Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
ELÍSA MAREN og Vilmar Óli
ELÍSA MAREN og Vilmar Óli
6 vikna 5920 gr 60,5 cm
Vilmar Óli - 3 ára
Ji hvað það er langt síðan að maður tók Barnalandsrúnt - nú er maður að lifna við aftur þegar það er komið bambínó :) Æðislega eru feðgar myndarlegir að baka og skvísan flott með verðlaunin..kv. af Árstígnum :)
Svava Lárusdóttir | 0 | 29.2.2012 10:38:59 #
Til lukku með daginn Elísa Maren !! Kveðja frá M-29
Hilmir Bjólfur og co | 0 | 8.10.2010 23:01:17 #
Innlitskvitt........
Lilja Björk Birgisdóttir | 0 | 13.9.2010 14:17:58 #
  • Hæ hæ sætu systkini, rosalega gaman að skoða nýju myndirnar ykkar ekkert smá flott bæði tvö. Bestu kveðjur frá Strandvegargenginu
    Andri Dagur og Katrín Sara
    |
    24.2.2010 10:32:18
  • Æðislegar myndir, bara æði. Knús frá D-9
    Lilja Björk Birgisdóttir
    |
    24.2.2010 10:16:38

Vorum að setja inn myndir úr myndatökunni sem við fórum í fyrir jólin.

0 | 23.2.2010 22:13:37 #

Bláhús
Frábærar myndirnar af krúttbollunum :)
0
23.2.2010 23:27:59
  • Flottar nýju myndirnar ykkar ! Kveðja af M-29
    Halla Dröfn Þorsteinsdóttir
    |
    3.2.2010 20:08:40
  • Sko bara nýjar myndir ;) Kvitterí knús frá Dalbakka liðinu.
    Lilja Björk Birgisdóttir
    |
    3.2.2010 16:07:15

Halló Halló

Mamman var að henda inn nokkrum áramóta og janúar myndum á síðuna. 

Árið hefur byrjað frekar furðulega hjá okkur, heilsulega séð.  Öll fjölskyldan fékk ælupestina sem var að ganga hérna í byrjun janúar.  Mamman og börnin fengu svo streptokokka og sýklalyf við því um miðjan janúar (reyndar var pabbinn nú sennilega líka með þetta, allavega að drepast í hálsinum í marga daga)  Mamman fór svo í hnéspeglun 21. janúar og er enn heima að jafna sig eftir það og er hún svo aftur komin með streptokokkana.

Annars gengur allt sinn gang hérna... börnin ánægð í skólanum.  Elísa Maren hefur því miður lítið komist á skíði þar sem snjórinn er farinn úr fjallinu. En það snjóar úti núna þannig að kannski verður hægt að opna aftur fljótlega.

Vilmar Óli stækkar og stækkar og hermit allt eftir sem sagt er við hann.  Hann getur sagt ótrúlega mörg orð.  t.d. kann hann að segja :
úpa=súpa, dekka=drekka, barka=sparka, íínbe=vínber, banani, epli, Hanna, enena=Helena, inní, dudda, dýndur=týndur, ava=sími (var mynd af afa hans á símanum hennar ömmu), undur=hundur, andaína=mandarína
busta(bursta tennur)

Hann er svo alveg ávaxta óður og finnst ekkert betra en mandarínur, vínber og kíwí. 

Börnin fengu að vera á Akureyri Þorrablótshelgina hérna, þar sem foreldrarnir voru í nefnd og voru mjög lítið heima.  Skruppum svo aftur norður um síðustu helgi.

jæja látum þetta nægja í bili.

Kv EMR og VÓ

0 | 3.2.2010 14:27:12 #

hóóó - enn bara jólamyndir og það er kominn febrúar! ;) skora á mömmuna að skella inn nýjum myndum af sætustu múlavegsbörnunum! kv. af bakkanum
maggý | 0 | 3.2.2010 11:13:00 #
Hæ hæ, flottar jólamyndirnar ykkar !! og æðisleg myndin frá Döllu (verður gaman að sjá fleiri)! bestu kveðjur úr M-29
Halla og Hilmir Bjólfur | 0 | 27.12.2009 23:56:11 #