.2010 | 22:54
 |  Athugasemd / Besked

1. fótboltamótið hjá Ara !

Ari Már byrjaði að æfa fótbolta í ágúst. Æfingarnar eru á sama tíma og hjá Magnúsi sem er mjög hentugt. Þeir æfa við hliðina á skólanum sem er hérna rétt hjá, auðvelt að labba og hjóla þangað. Honum finnst virkilega gaman. Krakkarnir eru á aldrinum 4 - 6 ára. Þau eru svo ung að það er nú mismikill áhugi hjá þeim á æfingunum en Ari tekur þetta mjög alvarlega og vinnur vel á æfingunum. Hann byrjaði að hita upp með armbeygjum fyrir fyrstu æfinguna Laughing Síðan sat hann mjög flottur og hlustaði á þjálfarann. Það áttu allir að kynna sig, á dönsku, og Ari átti ekki í vandræðum með það. Í dag var síðan 1.mótið hjá þeim. Hann stóð sig svakalega vel. Þeir voru fimm sem skráðu sig til að mæta á mótið en þegar á hólminn kom voru tveir sem treystu sér ekki til að vera með. Ari stóð sig eins og hetja og var allt í öllu Cool Hann skoraði nokkur mörk og allt. Þannig það var farið og keypt takkaskó og fótboltasokka eftir mótið. Hann var eini sem mætti í strigaskóm, hehe. Strákarnir í hinu liðinu voru aðeins stærri en það var allt í lagi.

Þannig það er hætt við því að helgarnar í vetur verði litaðar af fótbolta þar sem strákarnir eru núna báðir að æfa. Magnús spilaði síðustu helgi og stóð sig svakalega vel, hann skoraði eitt fallegt mark og var á fullu allan tímann. Hann er líka að kynnast strákunum betur og þeir taka vel á móti honum, þeir eru með honum í frístundinni eftir skóla (SFO) líka.

jæja þarf að hlaupa upp stigann á eftir Dísinni! 

5.9.2010 | 08:50
 |  Athugasemd / Besked

Allir komnir af stað stað!

Í dag byrjaði Magnús í frístundaheimilinu sem hann verður í eftir skóla. Hér í Danmörku kallast það SFO. Hann verður í SFO sem tilheyrir hverfisskólanum okkar: Jellebakkeskole. Það er skólinn sem hann fer í eftir nokkra mánuði. Já pínu flókið, en málið er að hann í móttökubekk fyrir erlend börn í skóla sem er í allt öðru hverfi. Þangað fer hann með leigubíl og Árósarbær borgar fyrir það, þetta virkar eins og skólabíll því það eru fleiri börn sem eru í bílnum með honum á leið í sama skóla. Magnúsi leist því miður ekki nógu vel á skólann sinn og bekkinn fyrst. Fyrsta daginn voru þau þrjú, hann og tvær stelpur, önnur frá Ísrael og hin frá Sómalíu. En núna er þau fleiri, eru orðin 7. En það eru bara tveir strákar, hann og einn strákur Noregi. Síðan er byrjuð stelpa frá Íslandi í bekknum. Danskan fer vonandi að koma meira hjá honum, þetta er auðvitað erfitt fyrst. Hann er kominn á fullt í fótboltanum og finnur sig mjög vel þar. Hann spilaði á fyrsta mótinu sínu um helgina og skoraði og allt sko, voða gaman. Æfingarnar eru við hliðina á hverfissskólanum (Jellebakkeskole) þannig hann er að kynnast strákunum í hverfinu í gegnum boltann. Síðan þegar hann byrjaði í SFO

1.9.2010 | 14:30
 |  Athugasemd / Besked

3. ágúst 2010

 

Síðastliðnar vikur eru búnar að vera ótrúlegar. Þann 24. júní flugum við frá Íslandinu góða og á vit nýrra ævintýra, maður, kona og börnin þrjú J Vikurnar þar á undan pökkuðum við allri búslóðinni okkar í gám, fluttum aftur húsgögn og dót innanhúss á Hraunbrúninni, losuðum okkur við gömul föt af okkur og börnunum og reyndum eftir bestu getu að létta á búslóðinni okkar. En við enduðum með að troðfylla gáminn, huhumm... Eins og þeir sem hafa “lent í því” að hjálpa okkur að flytja (guð blessi ykkur btw!) þá eru ætíð slatti af bókakössum með í för. Bækur taka nú ekki svo lítið pláss og eru afar skemmtilegar til burðar í flutningum. En það er jú ekkert heimilislegra en bækur og það er dýrmætt að geta gluggað í bækur á íslensku og einhvern veginn gluggar maður meira í ljóð og þess háttar þegar maður er fjarri heimahögum.... En aftur að breytingunum á lífi okkar allra. Já okkur tókst að koma búslóðinni allri í kassa og plast og inn í gám, allt merkt og númerað fyrir tryggingarnar. Eins er gott að hafa allt innihald merkt þegar kemur að því að taka upp úr kössunum. Þetta tókst með hjálp frábærra vina og fjölskyldu, TAKK TAKK TAKK!!!!!!!!!!! Ég var spurð að því hérna úti af danskri vinkonu, hvernig pakkar maður öllu og flytur milli landa með þrjú börn? Maður hlýtur að þurfa að vera mjög skipulagður sagði hún. Jú eflaust hugsaði ég, en síðan gat ég ekki sagt meir, var enn að átta mig á því sjálf á því að við vorum komin og að þetta hafi tekist. Held ég sé nefnilega ekkert sérstaklega skipulögð... En ætli það sé ekki eins og með annað þá þarf góðan slatta af þolinmæði og góða skapinu og umfram allt samvinnu. Kannski það hafi líka hjálpað aðeins til að við höfum flutt einu sinni eða tvisvar áður...

 

Ferðalagið út

Við áttum flug til Álaborgar kl.7 um morguninn 24. júní og vorum búin að hugsa að við þyrftum að vakna um kl. 3. En við vorum að stússast fram á síðustu stundu, ganga frá og pakka, þannig það endaði með því að við foreldrarnir sváfum ekkert. Hentum okkur bara í bað og síðan vöktum við krakkanna og út í bíl með þau hálfsofandi. Strákarnir vöknuðu þó því þeir voru svo spenntir að fara. Sonja og Katla voru svo frábærar að keyra okkur út á völl. En það kom upp úr kafinu að það var seinkun, fyrst héldum við að það væri bara hálftími þannig við fórum út á völl en vélin fór ekki fyrr en 9. Við hittum Róbert og Svölu á vellinum, þau voru líka að fara til Århus því Svala var að útskrifast sem læknir J Þegar við komum í vélina vorum við ansi þreytt satt best að segja. Valdís sofnaði sem betur fer fljótt í fanginu á mér og þá gat ég sofnað líka. Ari og Tjörvi sofnuðu líka en Magnúsi Erni fannst svo gaman að hann sofnaði ekkert. Þegar við komum til Álaborgar vorum við frekar fyndin, með 5 töskur og þrjú börn og eina kerru – og á leiðinni í lestina! En vandamálið var að lestarstöðin var ekki alveg rétt hjá flugvellinum. Strætó var ekki nálægt og það var ekki að ganga. Robbi og Svala björguðu okkur og tóku tvær töskur í bílinn sem þau voru með. En við tókum leigubíl á lestarstöðina, síðan lest og svo aftur leigubíl heim í hlað í Århus. Krakkarnir voru svakalega dugleg, vá hvað ég var stolt af þeim. Vegna seinkunarinnar á fluginu þá var gámurinn og bílstjórinn kominn á undan okkur. En Per, vinur okkar, var svo frábær að hann tók á móti gámnum og beið síðan bara eftir okkur. Hann hjálpaði síðan við að flytja dót úr honum if Robbi og Svala komu líka og hjálpuðu. Við mættum beint í götu-partý , en gátum því miður lítið tekið þátt í því, við höfum til morguns að tæma blessaðan gáminn. En við sáum strax að þetta var hverfi með fullt af krökkum á sama aldri og okkar og fullt af vinalegu fólki, náðum að heilsa upp á nokkra. Sem betur fer var gott veður þannig það var hægt að koma öllu dótinu út úr gámnum á réttum tíma og geyma hluta af því úti í smá tíma. Nokkrum dögum seinna kom líka Ingvi og hjálpaði Tjörva að bera fullt af bókakössunum góðu upp á háaloft, já við leyfum nokkrum bókakössum að hvíla sig þar í bili, ætlum ekki að hafa allt í stofunni. Veðrið hjálpaði líka mikið til að því leytinu til að við gátum opnað út í garð og krakkarnir gátu hlaupið um þar og leikið sér, þvílík snilld að vera með lokaðan garð sem er hægt að ganga beint út í, ég er í skýjunum með það ... En ég verð að viðurkenna það að ég hef sjaldan verið eins þreytt og þarna 1. kvöldið okkar hérna úti enda sofnuðum við öll um leið og lagst var á koddana ...

14.8.2010 | 08:53
 |  Athugasemd / Besked

Tvö ný albúm: Jól 2009 og síðan af afmælisskottunni :-) ... Loksins loksins

25.2.2010 | 12:36
 |  Athugasemd / Besked

Til hamingju með 1 árs afmælið í dag elsku yndislega Valdís Inga okkar!!!!

25.2.2010 | 08:00
 |  Athugasemd / Besked

Hæ hæ

Nú er mest spennandi hjá dótturinni að standa upp við allt :-) Byrjaði á þessu fyrir ca.tveimur vikum, þá rétt orðin 9 mánaða. Hún er svooo dugleg. Nú þarf sko þvílíkt að passa hana því hún dettur oft á hitt og þetta við þessar æfingar. Núna er komið kvef í heimsókn hjá henni og smá hitavella, en vonandi verður það búið um jólin bara. Ari Már er heima í dag veikur líka með kvef og hósta. Það voru allir hressir í nokkrar vikur, þarna síðan í október og það var mjög ljúft að komast í rútínu.

Magnús Ernir spilaði á sínum 1.tónleikum á þriðjudaginn í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Þar er hann í forskólanum og þau eru að læra á blokkflautu. Hann stóð sig mjög vel og skemmti sér einnig vel. Það var dansað í kringum jólatréð eftir atriði krakkanna. Þetta var vel skipulagt og afslappað allt saman.

meira leiter mín kæru - líka algjörlega kominn tími á að setja inn myndir, ætla að reyna að hafa mig í það á næstu dögum ;-) 

knus

annapanna

10.12.2009 | 09:49
 |  Athugasemd / Besked

Smá stöðuskýrsla

VIT:

Litla snúllan okkar er orðin 9 mánaða, hvorki meira né minna. Hún er komin með 7 tennur og sú nr.8 er að brjótast í gegn, fjórar uppi og fjórar niðri, bara sætt. Hún fór af stað nýorðin 7 mánaða, sitjandi. Núna svífur hún um gólfið sitjandi og skríður aðeins "venjulega" inn á milli. Sérstaklega þegar hún kemst á teppi. Í gær gerði hún sér lítið fyrir og stóð upp í leikgrindinni. Hún var búinn að vera gera sig líkega í nokkrar vikur, fara upp hnén og sona og reyna og reyna. Síðan skrapp mamman aðeins í bæinn og þá gerði hún þetta fyrir pabba sinn, hehe. Valdís Inga er mjög glöð alltaf og með létta lund en ákveðið skap (ekki hægt að segja að við eignumst skaplaus börn!). Hún dafnar afar vel og er yndislegt að fylgjast með henni þroskast og fá að kynnast henni betur og betur. Ég er þvílíkt hamingjusöm að vera áfram í fæðingarorlofi. Væri alveg til í að fá einhvern smá aur fyrir það eeeen fæ fullt fullt annað í staðinn að sjálfsögðu...

AMT:

Syngjandi glaður grall-ARI. Þvílík orka á einum bæ! Ari Már er óþreytandi við að taka á móti kennslu og leiðbeiningum og vill helst geta og kunna allt, bæði sem bróðir hans getur og helst við sko! Hann lærði jú nær alla stafina 2 ára og hefur enn mikinn áhuga á þeim og finnst hann eiginlega alveg kunna að lesa, hehe. Hann telur eins og ekkert sé upp á 10 og kann það líka á ensku núna. Það er enska á Hjalla sem er mikil snilld og síðan horfir hann jú líka mikið á Dóru sína :-) Hann er oft að spila við ömmu sína og okkur stundum líka. Hann vill helst spila á spilaborðinu hennar ömmu Hönnu, það er mesta sportið. Hann leggur líka kapla, bæði á borði og í tölvunni. Já 3 og 1/2 núna í des., stundum er maður ekki að trúa því. Orðaforðinn alltaf að aukast mikið og miðað við hversu seint hann byrjaði að tala þá er magnað hversu mikinn orðaforða hann hefur og mikinn skilning finnst á mér tengingu við tilfinningar og hitt og þetta. Hann er líka ansi góður í að rökræða, hefur alltaf svar! Í gær var hann að ræða það að hann gæti nú alveg labbað sjálfur heim úr leikskólanum, hann myndi sko alveg passa sig á bílunum og sona. Síðan kom hann með flott nafn á jólasveini: Kjúklingakrókur! Já hvar er hann???

MET:

Elsku stóri strákurinn okkar er mikið að þroskast og kominn í það ferli að hann er að verða sjálfstæður á annan hátt en áður. Hann hefur þörf fyrir að rökræða reglur og ramma. Það er líka nauðsynlegt en ég finn á mér að ég þarf að æfa mig betur í því að semja og vera stundum sveigjanlegri. EN á sama tíma vera föst fyrir því fastan ramma og aga þarf hann. Hann er kominn á flott ról eftir leiðindaveikindapakkann í október. Núna er hann líka kominn í fína rútínu og að finna sig í því sem hann er að gera. Hann kemur glaður heim úr skólanum, er búinn að eignast góðan leikfélaga, þeiru eru mikið saman í skólanum og eftir hann líka. Tvisvar í viku fer hann í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, þri. og fös. 16.10-17. Þar er hann að læra á blokkflautu, syngja og í allskonar leikjum. Það eru tónleikar 8.des., spennandi. Einu sinni í viku fer hann á fótboltaæfinu. Fótboltaáhuginn er ofar öllu núna, það byrjaði fyrir alvöru í sumar, bæði með fótboltamyndunum og auðvitað mikið í fótbolta úti og inni. JÁ INNI, það má vera með mjúka bolta uppi og vera í handbolta og fóbolta. Það er búið að innrétta "Bolta-helt" í herberginu hans og á ganginu þangað sem boltinn fer jú oft. Þetta vekur mikla lukku, fínt fyrir okkur að fá hreyfingu líka, hehe. Hann byrjaði á handboltaæfingum í haust og fjölgreinaæfingum (handb., fótb. og karfa) en hann er spenntastur f. fótboltanum og það er flott að hann sé glaður í einhverri íþrótt, það skiptir öllu finnst mér. Einu sinni í viku er líka alveg nóg fyrir þennan aldur finnst mér, sérstaklega þar sem hann er í tónlistarskólanum líka. Magnús er líka farinn að syngja meira núna en hann hefur gert áður, tók eftir einu skemmtilegu í stafrófslaginu um daginn, þið munið "A, B, C, D , E... o.sfrv. Síðan: "l, m, n, og einnig p, ÆTLI SKÚTA ÞAR STANDI HJÁ " :-)

1.12.2009 | 09:26
 |  Athugasemd / Besked

Blessuð og sæl í lok októbermánaðar!!

Nenni ómögulega að ræða veikindapakkann sem við erum búin að vera í... Þessu fer nú vonandi að ljúka!!

Langaði bara rétt að minnast á að Valdís Inga varð 8 mánaða á sunnudaginn :-) Þetta er svo ótrúlegir mánuðir, þessi fyrstu mánuðir í lífi barns.  Nýorðin 7 mánaða fór hún af stað sitjandi og er núna komin á þónokkurn hraða skvísan. Síðan nær hún upp í hillur og tosar dót niður og sona :-) Það er mikið fjör hjá henni í herbergjum strákanna enda margt að skoða þar. Tennurnar eru að verða 7, þrjár að brjótast fram núna. Síðan gladdi það móðurhjartað mikið þegar dóttirin sagði "mamma" svo skýrt og fallega :-) Reyndar er hún búin að vera segja "mamamama" og "babababa" en allt í einu sagði hún "mamma" svo fallega. Síðan varð hún veik í fyrsta skipti í mánuðinum og er búin að grípa ýmislegt. Fyrsti pensilínskammturinn er núna í gangi vegna streptokokkasýkingar.

Nokkrar nýjar myndir - slökum nú ekki alveg á myndatökum þó svo að heimilið sé búið að vera heilsubælið í hafnarfirði....

mange knus

annapanna

28.10.2009 | 11:01
 |  Athugasemd / Besked

Smá veikindapistill...

Magnús Ernir fékk að gista hjá Bergþóri Inga og Önnu Maríu frændsystkinum sínum aðfaranótt föstudags. Mikið sport að fá að vera með þeim enda þau 9 og 11 ára og ekkert smá flott og skemmtileg. Laugardagsmorgun komum við og sóttum hann. Fyrst héldum við að hann væri mjög þreyttur því hann fór seint að sofa, enda þurfti að kjafta pínu og leika. Síðan lá Magnús bara í sófanum þegar við ætluðum að fara. Ég hélt reyndar fyrst að hann væri með stæla því hann vildi ekki fara. En þegar hann stóð upp var hann orðinn sjóðheitur og greinilega veikur. Á leiðinni heim leið honum mjög illa en gat ekkert sagt hvar honum væri illt. Hann svaf nær allan laugardaginn og rétt vaknaði til að drekka vatn. Hann var í hálfgerðu móki, glær til augnanna og virkilega heitur. Hann átti líka erfitt með að ganga vegna beinverkja. Mikið er óhuggulegt þegar hitinn verður svona svakalegur. Um kvöldið skánaði hann pínu og ég mældi hann, þá var hitinn 39°C, var sem sagt pottþétt meiri um daginn. Sunnudagurinn var svipaður en þó aðeins skárri. Síðan á mán. og þri. var hann kominn á stjá, farinn að borða aðeins og hitinn búinn að lækka. EN á þri.kvöld versnaði hóstinn mikið, kom slæmt hóstakast þar sem hann hóstaði svo mikið að hann ældi. Þá talaði ég aftur við lækni og fór með hann til að hlusta í gærmorgun. Það þarf nefnilega að passa lungun vel því hann hefur nokkrum sinnum fengið lungnabólgu. Og það kom á daginn, komin smá lungnabólga í hægra lungað þannig hann var settur strax á pensilínkúr. Síðan fórum við í röntgenmyndatöku í dag því þetta er í annað sinn á árinu sem hann fær í lungun. Læknirinn taldi að þetta hafi verið svínaflensa um helgina, síðan var hann að ná sér af henni en þá hefur baktería náð taki á lungunum. Dagurinn í dag er mun betri, hann er farinn á stjá og getur núna leikið sér aðeins, spjallað og brosað aftur :-) Hann er búinn að vera þvílíkt duglegur og standa sig eins og hetja í læknisheimsóknunum og að taka allt sullið, pensilín, hóstasaft og panodil.

Heimilisfaðirinn var líka veikur í nokkra daga en er kominn á stjá aftur. Ari Már fékk augnsýkingu og er enn með hósta en hefur þó verið hitalaus. Hann er búinn að vera heima alla vikuna líka. Hann er líka mjög duglegur að taka sín lyf, er búinn að finna það að ef hann er rólegur og leyfir mér að setja augndropana varlega í þá gengur þetta miklu betur. Litli snillingurinn okkar. Síðan tekur því nú varla fyrir hann að fara á morgun fös. á leikskólann þannig ég hugsa að hann verði bara heima líka þá. Ég er bara að vona að þessi slæma flensi skelli ekki á hann eða Valdísi líka :-( Ég var svona hálfveik um daginn og vonandi tók ég þetta út þá... Það var allur bekkurinn hans Magnúsar sem fékk þetta síðustu helgi. Held það hafi verið tvö börn úr bekknum í skólanum á þriðjudaginn. Það var frí á mán. því það var foreldrafundur og eitt barn hafði komið með foreldrum sínum!

Jæja látum þetta nægja um flensur - farið vel með ykkur öllsömul. Ég er búinn að vera pínu að tapa mér hérna með tuskuna á hurðahúnum og svoleiðis... síðan eru hendurnar ansi skorpnar eftir handþvott og spritt en það er víst skárra en að smitast, eþaggi??!

overandout

8.10.2009 | 21:42
 |  Athugasemd / Besked

Stöðuskýrsla fyrir VIT :-)

UUu það er ekki alveg sami dugnaðurinn í skrifunum um Valdísi Ingu eins og fyrir strákana. Ég var nú sérstaklega dugleg og í gírnum með þetta með Magnúsi Ernir þegar maður var úti í DK. Kannski hafði maður aðeins meiri tíma líka fyrir svona lagað með fyrsta barn. En það er mjög gaman að eiga þetta og ég kíki stundum á þetta þegar ég er að velta hinu og þessu fyrir mér, hvenær og hvernig maður gerði hlutina þá og svona.

En allavega þá dafnar prinsessan á heimilinu afar vel. Hún fékk kvef núna um daginn en er eiginlega að verða laus við það. Þetta var í fyrsta skiptið sem hún verður eitthvað lasin, orðin 7 mánaða, þannig það er eiginlega alveg ótrúlegt finnst mér. Já skvísan orðin 7 mánaða, henni fannst það góður aldur til að fara á flakk! Það lá við að hún byrjaði að mjaka sig áfram á 7 mánaða afmælisdeginum. Ari Már var 6 mánaða þegar hann var kominn á fulla ferð, úffpúff. Hún mjakar sér áfram sitjandi ennþá þannig hún fer nú ekkert svakalega hratt um sem er eiginlega ágætt, huhumm... En það er örugglega ekki langt í að hún fari að skríða. Tennurnar eru orðnar fjórar, tvær í neðri gómi og tvær í efri gómi. Við erum að sjálfsögðu byrjuð að bursta og henni finnst voða gott að naga tannburstann. Já og stórfréttir eiginlega - SNUÐIÐ er komið í náðina hjá henni. Þvílíkt sem við erum ánægð með það, búið að fjárfesta í öllum mögulegum tegundum og alltaf verið að reyna. Loksins loksins, eins gott að við gáfumst ekki upp. Nú kom í ljós hvor er þrjóskari, hahaha. En Valdís Inga er sem sagt alveg svakalega dugleg og yndisleg, mikið sem við erum þakklát fyrir litla sólargeislann okkar. Strákarnir eru svo góðir við systur sína og alltaf að leika við hana og fá hana til að hlæja. Þess á milli kyssa þeir hana og knúsa.

Svefnmálin eru komin í ágætan gír aftur. Kom smá "óregla" á eftir brjáluðu vinnutörnina í ritgerðinni og sumarfríið. En núna er hún búin að læra aftur að sofna sjálf í rúminu sínu á kvöldin eftir söng og knús. Á daginn sefur hún oftast tvo lúra (stundum þrjá) annað hvort í vagninum úti eða í rúminu sínu inni (eins og núna þegar kvefið var). Næturnar eru svona lala, hún fær enn mömmusopa og það er misjafnt hversu oft það er. Best er þegar hún sefur frá ca.20.30 og vaknar ekki fyrr en ca. 4, fær þá einu sinni að drekka og síðan vaknar hún nær oftast kl.7 og þá er farið á fætur. Eeeen það koma nætur núna þar sem hún er að vakna mun oftar að drekka og það tekur dáldið á múttuna. Þannig að ef hún fer að festast í næturbröltinu þá er skrúfað fyrir hjá múttunni... sjáum aðeins til. Matarmálin eru komin í fínan gír, ca. þrjár máltíðir á dag og fjölbreytnin farin að aukast mikið.

Jæja þá er komin smá stöðuskýrsla um litla krúttið. Ætla að fara að horfa með MET og TJ. Magnús er veikur, ansi slappur, svaf í allan dag í hálfgerðu móki og með hósta.

bless bless

Kv.

A.

3.10.2009 | 21:37
 |  Athugasemd / Besked

Elsku Magnús Ernir frumburðurinn okkar er 7 ára í dag. Ótrúlegt að 7 ár séu liðin síðan hann kom í heiminn á Skejby sjúkrahúsinu í Árósum í Danmörku. Þar bjó hann fyrstu 3 árin sín og naut þess að vera einn með foreldrum sínum sem voru bæði í framhaldssnámi á þessum tíma. Ég var þó heima með hann í 1 ár áður en námið byrjaði. Hann eyddi nú líka dágóðum tíma í íþróttahúsi þar sem pabbinn var í handboltanum á þessum tíma. Eftir árs stopp í Reykjavík var haldið í Hafnarfjörð þar sem við höfum búið síðan. Drengurinn er orðinn harður Haukamaður og unir sínum hag vel í Firðinum fagra :-)

Í haust byrjaði Magnús í 2.bekk og er mjög ánægður í skólanum. Hann labbar einn í skólann og heim og er nýbúinn að fá lykla að húsinu, ekki lítið stoltur af því. Þau eru bara 9 í bekknum hans sem er mikill lúxus. Það eru tveir 7 ára bekkir og þau eru saman í nokkrum tímum. Þá eru samt alltaf tveir kennarar. Aðaláhugamálin þessa dagana eru íþróttir og þá aðallega handbolti og fótbolti. Liverpool og Haukar eru bestu liðin sko... Hann æfir tvisvar í viku með Haukunum, á mán. er handbolti og á fim. er handbolti og karfa. Síðan er Lego hrikalega skemmtilegt og allt sem hægt er setja saman. Hringpúsl eru líka vinsæl en það eru 95 lítil púsl sem er eins og bolti þegar búið er að púsla það.

Það er mikið stolt yfir 7 ára afmælinu, alltaf gaman að eiga afmæli :-) Fjölskyldukaffið var í gær og á mið. er bekkjarafmælið. Í dag áttum við góðan dag saman, rúnstykki í morgunmat og síðan fórum við í bæinn og hann fékk að velja sér dót fyrir afm.peninga. Síðan fórum á Þjóðminjasafnið og skoðuðum okkur um.

Til hamingju með daginn elsku Magnús okkar!!!!

knus ma, pa, Ari Már og Valdís Inga

 

20.9.2009 | 16:40
 |  Athugasemd / Besked

Aldeilis kominn tími á stöðuskýrslu frá fimm manna fjölskyldunni. Reyndar erum við sex manna stórfjölskylda hér á Hraunbrúninni, þ.e.a.s auðvitað amma Hanna og blessaður kötturinn hún Svarta Rós.  

Valdís Inga varð 6 mánaða þann 25. ágúst. Ótrúlegt að það sé liðið 1/2 ár síðan hún kom syndandi í þennan heim, litli sæti fiskurinn okkar. Hún hefur stækkað og dafnað afskaplega vel og er mjög brosmild. Það er svona að færast meira grallabros yfir hana, enda getur hún lært margt af bræðrum sínum. Núna finnst henni mesta sportið að sitja og leika sér með dótið. Þá grípur hún í hvert leikfangið á eftir öðru og skoðar það vel og nagar. Strákarnir eru oft að gefa henni mjúka bolta til að leika sér með enda ekki seinna vænna að byrja að þjálfa boltann :-) Hún er komin með tvær tennur í neðra gómi og sú þriðja er að brjótast í gegn (í efra gómi). Baðið er vinsælt og kvöldin og hún er hætt að geta verið í ungbarnabalanum. Núna situr hún í baðsæti í bala og buslar og buslar og finnst það ekkert smá fyndið. Hún hefur elskað að vera í vatni frá fyrstu stund og síðan finnst henni afar notalegt að fá nudd á eftir. Ég er nú ekki eins dugleg að nudda hana og gerði fyrstu vikurnar en annað slagið þó. Það gæti spilað inn í að það tekur tíma að koma þremur krílum í svefninn... VIT er enn á brjósti og er glöð með það held ég bara. Hún byrjaði þó að fá graut 4 mánaða þar sem við tókum þátt í rannsókn á vegum heilsugæslunnar um áhrif þess að vera eingöngu á brjóstamjólk í 4 eða 6 mánuði... meira leiter

1.9.2009 | 15:50
 |  Athugasemd / Besked

TIL HAMINGJU MEÐ 3 ÁRA AFMÆLIÐ Í DAG ELSKU BESTI ARI MÁR !!!!!!!!!!!!

12.6.2009 | 10:38
 |  Athugasemd / Besked



apríl '11 | febrúar '11 | október '10 | september '10 | ágúst '10 | febrúar '10 | desember '09 | október '09 | september '09 | júní '09 | maí '09 | apríl '09 | mars '09 | febrúar '09 | desember '08 | nóvember '08 | október '08 | september '08 | ágúst '08 | júlí '08 | júní '08 | maí '08 | apríl '08 | mars '08 | febrúar '08 | janúar '08 | desember '07 | nóvember '07 | september '07 | ágúst '07 | júlí '07 | júní '07 | maí '07 | apríl '07 | mars '07 | febrúar '07 | janúar '07 | desember '06 | nóvember '06 | október '06 | september '06 | ágúst '06 | júlí '06 | júní '06 | maí '06 | apríl '06 | mars '06 | febrúar '06 | janúar '06 | desember '05 | nóvember '05 | október '05 | september '05 | ágúst '05 | júlí '05 | júní '05 | maí '05 | apríl '05 | mars '05 | febrúar '05 | janúar '05 | desember '04 | nóvember '04 | október '04 | september '04 | ágúst '04 | júlí '04 | júní '04 | maí '04 | apríl '04 | mars '04 | febrúar '04 | janúar '04 | desember '03 | nóvember '03 | október '03 | september '03 | ágúst '03 | júlí '03 | júní '03 | maí '03 | apríl '03 | mars '03 | febrúar '03 | janúar '03 | desember '02 | nóvember '02 | október '02 | september '02